blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 21

blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 21
blaöið FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 29 ÍÞRÓTTIR ithrottir@bladid.net Kínverjar hafa lyft grettistaki í þessu verkefni sem öðrum og íþróttamannvirki og öll umgjörð leikanna verður fyrsta flokks og jafnvel betri. SKEYTIN INN Hætt er við að Luis Scolari, hinn litríki brasilíski þjálf- ari Portúgals, verði að dvelja í stúku eða utan vallar í næsta landsleik liðsins en hann réðst á leikmann Serbíu í lok landsleiks liðanna í fyrrkvöld en Serbar náðu þar mikilvægu jafntefli og draumar Portúgala um þátt- töku í Evrópukeppninni næsta sumar minnkuðu til muna. Frakkar eru æfir yfir o-i tapi liðs síns gegn Skotum í riðlakeppni Evr- ópukeppninnar en Frakkarnir eiga sem betur fer fyrir þá nokk- uð einfaldan leik fyrir höndum næst gegn Færeyjum í B-riðli sinum. Eru þeir þar þriðju og eng- an veginn víst að þeir fari áfram. Er þetta þriðji landsleikurinn í riðlinum þar sem hinir sókn- djörfu Frakkar skora ekki mark. * Ikjölfar þessa leiks á Thi- erry Henry að hafa sagt að leikir sínir með franska landslið- inu verði ekki öllu fleiri en orðið er en Henry lék ekki með þeim bláklæddu gegn Skotum vegna leikbanns. óttleik- mannamark- aðurinn sé lokaður ffam að áramótum er enginn skortur á þreifingum liða á millum. Sven-Göran Eriksson er hvergi nærri hættur að bæta lið sitt og hefúr nú hug á að fá Danann Christian Poulsen til Manchester City þann t. janúar. Poulsen er máttarstólpi hjá Sevilla sem mun næsta örugglega missa Daniel Alves um svipað leyti. Fari Poulsen líka er hætt við að brotalamir fari að sjást hjá spútnikliðinu. Itölskum miðl- um finnst fátt skemmtilegra en að spekúlera í hver verði næsti stjóri QPR sem nýlega var keypt af milljarðamæringnum Flavio Briatori. Búið er að útiloka Fabio Capello en nú á víst gamla hetja AC Milan, Alessandro Costacurta, að hafa áhuga. Hefur hann ekki þjálfað áður en hefur áhuga. rjen Robben er farinn að æfa stfft hjá Real Madrid og er kominn í 90 prósent form að mati lækna og sjúkraþjálfara liðsins. Þykir þó ólíklegt að hann verði með liðinu um helg- ina gegn nýliðum Almería en nýliðarnir hafa komið nokkuð á óvart með skemmtilegum leik. ascal Chimbonda, hinn franski leikmaður Totten- ham, var handtekinn f gær og færður til yfirheyrslu. Tengist handtaka hans fjársvikamáli sem lögreglan rannsakar og umboðs- maður kappans er flæktur í. Kylfingar velja gjaman trékylfu númer 3 til að bæta nákvæmni af teig Nýrri dræverar síst ónákvæmari Það hefur lengi verið talið til góðra siða hjá kylfingum að grípa til annarra kylfa af teig en dræver sér- staklega þegar brautin framundan er þröng eða mikið er af hættum í eða við brautina. Þetta gæti bein- línis verið rangt því prófanir sýna að nákvæmnismunur á þrjú tré og dræver hjá áhugamönnum er lítill sem enginn. Það er skiljanlegt hvers vegna þessi hugmynd hefur verið við- tekin. Dræverar hér áður fyrr voru tæknilega ófullkomnir miðað við það sem kylfingar hafa í pokum sínum í dag og í mörgum tilfellum var ekki aðeins einfaldara að skjóta með lægra númeri, þrjú, fimm eða sjö tré, heldur munaði talsverðu f ná- kvæmni. Þrjú tré er líka styttri kylfa með hærri skotgráðu og því einfald- ara að hitta vel jafnvel þótt teighögg heppnuðust ekki fullkomlega. Sérfræðingar Golf Digest hafa komist að því að nýjustu dræverar eru það fullkomnir að litlu skiptir hvor kylfan er valin með nákvæmni í huga. Hefur tækni í gerð drævera fleygt fram hraðar en annarra kylfa og miðað við hversu miklu lengra er hægt að ná með dræver er saman- burðurinn dræver í hag í dag. Velkomin til Peking Stækjan er víst ansi mikii á götum Peking að sögn ferðamanna og ekkert gengur að berjast gegn mengun í borginni. 330 dagar til stefnu í Kína Mengun og umferðaröngþveiti setja mark sitt á Ólympíuleikana Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@bladid.net Það er ákaflega auðvelt að vera vitur eftir á og á það eru forráða- mennAlþjóðaólympíunefndarinnar að reka sig nú þegar aðeins 330 dagar eru þangað til Ólympíueldurinn verður tendraður á þjóðarleikvangi Kínverja í Peking. Miklar tilraunir til að sporna við megnri mengun f borginni hafa lítinn sem engan árangur borið og útlit er fyrir að dagskrá leikanna gæti riðlast allverulega enda við- búið að erfiðari greinum á borð við maraþonhlaup verði frestað verði mengun ekki f minnsta lagi þann dag sem þær fara fram. Yfir litlu sem engu öðru er að ÓLYMPÍULEIKARNIR Fara fram 8.-24. ágúst 2008. ► ► Miðar á helstu viðburði eru þegar uppseldir. Hundruð íslendinga hafa þegar keypt miða á stöku greinar mótsins. kvarta að sögn þeirra sem eftirlit hafa með undirbúningi leikanna. Kínverjar hafa lyft grettistaki í þessu verkefni sem öðrum og íþrótta- mannvirki og öll umgjörð leikanna verður fyrsta flokks og jafnvel betri. Það er hins vegar lítil sárabót ef ill- þefjandi og kæfandi mengun mætir keppendum leikanna dag hvern. Annað sem veldur Kínverjum nokkrum áhyggjum er skortur á gistirýmum fyrir þær 600 þús- undir sem búist er við að sæki leik- anna og lítil tungumálakunnátta í gisti- og veitingageirum landsins verður stórt vandamál þó yfirvöld hafi þegar sent þúsundir leigubíl- stjóra og starfsfólk veitingastaða á enskunámskeið. Menningarlegur munur er eðli- lega mikill og vilja Kínverjar koma í veg fyrir allan misskilning. Þannig fara enskumælandi sérfræðingar stjórnvalda yfir alla matseðla tíu þúsund veitingastaða f miðborginni til að leiðrétta villur og koma í veg fyrir að aðkomufólk geri grín að málfarskunnáttu heimamanna. Úrtökuæfingar fyrir U17-lcindslið íslands Næstu stjömur landsins Allir bestu knattspyrnumenn landsins undir 17 ára aldri munu taka þátt í úrtökuæfingum lands- liðsþjálfarans Luka Kostic í Fífunni í Kópavogi um helgina. Alls munu 37 einstaklingar reyna að komast í mjúkinn hjá Luka og gullið tæki- færi gefst til að fylgjast með næstu stjörnum landsins reyna með sér. Koma þeir flestir úr liðum á höfuð- borgarsvæðinu en allnokkrir eru að norðan og minnst einn kemur frá Þrótti Neskaupstað. Björgvin bjartur Björgvin Björgvinsson skíða- kappi náði fínum árangri á móti sem fram fór á Nýja-Sjá- landi en þar endaði hann í öðru sæti í tvíkeppni í svigi og risasvigi. Hefur vertíðin byrjað vel hjá Dalvíkingnum og lofar góðu fyrir stærri mót vetrarins sem senn fara í gang. Tveir aðrir íslenskir keppendur, Gísli Rafn Guðmundsson og Árni Þorvaldsson, tóku einnig þátt og enduðu í 16. og 21. sæti. Vonir í Madrid Borgarstjóri og fyrirmenn í Madrid á Spáni hafa lagt inn formlega umsókn um að þar verði haldnir Ólympíuleik- arnir árið 2016 en London varð hlutskarpari en spænska höfuðborgin þegar kemur að þarnæstu Ólympíuleikum árið 2012. Ólíklegt verður að telja að Spánverjarnir hreppi hnossið þvi Alþjóðaólympíunefndin reynir að hafa leikana í mis- munandi heimsálfum með fjögurra ára millibili. Madrid geldur fyrir það, hversu frábær sem aðstaðan verður. Vetrarfrí golfara Golfáhugamenn fá að lík- indum að sjá Tiger Woods og fleiri af helstu stjörnum golfsins i síðasta sinn nú um helgina á Tour-meistaramót- inu bandariska en að því loknu taka langflestir atvinnukylf- ingar sér gott vetrarfrí og taka í besta falli þátt í stöku góðgerðamótum. Woods mun reyndar spila á einu móti til eftir tvær vikur en síðan hverfur hann sjónum fram í desember þegar keppnistíma- bilið vestanhafs hefst að nýju. Fáránleg ákæra Fjölmargir atvinnumenn og fé- lagar körfuboltastjörnunnar Is- iah Thomas hafa komið honum til varnar að undanförnu en hann hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni meðan hann þjálfaði New York Knicks. Er konan sem ákærir talin hafa afar veikan málstað en réttar- haldið hófst i vikunni.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.