blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 24
32
FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007
blaðiö
LÍFSSTÍLLH ELGIN
helgin@bladid.net
Þetta er viðburður í bænum og mikil stemning í kringum
hann. Við höfum fengið 500-800 manns. Meðan varnarliðið
var sem fjölmennast uppi á velli fengum við reyndar á annað
þúsund manns í réttirnar. Þeir mættu alveg í rútuförmum.
UM HELGINA
• Dillandi naflar
íslandsmeistarakeppnin
í magadansi fer fram í
Salnum í Kópavogi laug-
ardaginn 15. september
kl. 20. Þetta er í sjötta
sinn sem keppnin er
haldin og að þessu sinni
verður keppt í tveimur
flokkum, áhugamanna-
flokki og atvinnudansaraflokki.
Mikið verður um dýrðir og
óvæntar uppákomur. Húsið
verður opnað kl. 19 og er miða-
verð ^500 kr.
• Færeyskir tónleikar
Blásið verður til færeyskra tón-
leika í glerhúsinu við Norræna
húsið laugardaginn 15. september
kl. 22. Fram koma Jensina Olsen,
Budam, Jógvan og fzafold. Kynnir
er Carl Johan Jensen rithöfundur.
Tónleikarnir eru í boði sendifull-
trúa Færeyja á fslandi, Norræna
hússins í Færeyjum og Norræna
hússins á íslandi.
• SSSól á Nasa
Hljómsveitin SSSól heldur stór-
dansleik á skemmtistaðnum
NASA við Austurvöll laugardag-
inn 15. september kl. 13. Miðaverð
er 1500 krónur og aldurstakmark
20 ára.
• Rokk í Rockville
Rockville Festival fer fram á
skemmtistaðnum Paddy's í Reykja-
nesbæ dagana 13.-15. september.
Meðal þeirra sveita sem fram
koma í kvöld og annað kvöld eru
Lokbrá, Dr. Spock, Hellvar og Jan
Mayen. Nánari upplýsingar má
LÁTTU VITA
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Klassískir og fallegir leður-
mokkasínur með feðursóla í
stœrðum 41-46 á AÐEINS
kr. 4.350,-
Fínir herraskór í stœrðum
40-45 á AÐEINS
kr. 4.885,-
Y' Misty skór
Laugavegi 178 1
Sími 551 20 70
^Góð þjónusta - fagleg ráðgjö^^
náfgast á heimasíðunni my-
space.com/rockvillekeflavik.
• Styrktartónleikar
Rjómans
Vefritið Rjóminn stendur
fyrir tónleikum til styrktar
Barna- og unglingageð-
deild Landspítalans á
hljómleikastaðnum Organ
á föstudagskvöld. Fram koma
hljómsveitirnar Coral, Hellvar,
Vicky Pollard og April. Fyrsta
hljómsveitin stígur á svið kl. 22.
Aðgangseyrir er 500 kr.
• Megas í Edinborgarhúsinu
Megas og Senuþjófarnir halda
tónleika í Edinborgarhúsinu á
ísafirði á laugardagskvöld. Leikin
verður tónlist af nýrri hljómskífu
þeirra félaga auk eldra efnis
meistarans.
+ mynd
• Dansað uppi á dekki
Barcode og Breakbeat.is standa
fyrir danstónlistartjútti á Humar-
skipinu í Reykjavíkurhöfn laugar-
dagskvöldið 15. september. Partíið
verður á öllum þremur hæðum
skipsins og ráða mismunandi
tónhstarstefnur ríkjum á hverri
hæð fyrir sig.
• Finnskt tröllarokk
Rokkhljómsveitin Finntroll leikur
á tvennum tónleikum í Reykja-
vík helgina 15. og 16. september.
Sveitin leikur á Grand Rokk á laug-
ardag ásamt Sólstöfum, Drepi og
Trössum. Húsið verður opnað kl.
21:30 og stígur fyrsta band á svið
kl. 22:30. Miðaverð er 1500 krónur
og aldurstakmark 20 ár.
Sunnudaginn 16. september
leikur hún á Gauki á Stöng ásamt
Severed Crotch, Ask the Slave og
Dust Cap. Húsið verður opnað
ld. 18, miðaverð er 1500 krónur og
ekkert aldurstakmark.
• Jethro Tull í Háskólabíói
Hin goðsagnakennda rokkhljóm-
sveit Jethro Tull kemur fram á
tónleikum í Háskólabíói í kvöld
og annað kvöld. Tónleikarnir hefj-
ast bæði kvöldin kl. 20.
• Franz Ferdinand á fslandi
Hljómsveitin vinsæla Franz Ferd-
inand heldur tvenna tónleika í
Reykjavík um helgina. Uppselt er
á þá hvoratveggju.
• Hausttónleikar Harðar Torfa
Söngvaskáldið Hörður Torfason
heldur árlega haustónleika sína
í Borgarleikhúsinu föstudags-
kvöldið 14. september. Fyrri
tónleikarnir verða kl. 19:30 en þeir
seinni kl. 22.
(Diza nýr stíll
Prjónafatnaður í úrvali
Nýtt kortatímabil
Laugavegi 44
Sími 561 4000
www.diza.is
Opið virka daga 10.30-18.00, laugardaga 11-16
Gaman í réttunum Fólk á öllum
aldri fjölmennir alla jafna í Þórkötlu-
staðarétt í Grindavík og skemmtir
sér hið besta. Réttað verður víða í
landnámi Ingólfs um helgina.
Réttir víða í landnámi Ingólfs
Fjölmenni í réttunum
Búast má við fjölmenni
í Þórkötlustaðarétt í
Grindavíká morgun.
Jafnframt verður boðið
upp á fræðslugöngu um
gömul sel í nágrenninu
og ratleik fyrir yngstu
kynslóðina.
Eftir Einar Örn Jónsson
einar.jonsson@bladid.net
Réttað verður á nokkrum stöðum
í landnámi Ingólfs um helgina,
meðal annars í Þórkötlustaðarétt
í Grindavík en þar hefur þátttaka
verið mikil á undanförnum árum.
„Þetta er viðburður í bænum og
mikil stemning í kringum hann.
Við höfum fengið 500-800 manns.
Meðan varnarliðið var sem fjölmenn-
ast uppi á velli fengum við reyndar
á annað þúsund manns í réttirnar.
Þeir mættu alveg í rútuförmum,"
segir Óskar Sævarsson, ferðamála-
og markaðsfulltrúi Grindavíkur.
Þrátt fyrir fjölmennið ættu allir
að komast fyrir og lítil hætta á að
gestir þvælist fyrir. „Við erum búin
að útbúa aðstöðu þarna þar sem fólk
getur staðið uppi á stórum palli og
svo er réttin hönnuð þannig að það
er alls staðar hægt að raða sér upp í
kringum hana,“ segir hann.
Auk mannfólksins verður vita-
skuld einnig nóg af fé í réttunum.
„Við erum með um 1600 hausa á
fjalli þanig að þetta eru alveg ágæt-
isréttir," segir Oskar.
Ratleikur í réttunum
Efnt verður til ratleiks fyrir alla
fjölskylduna í nágrenni réttanna
en það hefur ekki verið gert áður.
Leikurinn gengur út á að leita að vís-
bendingum og svara léttum spurn-
ingum sem tengjast sauðkindinni. I
verðlaun verður ýmislegt sem teng-
ist sauðkindinni svo sem lopavett-
lingar og lopapeysur.
Saltfisksetrið og Grindavíkurbær
bjóða einnig upp á þjóðháttakynn-
ingu á laugardag í samvinnu við
SJF Menningarmiðlun og ferðafé-
lagið FERLIR. Lagt verður af stað
kl. 11 með rútu frá Saltfisksetrinu í
Grindavík og ekið að Méltunnuklifi
við ísólfsskálaveg þaðan sem gengið
verður að Hraunseli. Leiðsögumenn
verða með í för og fræða gesti og
gangandi um seljabúskapinn og það
sem fyrir augu ber á leiðinni.
Á annað hundrað selja
„Sel og selstaða var hvergi mik-
ilvægara á landinu en hér á skag-
anum því að við höfum náttúrlega
engin tún, ekkert undirlendi. Við
þurftum að nýta alla bletti sem við
mögulega gátum á skaganum og hér
voru á annað hundrað selja þegar
mest var,“ segir Óskar og bætir við
að þetta verði mjög áhugaverð ferð
um forna lífshætti.
„Þetta á síðan að smella þannig
saman að þeir sem fara í gönguna
koma beint í réttirnar rétt áður en
féð verður rekið þangað inn,“ segir
Óskar.
Ráðgert er að dregið verði í dilka
upp úr kl. 14. Boðið verður upp á
veitingar og harmóníkuspil í stóru
tjaldi við Auðunsholt.
HELSTU RÉTTIR í LANDNÁMIINGÓLFS ARNARSONAR
Þórkötlustaðarétt í Grindavik laugardag 15. sept. kl. 14.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit laugardag 15. sept. upp úr hádegi.
Húsmúlarétt við Kolviðarhól laugardag 15. sept. upp úr hádegi.
Selvogsrétt í Selvogi sunnudag 16. sept. kl.9.
Fossvallarétt við Lækjarbotna sunnudag 16. sept. kl. 11.
Hraðastaðarétt í Mosfellsdal sunnudag 16. sept. um hádegi.
Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós sunnudag 16. sept. um kl. 16.
Selflatarrétt i Grafningi mánudag 17. sept. kl. 09.
Ölfusréttir í Ölfusi mánudag 17. sept. kl. 14.