blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 25

blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 25
blaöió FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 33 Selfyssingar fagna 60 ára afmæli Afmælishátíð alla helgina Selfyssingar fagna 60 ára af- mæli bæjarins með viðamikilli afmælisdagskrá alla helgina og er ókeypis aðgangur að nær öllum við- burðum. Hátíðin hefst í dag með því að gestum og gangandi verður boðið upp á íslenska kjötsúpu fyrir framan verslun Bónuss við Austur- veg. Súpuveislan hefst kl. 15 og eru allir velkomnir. Kjartan Björnsson, formaður afmælisnefndar, segir að það eigi vel við að bjóða upp á kjöt- súpu enda Selfoss í miklu landbún- aðarhéraði. „Það er uppskerutími núna og sláturtíð að byrja þannig að þetta á vel við á þessum tíma,“ segir hann. Af öðrum uppákomum má nefna menningardagskrá á Hótel Selfossi á föstudags- og laugardagskvöld þar sem listamenn frá Selfossi eru í aðal- hlutverki, sýningar af ýmsu tagi og gönguferðir. Einn af hápunktunum verður án efa brúarsöngur undir stjórn Árna Johnsens, tengdasonar Selfoss, við Ölfusárbrú á laugardags- kvöld. „Við ætlum líka að taka þar á móti liði Selfoss í knattspyrnu. Ef þeim gengur vel í deildinni á laugar- dag komast þeir upp um deild og þá munum við samfagna með þeim,“ segir Kjartan. Að brúarsöngnum loknum verður flugeldasýning og síðan slegið upp brúarballi á hótelinu. Kjartan gerir ráð fyrir að gestir verði flestir í bænum á laugar- dagskvöld en annars má búast við talsverðri umferð alla helgina. Auk heimamanna leggja án efa margir gestir leið sína i bæinn, til dæmis úr sumarbústaðabyggðum í nágrenninu. „Við leggjum einmitt mikið upp úr því að fólkið úr sumarbústöðunum komi og Sunnlendingar allir. Við erum með 20.000 til 30.000 manna byggð fyrir ofan bæinn um hverja einustu helgi og nánast alla vikuna á sumrin og fram á haust og þetta fólk setur svip sinn á bæjarbraginn,“ segir Kjartan. „Við leggjum til að heimamenn komi gangandi í miðbæinn og gest- komandi leggi á bak við Miðgarð, við skólana og á ýmsum stöðum í útjaðri bæjarins þannig að það séu ekki allir að troðast á bílum í mið- bæinn,“ segir Kjartan Björnsson að lokum. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast í heild sinni á vefnum sudurland.is. UA/I HELGINA • Masterclass í þolfimi Haldinn verður svo kallaður Masterclass-tími í þolfimi í World Class í Laugum föstu- daginn 14. september kl. 18:30. Plötusnúður verður hinn eini sanni Páll Óskar. Viðburðurinn er liður í Fusion Fitness Festival og rennur ágóði til styrktar sam- tökunum Blátt áfram. • Skák í Bolungarvík Nokkrir af bestu skákmeist- urum landsins taka þátt í Hraðskákmóti íslands 2007 sem hefst í íþróttamiðstöðinni Árbæ í Bolungarvík laugardaginn 15. september kl. 13. Að móti loknu mun Grímur Atlason bæjarstjóri troða upp ásamt félögum sínum í Kjallaranum. • Gamlar blaðaljósmyndir Sýningin Daagblaðið Víísir! 1960- 2000 verður opnuð í Ljósmynda- safni Reykjavíkur laugardaginri 15. september kl. 16. Á sýning- unni eru ljósmyndir úr blaða- ljósmyndasafni 365 miðla sem Ljósmyndasafn Reykjavíkur tók til varðveislu sumarið 2006. • Leiðsögn um Ó-Náttúru Ósk Vilhjálmsdóttir, mynd- listar- og leiðsögumaður, verður með leiðsögn um sýninguna Ó-Náttúru í Listasafni Islands á sunnudag kl. 14.1 ferð sinni um sýninguna mun Ósk lesa í verkin og túlka á persónulegan hátt þau skilaboð er felast í völdum verkum er varða sam- band manns og náttúru. • Harmóníkuball Harmonikkufélag Reykjavíkur stendur fyrir dansleik í Húna- búð í Reykjavík laugardaginn 15. september kl. 22. Húnabúð er í Skeifunni 11 (sama húsi og þvottahúsið Fönn). • Skáldað í tré Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri opnar sýningu Félags trérennismiða á íslandi í Ráðhúsi Reykjavíkur laugar- daginn 15. september. Sýningin sem ber yfirskriftina Skáldað í tré - handverkshefð í hönnun stendur til 30. september. \oragð sem aldrei breg^

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.