blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 27
blaöiö
FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007
35
ORÐLAUSTÓNLIST
tonlist@bladid.net
Þetta var díll sem við vildum ekki gera. Við
viljum eiga okkar tónlist aðeins lengur í
staðinn fyrir að byrja á því að henda henni í
stórfyrirtæki og eiga ekki réttinn.
Vefritið Rjóminn.is heldur tónleikaveislu
Tónleikar til styrktar BUGL
Vefritið Rjóminn.is heldur i
kvöld tónleika til styktar Barna- og
unglingageðdeild Landspítalans á
skemmtistaðnum Organ. Hljóm-
sveitirnar Coral, Hellvar, April og
Vicky Pollard munu stíga á stokk,
en síðastnefnda sveitin hefur meðal
annars vakið á sér athygli þar sem
meðlimir sveitarinnar eru fjórar
stúlkur og einn piltur sem hefur
það hlutverk að berja á húðir.
„BUGL hefur staðið höllum fæti
fjárhagslega og við vildum leggja
þeim lið á einhvern hátt. Allar
hljómsveitirnar tóku líka sérstak-
lega vel í þetta og því gekk bara
eins og i sögu að undirbúa þetta,“
segir Berglind Ingibertsdóttir, einn
skipuleggjenda tónleikanna.
„Rjóminn hefur verið svolítið
duglegur í þvi að halda styrktar-
tónleika og hélt meðal annars
þrenna tónleika í fyrra, til dæmis
fyrir Barnaspítala Hringsins og
Mæðrastyrksnefnd.“
Húsið verður opnað klukkan 19
en fyrsta sveitin fer á svið klukkan
22. Miðaverð er krónur 500 og mun
sú upphæð renna óskert til BUGL
þar sem peningarnir verða notaðir
í forvarnaverkefni.
halldora@bladid.net
Hljómsveitin Coral Coral er meðal
þeirra sveita sem spila munu á styrktar-
tónleikum Rjómans á Organ í kvöld.
Fleiri sveitir
til Rotterdam
Fleiri íslenskar hljómsveitir
hafa verið bókaðar á tónlistar- og
menningarviðburðinn Reykja-
vík to Rotterdam sem fram fer í
Hollandi dagana 21.-24. nóvember
næstkomandi. Meðal þeirra eru
hljómsveitin Amiina, Mr.Silla and
Mongoose, Hafdís Huld, Reykjavík!,
Seabear og Lost in Hildurness, en
þess má geta að Amiina leikur í
opnunaratriði hátíðarinnar sem
fram fer í stærstu kirkju Rotterdam,
Laurens-kirkjunni.
Áður höfðu hljómsveitirnar
Múm, Ghostigital, Rökkurró, Evil
Madness, Apparat Organ Quartet,
HAM og Rass boðað komu sína á
hátíðina. hþ
BlaölÓ/Frlkkl
Hljómsveitin Ourlives hafnaði samningi við Columbia
Neituðu díl
við djöfulinn
COLUMBIA RECORDS
Amy berst
viö lotugræðgi
Átröskun Amy Winehouse er
alvarlegra vandamál en eiturlyfja-
neysla hennar að sögn vina söng-
konunnar. Winehouse hefur bar-
ist við lotugræðgi síðan hún var
unglingur og segir vinur hennar,
Alex Foden, að þar sé stórt vanda-
mál á ferðinni sem þurfi að takast
á við samhliða fíkninni. Blake Fi-
edler, eiginmaður söngkonunnar,
er sagður vera búinn að gefast
upp á því að reyna að hjálpa konu
sinni og rífast þau mikið vegna
lotugræðginnar. Foden kennir
álaginu sem frægðinni fylgir um
ástand vinkonu sinnar. „Þegar
Amy var að verða fræg þá var hún
í stærð 10 og samt voru allir að
tala um hvað hún væri feit. Síðan
þá hefur hún gert allt til þess að
grenna sig.“
Milljónir vilja
Led Zeppe in
Aðdáendur bíða nú spenntir eftir
endurkomu Led Zeppelin en um
20 milljónir manna hafa reynt
að verða sér úti um miða síðan
tilkynnt var um tónleikahaldið í
gær. Það jafngildir um þriðjungi
bresku þjóðarinnar ef rétt reyn-
ist. Þessi mikla aðsókn í miðana
hefur gert það að verkum að vef-
síðan þar sem hægt er að kaupa
miða hefur hrunið nokkrum
sinnum vegna of mikils álags en
um 80.000 manns reyna að kom-
ast inn á síðuna á hverri mínútu.
Skipuleggjendur tónleikanna Iofa
bót og betrun og ætla að reyna
að kippa síðunni í lag sem allra
fyrst svo að sem flestir geti orðið
sér úti um miða. Tónleikarnir
verða haldnir í Lundúnum þann
26. nóvember næstkomandi í O2
Center en staðurinn tekur ekki
nema 23.000 manns og því er
nokkuð ljóst að slegist verður um
sæti.
Hljómsveitin Ourlives
heldur til Bretlands í dag,
en sveitin neitaði nýlega
að vera étin eins og
sviðakjammi.
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@bladid.net
„Það tók rosalega á fyrir okkur að
segja nei við svona samningi. Samn-
ingurinn situr hérna uppi á hillu og
ég les hann annan hvern dag,“ segir
Jón Björn Árnason, bassaleikari
hljómsveitarinnar Ourlives.
Sveitin neitaði nýverið útgáfu-
samningi við útgáfurisann Colum-
bia. Samningurinn hljóðaði upp á
fjórar breiðskífur og spannaði sjö
ár. „Þetta var díll sem við vildum
ekki gera. Við viljum eiga okkar
tónlist aðeins lengur í staðinn fyrir
að byrja á því að henda henni í stór-
fyrirtæki og eiga ekki réttinn “
Hefði étið sveitina
„Þetta var rosalegt fyrir lítið band
að segja nei við sjö ára samningi
við útgáfufyrirtæki," segir Jón
Björn, sem vill ekki gera mikið úr
málinu. „Við erum ekki að fara
lengra en við teljum okkar hafa efni
á og öskra eitthvað í útlöndum. En
við sáum bara ekki að við værum
tilbúnir í að gera einhvern samn-
W. Útgáfan var stofnuð árið
~ 1888, en er nú í eigu Sony
BMG.
► Meðal listamanna hjá útgáf-
unni eru David Bowie, Mar-
iah Carey og Manic Street
Preachers.
► Oft er sagt um útgáfurisa
á borð við Columbia að
listamennirnir þurfi að
selja þeim sál sína líkt og
djöflinum.
ing upp á sjö ár við fyrirtæki sem
myndi eiga okkur. Þeir hefðu bara
étið okkur á íslenskan máta, eins
og sviðakjamma. Við vorum ekki
að fíla það. Við vildum vera eins og
hangikjöt og biða aðeins.“
Upptökustjórinn Ben Grosse
hafði milligöngu um samning-
inn, en hann hugðist starfa með
Ourlives. Grosse hefur unnið með
fjölmörgum sveitum á borð við
Sevendust, Slipknot og Marilyn
Manson.
„Við viljum minnst vera að öskra
þetta sjálfir, en þú ert að spyrja
mig,“ segir Jón Björn, myrkur í
máli. „Hann kom hingað ásamt
mönnum og við spiluðum fyrir
hann persónulega. Svo tókum við
samningaviðræður og eftir það
sáum við okkur ekki fært að gera
neitt í þessu. Þetta var einfaldlega
allt of leiðinlegt og bandarískt fyrir
okkur.“
Jón segir sveitina vilja gefa
fyrstu skífuna út sjálf. „Maður
verður bara að hafa bein í nefinu
og standa við það sem maður vill,“
segir hann. „Okkur langar helst að
gefa sjálfir út fyrstu plötuna. Það
er draumurinn að eiga réttinn af
fyrstu plötunni. Þar liggur okkar
þrá, að byrja ekki á útlöndum, en
það hefur bara einhvern veginn
æxlast öðruvísi."
Til Bretlands í dag
Ourlives er ekki af baki dottin,
en nokkur útgáfufyrirtæki erlendis
hafa sýnt sveitinni áhuga.
„Þetta spyrst út í bransanum.
Strax vikuna eftir vorum við búnir
að fá þrjár hringingar. Við erum
bara bandið sem sagði nei við Col-
umbia,“ segir Jón Björn. Ourlives
heldur til Bretlands í tónleikaferða-
lag í dag. „Við erum á leiðinni út í
enn eina tónleikaferðina og mark-
miðið er að spila á 14 tónleikum.
Við komum meðal annars fram
í Bristol, London, Manchester, Li-
verpool. Við förum í raun bara um
allt svæðið í kringum Manchester,
London og Liverpool.“
Útgáfa
óskast
Hljómsveitin Hellvar
sækir Bandaríkin
heim í lok mánaðar
Hljómsveitin Hellvar hyggst
bregða undir sig betri fætinum í
lok mánaðarins og halda til Amer-
íku þar sem til stendur að leika á
þrennum tónleikum og í útvarps-
þætti. Hljómsveitina stofnuðu þau
Heiða Eiríksdóttir, betur þekkt sem
Heiða í Unun, og Elvar Sævarsson,
en nýverið gengu þau Alexandra Sig-
urðardóttir og Sverrir Ásmundsson
til liðs við sveitina.
„Þegar við Heiða vorum við nám
í Berlín kynntumst við amerískri
hljómsveit sem heitir Zahnarzt. Ári
eftir að við komum heim frá Berlín
skipulögðum við tónleikaferðalag
fyrir Hellvar og Zahnarzt og nú
eru þau í rauninni að launa okkur
greiðann og skipuleggja tónleika-
ferðalag fyrir okkur i sínu nánasta
umhverfi,“ segir gitarleikarinn El-
var Sævarsson.
11 laga plata tilbúin
Af hljómsveitinni er það annars
að frétta að ellefu laga plata er til-
búin, en sakir útgefandaleysis hefur
hún ekki enn litið dagsins ljós.
„Við erum ekki komin með útgef-
anda. Platan er samt tilbúin og við
erum reyndar búin að sitja lengi á
þessum lögum. Við erum bara ekki
búin að vera nógu dugleg að spila
hér á landi, þannig að það er svo
sem eðlilegt að við séum ekki búin
að koma ár okkar betur fyrir borð
hérna á íslandi. Við höfum verið
duglegri erlendis. Það stendur þó til
verða duglegri hérna heima. Annars
auglýsum við bara eftir útgefanda
hér með,“ segir Elvar að lokum.
halldora@bladid.net
Sendibílar
til leigu