blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 28
36
FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007
blaóiö
DAGSKRÁ
Hvað veistu um Helen Hunt?
1. Hver var mótleikari hennar í þáttunum Mad About You?
2. Fyrir leik í hvaða mynd fékk hún Óskarsverðlaun?
3. í hvaða mynd lék hún með Kevin Spacey og Haley Joel Osment?
Svör
pje/vucy ;| Aej £
s}39 ji se pooo sy 2
jesray |ned 't
RAS 1 92,4 / 93,5 • RÁS 2 90,1 / 99,9 • REYKJAVÍK FM 101,5 • BYLGJAN 98,9 • FM 95,7 • X-IÐ 97,7 • ÚTVARP SAGA 99,4 • LÉTTBYLGJAN 96,7 • GULLBYLGJAN 90,9 • R0NDÓ 87,7
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
OHrútur
(21. mars-19. aprfl)
Þetta ergóðurdagurtil aö byrja á nýju verkefni,
sérstaklega ef það er stórt og þarfnast mikillar vinnu.
Þettafervel.
©Naut
(20.april-20.ma0
Þér kemur betur saman við samstarfsfólk þitt en oft
áöur og vinnan gengur mun betur. Reyndu að láta
þetta endast.
©Tvíburar
(21. maí-21. júnO
Þú finnur fyrir gríðarlega mikilli orku sem þú veist
ekki hvað þú átt að gera við. Reyndu að beina henni á
réttar brautir.
®Krabbi
(22. júnf-22. júlO
Ástandið er ennþá örlítið viðkvæmt Haltu í góða skap-
ið og bráðum verður þetta timabil bara minningar.
®Ljón
(23. júlf- 22. ágúst)
Þú ert í skapi fyrir góðan félagsskap og svo vel vill til
að það eru vinir þínir líka. Hittist og njótið nærveru
hvert annars.
Bjarga nefndir heiminum?
Formaður SFR, Árni Tómas Jónsson,
sagði í fréttum RÚV fyrr í vikunni
að launamunur kynjanna væri löngu
orðinn ljós og að í staðinn fyrir að gera
það sem stjórnvöld gera alltaf - að
stofna nefndir- væri kominn tími á að
gera eitthvað í málinu til tilbreytingar.
Mikið er ég sammála þessu. Það er
svo til alveg sama hvaða vandamál
stjórnvöld ákveða að leysa, alltaf er
sama viðkvæðið: Við ætlum að stofna
nefnd!
Vissulega er ekkert óeðlilegt við það
í sjálfu sér ef fyrsta skrefið í úrlausn
flókinna deilumála er að stofna nefnd
til að fara yfir málið og leita réttu lausn-
«°£5£i
anna. En vandamálið með stjórnvöld
er að þau grípa alltaf í þennan frasa
- að þau ætli að stofna nefnd - sem
þau síðan gera en svo breytist ekkert.
Mín tillaga er sú að næst þegar
stjórnvöld stofna nefnd bíði þau með
yíirlýsingarnar þangað til nefndin
hefur lokið störfum og ákveðið er
hvað eigi að gera í málunum. Það er
nefnilega lítil hughreysting í því fyrir
almenning að vita að í fundarher-
bergjum úti í bæ sitji karlar og konur
yfir kaffibolla og kleinum og ræði
vandamál samfélagsins.
Svo er líka dálítið svekkjandi að
þetta er bara lausn sem stjórnvöld
Hildur Edda Einarsdóttir
er lítið fyrir nefndir.
| FJÖLMIÐLAR hilduredda@bladid.net |
geta gripið til þegar þeim er gert að leysa vanda-
mál - að segjast ætla að stofna nefnd. Það væri
aldeilis huggulegt ef sauðsvartur almúginn gæti
gert slíkt hið sama og sagt: Borgaði ég ekki mína
skatta? Skulda ég námslán? Hafið ekki áhyggjur,
ég er búinn að stofna tvær nefndir, annars vegar
með fjölskyldunni og hins vegar vinahópnum.
Við ætlum að ræða þetta af mikilli ábyrgð.
©
•i M*yia
(23. ágúst-22. september)
Ræddu við einhvem náinn þér um sameiginleg viðhorf
og áætlanir fyrir framtíðina. Þetta fer hægt af stað en
verðuráhugavert.
®Vog
(23. september-23.október)
Þetta er frábær dagur fyrir veislur eða einhvers konar
hitting. Þú átt auðvelt með að kynnast nýju fólki og átt
eftir að skemmta þér vel.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
Þú og þínir samstarfsfélagar þurfiö aö ræða saman um
verkefni sem framundan er. Þið þurfið að eyða tíma í
þetta áður en lausnin birtist ykkur.
©Bogmaður
(22. núvember-21. desember)
Fólk leitar til þín eftir svörum við einhverju sem því
liggur á hjarta. Gerðu þitt besta til að hjálpa þeim.
©Steingeit
(22. desember-19. janúar)
Þú þarft á allri þinni orku að halda þessa dagana. Góðu
fréttirnar eru þær að þetta er bara timabil og fljótlega
verðurallt eðlilegt aftur.
@Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
Þú þarft að skoða ákveðin þersónuleg vandamál sem
íþyngja þér. Þú hefur veriö of upptekin/n til að vinna í
sjálfri/um þér en núna er rétti tíminn.
©Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
Þetta er góður dagur til að fyrirgefa, sama hve erfitt
það reynist vera. Þú ættir að gera þetta þin vegna, en
ekki vegna annarra.
SJÓNVARPIÐ
09.00 HM i fótbolta kvenna
Bein útsending frá HM
kvenna í knattspyrnu í
Kína. Svíþjóð - Bandarikin.
12.00 HM i fótbolta kvenna
Bein útsending frá HM
kvenna í knattspyrnu í
Kína. England og Þýska-
land eigast við að þessu
sinni.
14.00 HM í fótbolta kvenna (e)
(Svíþjóð - Bandaríkin)
16.35 14-2 (e)
f þættinum er fjallað um
fótboltasumarið frá ýmsum
hliðum.
17.05 Leiðarljós
(Guiding Light)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Músahús Mikka (23:28)
18.23 Strákurinn (2:6) (e)
18.30 Ungar ofurhetjur (18:26)
19.00 Fréttir
19.30 Veður
19.35 Kastljós
20.10 Útsvar
24 stærstu bæjarfélög
landsins keppa sín á milli í
skemmtilegum spurninga-
leik. Sigmar Guðmundsson
og Þóra Arnórsdóttir
stýra þættinum. Dómari
og spurningahöfundur er
Ólafur Bjarni Guðnason.
Útsendingu stjórnar Helgi
Jóhannesson.
21.05 Doktor T og konurnar
(Dr. T and the Women)
Bandarísk biómynd frá
2000. Kvensjúkdómalækn-
irinn Dr. T í Dallas sinnir
mörgum efnuðustu konum
Texas og lifir Ijúfu lífi en
það syrtir í álinn þegar
konan hans fær taugaáfall
og er lögð inn á geðspítala.
23.05 Wallander - Fyrir frostið
(Wallander: Innan frosten)
Sænsk sakamálamynd
frá 2005. Kurt Wallander
rannsóknarlögreglumaður
í Ystad á Skáni reynir að
hafa uppi á morðingja
sem drepur dýr og menn á
hrottafenginn hátt.
00.35 Frægðin kallar (e)
(Almost Famous)
02.35 Utvarpsfréttir í
dagskrárlok
STÖÐ2
07.00 Barnatími Stöðvar 2
08.10 Oprah
08.55 f fínu formi 2005
09.10 Bold and the Beautiful
09.30 Wings of Love (20:120)
10.15 Sisters (7:24)
11.00 Whose Line Is it Anyway?
11.25 Örlagadagurinn (5:14)
12.00 Hádegisfréttir
12.45 Nágrannar
13.10 Forboðin fegurð (69:114)
13.55 Forboðin fegurð (70:114)
14.40 Lífsaugað (e)
15.20 Blue Collar
15.55 Barnatími Stöðvar 2
17.30 Bold and the Beautiful
17.55 Nágrannar
18.20 fsland i dag og veður
18.30 Fréttir
19.25 The Simpsons (17:22)
19.50 Friends (8:24)
20.15 Tekinn 2 (1:14)
Önnur sería hinnar geysi-
vinsælu þáttaraðar Tekinn
þar sem Auðunn Blöndal
fetar í fótspor Ashton
Kutcher og hrekkir fræga
fólkið á óborganlegan hátt.
Fyrstu fórnarlömbin hans
Audda eru Laddi sem þarf
að vinna með skelfilegum
markaðsstjóra og Jói Fel
sem gerir þau mistök að
leggja í stæði fyrir fatlaða.
20.40 Stelpurnar(4:10)
Stelpurnar sprenghlægi-
legu eru snúnar aftur í
þriðja sinn og hafa aldrei
verið fyndnari.
21.05 THE 40 YEAR OLD VIRGIN
Kolsvört gamanmynd með
grínaranum Steve Carell
og Paul Rudd í aðalhlut-
verkum. Andy Stitzer hefur
aldrei verið laginn við að
næla sér í konur og nú er
svo komið að hann er orð-
inn fertugur og hefur aldrei
verið með konu. Félagar
hans taka að sér það verk-
efni að finna honum konu.
23.00 Shallow Grave
00.30 50 First Dates
02.10 Dutch
03.55 Blue Collar
04.20 Tekinn 2 (1:14)
04.45 Stelpurnar(4:10)
05.10 Fréttir og ísland í dag (e)
06.20 Tónlistarmyndbönd
Q) SKJÁREINN
08.00
08.45
09.45
16.25
17.25
18.15
19.00
20.00
21.00
22.00
22.50
23.20
00.10
01.00
01.30
02.30
03.20
05.00
Dr. Phil (e)
Vörutorg
Óstöðvandi tónlist
Vörutorg
7th Heaven (e)
Dr. Phil
Friday Night Lights (e)
Það er stórleikur framund-
an gegn erkifjendunum
og bardaginn nær út fyrir
völlinn. Nýi leikstjórnand-
inn sýnir hvað hann getur
og Jason fær nýjan herberg-
isfélaga.
Charmed (10:22)
Leo fær það verkefni að
vernda norn sem býr yfir
upplýsingum sem gætu
grandað öllum djöflum.
Heillanornirnar gruna hana
um græsku og kunna illa
við að hýsa hana.
The Biggest Loser (8:12)
Nú veröur fylgst með hvern-
ig trúlofuðu pörunum sem
mættu til leiks í síðustu
viku gengur að halda sig
frá freistingunum heima
fyrir. Það par sem hefur
misst hærra hlutfall af heild-
arþyngd stendur uppi sem
sigurvegari.
Law&Order:
Criminal Intent (8:22)
Krakkarfinna illa útleikið
lík konu á bak við rusla-
gám og Logan og Barek
rannsaka málið. Þau grun-
ar að hún hafi verið burðar-
dýr með fíkniefni.
Backpackers (11:26)
Law & Order: SVU (e)
Tólf ára drengur er stung-
inn með hnífi á skólalóðinni.
Grunur fellur á eldri dreng
sem átti í slagsmálum við
hann viku fyrr.
House (e)
House og félagar hans
reyna að bjarga ungum
dreng sem segist vera til-
raunadýr hjá geimverum.
Andy Barker, P.l. (e)
George Michael:
The Road to Wembley (e)
Da Vinci’s Inquest (e)
Tvöfaldur JayLeno(e)
Vörutorg
SIRKUS
18.23 Fréttir
19.00 Hollyoaks (14:260)
19.30 Hollyoaks (15:260)
Hágæða bresk unglinga-
sápa sem segir frá lífi og
ástum íbúa Hollyoaks í
Chester.
20.00 Ren&Stimpy
Ren er taugatrekktur smá-
hundur og Stimpy er feitlag-
inn og vitgrannur köttur.
20.30 MTV Video Music
Awards 2007
Nú kemur í Ijós hvaða
tónlistarmyndbönd stóðu
upp úr á síðasta ári. Marg-
ir frægir tónlistarmenn
og leikarar koma fram
á þessari æsispennandi
verðlaunaafhendlngu.
22.00 IT S ALWAYS SUNNY IN
PHILADELPHIA
(Það er alltaf sól i
Fíladelfíu)
Skemmtileg gamanþátta-
röð sem fjallar um fjóra
félaga sem reka bar saman
en eru allir of sjálfumglaðir
til að geta unnið saman án
þess að það verði árekstrar
á milli þeirra.
22.25 Bones (17:21)
Neyðarástand skapast
þegarflæðirígömlum
kirkjugarði.
23.10 Life on Mars
00.05 Tónlistarmyndbönd
frá Popp TV
06.15
08.00
10.00
12.00
14.00
16.00
18.00
20.00
22.00
00.00
02.00
STÖÐ 2
Duplex
Dirty Dancing:
Havana Nights
Bridget Jones:
The Edge of Reason
Monster In Law
Duplex
Dirty Dancing:
Havana Nights
Bridget Jones:
The Edge of Reason
Monster In Law
Paid in Full
The List
8MM
.srtz/nSÝN
10.00 Ryder Cup kvenna i golfi
(Solheim Cup 2007)
18.10 PGATour2007 -
Highlights
(BMW Championship (Chic-
ago))
19.05 Það helsta í PGA-
mótaröðinni
19.30 Gillette World Sport 2007
iþróttir í lofti, láði og legi.
Fjölbreyttur þáttur þar sem
allar greinar íþrótta eru
teknar fyrir. Þáttur sem
sýndur hefur verið í árarað-
ir við miklar vinsældir.
20.00 Spænski boltinn
(La liga report)
Upphitun fyrir leiki helgar-
innar í spænska boltanum.
20.30 Meistaradeild Evrópu
fréttaþáttur
Vandaður fréttaþáttur um
allt það helsta sem er á
döfinni í þessari sterkustu
knattspyrnudeild heims.
21.00 World Supercross GP
2006-2007
(Sam Boyd Stadium)
22.00 World Series of Poker
($1,500 NoLimit Hold 'Em,
Las Vegas NV)
Á heimsmótaröðinni í
póker setjast snjöllustu
pókerspilarar heimsins að
spilaborðinu og keppa um
stórar fjárhæðir.
22.55 Ryder Cup kvenna i golfi
(Solheim Cup 2007)
sýnæ SYN 2
19.10 Premier League
(Liverpooi - Chelsea)
20.50 Premier League World
Nýr þáttur þar sem enska
úrvalsdeildin er skoðuð frá
ýmsum óvæntum hliðum.
21.20 Premier League Preview
(Leikir helgarinnar)
Vikulegur þáttur þar sem
hitað er upp fyrir leiki
helgarinnar.
21.50 PL Classic Matches
22.20 PL Classic Matches
22.50 Season Highlights
23.50 Premier League Preview
Ricky Gervais
Fyrstur til að ljúga
Breski grínistinn Ricky Gervais er um þessar mundir að vinna að sinni
eigin grínmynd sem mun bera heitið This Side of the Truth. Myndin mun
gerast í heimi þar sem enginn hefur nokkurn tímann logið. Aðalsögu-
hetjan, sem Gervais leikur sjálfur, vinnur í kvikmyndabransanum
og er við það að missa vinnunna. Þá dettur honum í hug að spinna
upp sögur sem eru ekki sannar og við það verður fyrsta lygi
sögunnar til. Upp frá því lýgur hann eins og óður maður og
er óhætt að lofa fjölmörgum vandræðalegum aðstæðum, en
slíkt hefur með tímanum orðið helsta vörumerki hins þekkta
grínista.
Gervais mun ekki láta sér nægja að leika í myndinni heldur
semur hann handritið ásamt því sem hann verður aðstoðarleikstjóri
myndarinnar en Matt Robinson mun einnig leikstýra.
Gervais sló fyrst í gegn með gamanþáttunum The Office en síðan
þá hefur hann birst sem gestaleikari í þáttum á borð við Alias og Simp-
sons ásamt því sem hann semur og leikur aðalhlutverkið í gaman-
þáttaröðinni Extras.
Ekkert hefur enn verið tilkynnt um hvenær kvikmyndin kemur fyr-
ir almenningssjónir en miðað við fyrri verk Gervais er óhætt að lofa
miklu fjöri og góðu gríni.
Stöð 2 klukkan 21.05
Hreinn sveinn
The 40 Year Old Virgin er kolsvört gam-
anmynd með grínaranum Steve Carell
og Paul Rudd í aðalhlutverkum. Andy
Stitzer hefur aldrei verið laginn við að
næla sér í konur og nú er svo komið að
hann er orðinn fertugur og hefur aldrei
verið með konu. Félagar hans taka að sér
að finna honum konu og það strax.
Stöð 2 Sirkus klukkan 22.00
Sólskin í Fíladelfíu
Skemmtileg gamanþáttaröð sem fjallar
um fjóra félaga sem reka bar saman en
eru allir of sjálfumglaðir til að geta unn-
ið saman án þess að það verði árekstrar á
milli þeirra. I þessum þætti ráða félagarn-
ir Ieikara til að kynna barinn en fljótlega
kemur í ljós að vinsældir hans hafa dalað
töluvert.