blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 30
38
FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007
blaóið
FÓLK
<olk@bladid.net
Hugsanlega, ann-
ars veit ég það
ekki alveg, ég var
ekki á staðnum!
Skilduð þið setuna eftir uppi?
Berglind Sunna er formaður nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð. Við
árlega busavígslu skólans höfðu nemendur ætlað sér að nota nýtt og ónotað
klósett til þess að niðurlægja busana, en rektor skólans, Sigurborg Matthíasdóttir,
brást hin versta við og braut postulínskamarinn í reiðikasti. Ekki hefur tekist að fá
staðfest hvort setan var uppi eða niðri.
HEYRST HEFUR
Hinn landsþekkti húmoristi
og blaðamaður, Jakob Bjarnar
Grétarsson, stoppaði stutt við á
Mannlífi, þangað sem hann var
ráðinn af félaga sínum Mikael
Torfasyni ekki alls fyrir löngu.
Sjálfur hafði Mikael verið
iátinn fara af blaðinu og
segja gárungar helstu
ástæðu þess að
Jakob vann aðeins
í þrjá daga hjá
tímaritinu þá, að
Mikael hafi ráðið
hann...
Umrnæli Geirs Jóns Þórissonar
yfirlögregluþjóns um að notast
ætti við trúboða í miðbænum,
sögð í lögreglubúningnum, eru
mönnum í fersku minni. Ekki
virðist þetta þó eina skiptið sem
Geir Jón berst of mikið á í klæða-
burði því þegar fundur borgar-
stjóra með reiðum íbúum Njáls-
götu var haldinn í vor, þeim sem
vildu ekki ógæfufólk í götuna,
gegndi Geir Jón stöðu fundar-
stjóra sem átti að heita hlutlaus.
Þó var Geir í búningnum góða
og að sögn sjónarvotta otaði
hann priki sínu í allar áttir og
tók upp málstað yfirvalda í mál-
inu. Á tímabili var hitinn víst
slíkur að sjálfur borgarstjórinn
þurfti að skerast í leikinn. Auk
þess var Geir Jón fyrstur á
mælendaskrá, sem telj-
ast verður undarlegt
þegar um fundarstjóra
er að ræða. Ætli
Geir Jón eigiekki
til önnur föt í
skápnum...?
Þeir voru ansi von-
sviknir starfsmenn hins ágæta
knattspyrnuvefs fotbolti.net á
mánudaginn. Ástæðan er sú að
þeir töldu sig hafa náð einka-
viðtali við skærustu stjörnu
norðurírska landsliðsins,
sjálfan David Healy. Höfðu
þeir mætt á blaðamannafund
liðsins og töldu sig hafa séð
Healy í hliðarherbergi, hvar þeir
nálguðust hann með bón um
viðtal. Leikmaðurinn sneri sér
þá að fjölmiðlafulltrúa
liðsins, sem gaf grænt
ljós á viðtalið. Þá kom
fyrsta spurningin:
„What is your full
name?“ Það
stóð ekki á
svarinu: „Ivan
SprouIe!“
h Dane Magnússon Hefur fundið fyrir
miklum fordómum í Reykjavík sem
hann fann ekki fyrir í Bolungarvik.
iJHl u 1 m
á
m
I
Dane Magnússon er formaður Félags anti-rasista
Vill fordómalaust ísland
Dane Magnússon fékk
nóg af fordómum og
stofnaði Félag anti-ras-
ista. Félagið fagnar eins
árs afmæli sínu um þessar
mundir og mun halda veg-
lega tónleika með ýmsum
uppákomum á Gauki
á Stöng þann 20. sept-
ember næstkomandi.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Dane fluttist hingað til lands frá
Jamaíku fyrir 16 árum. Viðkomu-
staðurinn var Bolungarvík, lítið
sjávarþorp á Vestfjörðum. Móðir
hans hafði farið þangað til að vinna
í fiski og kynntist íslenskum manni.
Dane bjó í Bolungarvík í fimm ár.
Leið vel fyrir vestan
„Það var fínt að vera fyrir vestan.
Það var litið um fordóma enda lítið
samfélag þar sem allir þekktu alla
og ég var nokkuð fljótur að samlag-
ast umhverfinu. Ég var þrettán ára
þegar ég kom og fór beint í 8. bekk.
Fimm árum síðar flutti ég suður til
Reykjavíkur og fann strax mikinn
MAÐURINN
Dane er 29 ára gamall
Hann á eina fimm ára gamla
dóttur
Dane er lærður lífvörður og
starfaði um skeið sem slík-
ur í Kanada
mun á andrúmsloftinu. Ég fann
fyrir miklum fordómum og hef
satt að segja lent í mörgu misjöfnu
á þessum ellefu árum sem ég hef
verið hér. Það hefur verið hrækt á
mig, ráðist á mig og ég skorinn með
eggvopni ásamt ýmislegu öðru sem
ég ætla ekki að tíunda hér. Allt er
þetta vegna heimskulegra fordóma
fólks í minn garð fyrir það eitt að
vera dökkur á hörund. í raun er það
hræðileg staðreynd, en allir þeir út-
lendingar sem ég þekki hér á landi
geta státað af að minnsta kosti einni
slíkri rasisma-sögu. Því viljum við í
félaginu breyta.“
Tóktilsinnaráða
„Ég lét þetta þó ekki buga mig. Ég
hafði lengi hugsað um að stofna ein-
hvers konar félag til að berjast gegn
þessum fordómum sem því miður
virðast vera til staðar á í slandi. Ég lét
hins vegar ekki verða af neinu fyrr
en ég hafði ráðfært mig við Pálínu
Vagnsdóttur í Bolungarvík, sem
hvatti mig til þess að láta hendur
standa fram úr ermum. Það var ein-
mitt fyrir ári sem ég stofnaði Félag
anti-rasista ásamt Pálínu og Jason
Hayden, vini mínum, og tveimur
öðrum. Starfið hefur gengið vel og
í félaginu eru um 100 manns í dag.
Við höfum ekki haft mikil fjárráð
til að auglýsa okkur, en til stendur
að koma upp heimasíðu fyrir tón-
leikana þann 20. september, sem er
nú í vinnslu. Á tónleikunum koma
fram flottar hljómsveitir, eins og
Jagúar, Rottweilerhundarnir, Myst
auk fjölda annarra. Einnig verða
þarna afrískir dansar og ýmisleg
önnur atriði. Tilgangurinn er að
vekja athygli á þessu vandamáli
sem kynþáttahatur er og bjóða
sem flesta velkomna í félagið. Það
eru allir velkomnir, íslenskir sem
útlendir, en það eru einmitt margir
Islendingar í félaginu sem hafa
reynslu af því að vera útlendingar
í öðrum löndum og hafa fengið að
upplifa það sem við fáum að upp-
lifa hér á landi. Tónleikarnir hefjast
klukkan átta og kostar aðeins 500
krónur inn.“
BLOGGARINN...
Randver rekinn
„Getur ekki versnað við þetta.
Gestaleikari íhverjum þætti, var einhver
að tala um Saturday Nigt Live eða nei
kannski ekki við hæfi að tala um Spaug-
stofuna og Saturday Night Live i sömu
setningunni.
Gaman verður að sjá hvort áhorfið verður
jafn mikið þennan veturinn nú þegar
rafrænt kerfi tekur við af áhorfendakönn-
unum. Ég spái minnkun íáhorfi. “
Ómar Friðleifsson
ommi.blog.is/blog
Glórutap RÚV
„Ég bara trúi þessu ekki. Eru þeir hjá RÚV
búnirað tapa glórunni? Spaugstofan er
ekki Spaugstofan án Randvers, frekar en
bogi án örva. Nú er ástæða til að flagga
íháifa..."
Sigríður Guðmundsdóttir
siggafreyju.blog.is
Hver leikur
konu?
„Alger hneisa. Ég skil ekki hvað RÚV-urum
gengur til. Hver í ósköpunum á þá eftir að
teika konu iþessum blessuðu þáttum? Já,
maður spyr sig. Svei mér þá ef Randver
er ekki bara einhver farsæiasta leikkona
sem Island hefur alið og nú er henni bara
hent eins og hverju öðru drasli. Ussss og
sussss. “
Lúðvík Gunnarsson
lulligunn.blog.is/blog
P
L
llbelladonnaii
]$jar
\öxr ftá
OMi
Stsaðir 42-56
Skeifan 11 d • 108 Reykjavík
sími 517 6460
www.belladonna.is
Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
_ Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og
is I lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
1 _ fyrir í hverri Ifnu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
1 I aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
_ Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
4 5 7 3
8 9 3 1 5
6 2
2 6 8
5 6 9 1 3 7
3 4 6
2 1 5
2 4 9 3 7
11-5
Ö LaughingStocK Intornational Inc./dist. by Unitod Media, 2004
HERMAN'
eftir Jim Unger
Ég borgaði 20.000 fyrir hana og
konan notaði hana bara tvisvar.