blaðið - 15.09.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 15.09.2007, Blaðsíða 1
íslenskur Jay Leno Þorsteinn Guðmundsson leik- ari verður með nýjan spjallþátt á Skjá einum í vor sem verður í svipuðum stíi og þættir Jay Leno. Enn hvílir > þó mikil leynd yfir þættinum. Keppni í magadansi Jóhanna Jónas leikkona | erein þeirra sem hafa fallið fyrir magadansi og mun taka þátt í magadans- keppni í Salnum í Kópa- ! vogi í kvöld en þar verður ý léttur og litríkur andi. Taka slátur Ingibjörg Lárusdóttir söng- kona tekur alltaf slátur á haustin og það gerir Bjarni Harðarson líka. Blaðið spjallaði við fimm slátur- gerðarmenn sem deila sögum sínum. FÓLK»46 SPJALLIл ORÐLAUS 175. tölublað 3. árgangur Laugardagur 15. september 2007 FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS! Boðar byltingu í búsetu eldri borgara „Besti tími minn í pólitík" „Borgin, einkaaðilar og hagsmunasamtök eldri borgara munu á næstu miss- erum kynna stórfellda uppbyggingu á öryggis- og þjónustuíbúðum. Þetta er í fyrsta skipti sem eldri borgarar koma að öllum þáttum hönnunar og þjónustugreiningar og ég vænti mikils af þessu samstarfi," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri. Fyrirhugað er að byggja hátt á fjórða hundrað þjón- ustuíbúðir fyrir aldraða á næstu misserum. Borgarstjóri segist einnig ætla að óska eftir viðræðum við fjölmenna vinnustaði og skóla um það hvort hægt sé aðhagræðaþvíhvenærvinnutímiogkennslahefjistog 3A 30 dreifa með því umferðinni á höfuðborgarsvæðinu. Jv'jZ Slökkviliðið gæti sektað Landspítala M Lega sjúklinga á spítalagöngum óviðun- andi vegna eldvarna, Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Slökkviliðsstjóri höfuðborgar- svæðisins, Jón Viðar Matthíasson, hefur íhugað að beita Landspítal- ann dagsektum vegna legu sjúk- linga á göngum sjúkrahússins. I Ósló hefur slökkviliðið sektað Aker háskólasjúkrahúsið um 100 þúsund norskar krónur, eða rúmlega i,i milljón íslenskra króna, fyrir að láta sjúklinga liggja á göngum. „Við höfum rætt það hér innan- húss hvort þetta sé úrræðið sem við þurfum að beita,“ segir Jón Viðar. Hann segir eldvarnareftirlitsmenn reglulega kanna aðstæður á Landspít- alanum auk þess sem sjúkraflutn- ingamenn, sem jafnframt séu slökkvi- liðsmenn, fari oft á dag á sjúkrahúsið. „Vandinn er okkur kunnur. Við höfum bent á að ástandið sé óviðun- andi. Það þarf ekki að spyrja að leiks- lokum komi eitthvað upp á.“ Slökkviliðsstjórinn kveðst hafa skilning á að það sé af illri nauðsyn sem sjúklingar séu látnir liggja á göngum. „En einhvern tíma tekur tappann úr. Hins vegar væri þeim fjármunum sem færu í dagsektir betur varið til úrbóta." Talsmenn Aker sjúkrahússins í Ósló segja að gripið hafi verið til ýmissa aðgerða til að laga ástandið, að því er greint er frá í norskum fjölmiðlum. Meðal annars eigi sér- stakur eftirlitsmaður að sjá til þess segir slökkviliðsstjóri LÖG UM BRUNAVARNIR ► Eigandi mannvirkis ber ábyrgð á að það fullnægi kröfum um brunavarnir sem fram eru settar í lögum og reglugerðum. ► Sinni aðili ekki úrbótum inn- an tilskilins frests er heimilt að krefjast dagsekta, að hámarki 500.000 kr. á dag. að gengið verði um allt sjúkrahúsið tvisvar í viku til að rýma útgöngu- leiðir. Jafnframt hefur sjúkrahús- inu verið lofað fé til úrbóta. Þá er í samvinnu við sveitarfélög leitað úrræða fyrir þá sem liggja á sjúkra- húsinu þótt meðferð sé lokið. Hluti stærra vandamáls Aðalsteinn Pálsson, framkvæmda- stjóri tækni og eigna á Landspítal- anum, segir það andstætt öllum reglum að sjúklingar séu á göngum sjúkrahússins, bæði vegna persónu- verndar og brunavarna. „Þetta er viðvarandi vandamál og stærst að vetrinum þegar allar deildir fyllast í flensufaraldri.“ Að sögn Aðalsteins hefur ekkert verið hægt að gera vegna athuga- semda slökkviliðsins. „Þetta er hluti af stærra vandamáli. Menn eiga til dæmis ekki að liggja hér eftir að læknismeðferð lýkur en þeir kom- ast ekki frá okkur í önnur úrræði. Þá myndast tappar.“ írland víti til vamaðar „írland er víti til varnaðar hvað varðar félagslegar afleiðingar hagvaxtar," sagði Paedar Kirby, pró- fessor við Háskólann í Limerick á írlandi, í fyrirlestri sem hann hélt á ráðstefnu Rannsóknaset- urs um smáríki. Stökkbreyting Laugardals Útivistarparadís höfuðborgar- búa, Laugardalurinn, hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og mun gera það áfram ef allar þær hugmyndir sem fram hafa komið verða að ^ 1 ^ veruleika. I I «5 Kærður fyrir forsetagrín Pólskur tölvunarfræðingur gæti átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi fyrir að hanna forrit sem gerði það að verkum að opinber heimasíða Lech Kaczynski Póllandsfor- seta kom upp efst í tölvuleitar- vél Google þegar orðið „kutas“ var slegið inn. Orðið er klúrt samheiti yfir getnaðarlim og hefur maðurinn nú verið kærð- ur fyrir að vanvirða forsetann. Tölvuforrit sem þetta eru algeng og kallast það „Google bombing“ þegar vefsíður stjórnmálamanna eða fyrir- tækja eru tengdar við leitarorð með þessum hætti. aí NEYTENDAVAKTIN Ferskar kjúklingabringur Fyrirtæki Krónur Mismunur Netto í Danmörku 667 kr. Krónan 1675 kr. (151%) Bónus 1926 kr. (188%) Fjarðarkaup 2258 kr. (338%) Samkaup-Strax 2261 kr. (339%) Hagkaup 2511 kr. (376%) Ferskar kjúklingabringur, kílóverð Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % WM USD 64,90 1,44 A GBP 130,21 0,46 ▲ mmm DKK 12,071 1,15 A • JPY 0,56 1,23 A Hi EUR 89,901 1,17 A GENGISVÍSITALA 121,25 1,17 A I ÚRVALSVI'SITALA 7.771.71 -1,5 ▼ VEÐRIÐ í DAG VEÐUR2 Hvergi meira úrval af stillanlegum heilsurúmum og heilsudýnum. Sjúkraþjáfari er í versluninni á fimmtudögum frá kl. 16 -18. starfsfólk við val á réttu rúmi. Opift virka daga: 10-18 og laugardaga 11-16 V ySTADQ^ OWarco Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót4, sími: 462 3504

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.