blaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 1
178. tölublaö 3. árgangur Fimmtudagur 20. september 2007 Ný Embla Hrafn Gunnlaugsson hefur nýlokið við vinnslu á kvikmyndinni Emblu sem er einskonar eftirgerð af Hvíta víkingnum. Hrafn var aldrei sáttur við fyrri útkomu myndarinnar. FÓLK»38 Diddú í Barbican Centre Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, syngur í einu virtasta tón- listarhúsi í London, Barb- ican Centre, með Garðari Thór Cortes og segist vera mjög spennt að syngja þar. ORÐLAUS FRJÁLST, ÓHÁÐ & Konur vilja frið María S. Gunnarsdóttir er formaður Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna en þau voru stofnuð árið 1951 og halda enn reglulega fundi þar sem konur hittast. KONANX24 Starfsfólk endist ekki árið í stórmörkuðum ■ Starfsmannaveltan 100% í dagvöruverslunum og ungu starfsfólki fjölgar M Skert þjón- usta og meira þarf að leggja í nýliðafræðslu ■ „Myndu gjarnan vilja hafa þetta öðruvísi" Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net Algengt er að velta starfsmanna í dagvöruverslunum sé um íoo pró- sent. Það felur í sér að allir starfs- menn hætti að jafnaði á hverju ári og nýir séu ráðnir í staðinn. Þetta kemur fram í Árbók versl- unarinnar 2007 - hagtölur um ís- lenska verslun, sem gefin var út af Rannsóknasetri verslunarinnar í gær. „Mikil starfsmannavelta getur leitt til skertrar þjónustu og krefst aukinna krafta við nýliðafræðslu innan fyrirtækjanna,“ segir þar. Starfsfólk staldrar stutt við í Árbókinni er vísað til könn- unar sem Rannsóknasetrið gerði síðastliðið vor meðal allra helstu dagvöruverslana landsins. Hún leiddi í ljós að allar dagvöruversl- anirnar nema ein höfðu um 100% starfsmannaveltu. „Auðvitað kemur þessi mikla starfsmannavelta illa við þessi fyr- irtæki. Menn myndu gjarnan vilja hafa þetta öðruvísi," segir Svanur Valgeirsson, starfsmannastjóri Bón- uss. Hann bendir á að stórt hlutfall starfsmanna Bónuss sé skólafólk og það kunni að skýra veltuna að hluta. Elías Guðmundur Magnússon, forstöðumaður kjarasviðs VR, segir að miðað við launakönnun félags- ins sé þetta verst borgaði geirinn. „Ég held að menn staldri við þarna þangað til þeir fá eitthvað betra. Það er ekkert flóknara en það.“ ÚR ÁRBÓKINNI ► Framleiðsluaukning er meiri á hvern starfsmann í versl- un á tímabilinu 1998 til 2005 en í öðrum atvinnugreinum. ► 23600 störfuðu við verslun og viðgerðarþjónustu árið 2006, eða 7,8 prósent vinnu- afls það árið. Þeim hefur fjölgað um 13,9 prósent frá aldamótum. _ Að meðaltali varð liðlega 7 prósenta veltuaukning á ári frá árinu 2001 en árið 2006 var hún tæp 11 prósent. Meðalaldur lækkar „Lágmarksaldur starfsmanna hefur ekki lækkað. En á móti hefur ungu starfsfólki fjölgað. En það er kannski bara vegna þess að búð- unum hefur fjölgað og þær hafa stækkað," segir Svanur aðspurður um það hvort Bónus hafi þurft að ráða yngra starfsfólk í þenslunni en ella. Hann segir hina ungu starfs- menn vera upp til hópa feikilega duglega en bendir á að auðvitað sé best að hafa góða blöndu af ungum og eldri. „Ég hef engar tölur um það en mér finnst það vera algjörlega borðleggj- andi að meðalaldur starfsmanna hefur færst alveg gríðarlega niður á við,“ segir Elías Guðmundur. ÞEKKIRÞU TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net Kaffi 4 & Mikil starfsmannavelta í mat- vöruverslunum Starfsmannastjór- ar matvöruverslana standa frammi fyrir því að nær allir starfsmenn 2? þeirra hætti á hverju ári. Alfreð hættir með hátæknisjúkrahús Alfreð Þorsteinsson, framsóknar- maðurinn sem stýrir skipulagn- ingu og uppbyggingu hátækni- sjúkrahúss, mun brátt láta af því starfi. Hann segir verkið á áætlun og að það hafi verið unnið í ■ f? góðri sátt allra hingað til. O Dóttir fær 4 daga vist og sonur enga Valgerður Ingibjörnsdóttir á fimm ára dóttur á Klettaborg sem fær ekki vistun þar nema fjóra daga í viku. Sonur Valgerðar, sem verður tveggja ára í desember, var búinn að fá inni á leikskólanum en' M kemstekkiað. S'JraT Fangamir stof nuðu eigin AA-samtök Hópur fanga í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg er farinn að vinna verulega í sínum málum. Fangar sem afplána þar hafa stofnað með sér sérstök AA-samtök vistmanna og halda sjálfir fundi y* nánast daglega. S f ám HELGA Grilláður kjúklihgur, franskar og 2I Coke 899kr Heill ferskur kjúklingur 30% Afsláttur ísfugl Úrb. Bringur án skinns 30 ^Afsláttuit, "Sí . '*%:■: ' 'vU | Kjúklingalæri/ieggir magnbakki | 30% afsláttur } Opið alla daga frá kl. 10.-20. SP, R Bæjarlind 1 - Sími 544 4510 Fótboltamennirnir sóðuðu út á Sögu Norðurírsku landsliðsmennirnir í knattspyrnu sem töpuðu leik hér á dögunum voru til vandræða á Hótel Sögu. Leikmennirnir voru erfiðir í samskiptum og umgengni þeirra um hótelherbergin \\y| fyrir neðan allar hellur. wr"T Kaupin ógilt vegna granna Norskur dómstóll hefur ógilt íbúðarkaup manns í Tromsö eftir að sannað þótti að nýr nágranni mannsins væri meira en bara „smáskrýtinn“. Dómurinn segir að seljandinn hafi brotið reglur þegar hann upplýsti kaupandann ekki um hinn erfiða og sérstaka nágranna. Kaupandinn þurfti að þola mikil óhljóð úr íbúð nágrannans, auk þess að þurfa að sitja undir hótunum og skemmdarverkum. Nágrann- inn var með kveikt á sjón- varpinu flestar nætur, spilaði háværa tónlist og ryksugaði ítrekað íbúð sína að nóttu til. aí NEYTENDAVAKTIN. m-OBSSG 1 Verð á Mills kavíar í 190 g túpu Verslun Krónur Kaskó 215 Melabúðin 249 Spar Bæjarlind 256 Nóatún 269 11-11 289 10-11 290 Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALÐMIÐLA SALA % m usd 63,36 -2,52 ▼ SðS GBP 126,61 -2,44 ▼ 55 dkk 11,87 -1,95 ▼ • JPY 0,54 -2,93 ▼ IB EUR 88,46 -1,95 ▼ GENGISVÍSITALA 118,89 -2,15 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 7.937 3,88 A VEÐRIÐ I DAG VEÐUR»2 Nýlegar lúxusbifreiðar á frábærum kjörum tbllond. Bílaland B&L - Grjóthalsi 1 - 575 1230 - bilalaiui p bilaland.is - www.bilaland.is bilaland.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.