blaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 1
engin fasteignasata i heimi selur lleiri fasleignir en RE/MAX
Svaraði kallinu
Dívan og djassarinn
Sigurður Flosason saxófón-
leikari og Sólrún Braga-
dóttir óperusöngkona
sendu nýverið frá sér geisla
diskinn Dívan og jazzmað-
urinn og halda tónleika í
Laugarneskirkju í kvöld. i
Spenna í Sjónvarpinu
Æfingar eru að hefjast fyrir
nýja íslenska spennuþætti,
Mannaveiðar, sem
sýna á í Sjónvarpinu Æ
á næsta ári. Gísli Örn
Garðarsson fer með Bíí'.yí
aðalhlutverkið.
Söngvarinn Herbert Guð-
mundsson er sífellt að koma á
óvart. Hann frelsaðist og er
ða að senda frá sér gospel-
■ plötu. Hann hefur lagt
■ búddatrúna á hilluna og
■ gengur nú á Guðs vegum.
FÓLK»30
KOLLA»12
ORÐLAUSX
182. tölublað 3. árgangur
Miðvikudagur
26. september 2007
FRJALST, OHAÐ & f
Rf/MKK
Torg
Ertu að spá
í að selja?
Hafðu þá samband við okkur...
Dorothea E.
Jóhannsdóttir
Sölufulltrúi
898 3326
dorothea@remax.is
Bergsteinn
Gunnarsson
Löggiltur Fasteigna-
fyrirtækja og skipasali
150 m skýjakljúfur
rísi í Glaðheimum
■ Áform um að reisa langhæstu íbúðar- og skrifstofubyggingu á landinu ■ Mjög góð
hugmynd, segir bæjarstjórinn og vill fleiri turna ■ Breyta þarf umferðarmannvirkjum
Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net
Eignarhaldsfélagið Kaupangur hyggst sam-
kvæmt heimildum Blaðsins reisa allt að 40 hæða
skrifstofuhúsnæði á Glaðheimasvæðinu í Kópa-
vogi, þar sem hingað til hafa staðið hesthús.
Reikna má með því að húsið verði rúmlega 150
metra hátt og því langhæsta hús á landinu.
„Skipulag að Glaðheimasvæðinu liggur ekki
fyrir. En ég hef heyrt af þessari hugmynd og mér
líst mjög vel á hana,“ segir Gunnar I. Birgisson,
bæjarstjóri Kópavogsbæjar.
Fleiri turnar munu rísa
Hinum megin við götuna, eða á Smáratorgi,
er verið að leggja lokahönd á 20 hæða turn sem
verður hæsta skrifstofu- og verslunarhús á land-
inu; 78 metra hátt. Þá er bygging 115 metra hás
turns sunnan við Smáralind í skipulagsferli, en
byggingin er ekki farin í grenndarkynningu.
„Eg held að fleiri turnar sem þessir eigi eftir að
rísa á næstu árum, bæði í Kópavogi og annars
staðar, enda er þetta góð nýting á landinu,“ segir
Gunnar.
Jóhannes Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kaup-
angs, útilokar ekki að turninn verði allt að 40
hæðir. „Við ætlum okkur að byggja turn þarna,
en ég á nú ekki von á því að hann verði 40 hæðir.“
Áhyggjur af umferðinni
„Við erum nú ekkert sérstaklega hrifin af því
að háhýsi rísi við bæjarmörkin. En svo lengi
sem byggingarnar varpa ekki skugga á Garðabæ
getum við lítið sagt þó Kópavogsbær reki háhýsa-
stefnu," segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar.
Hann segir þó ljóst að gera þurfi breytingar á
umferðarmannvirkjum eigi dæmið að ganga upp.
HÆSTU MANNVIRKI LANDSINS
Kárahnjúkastffla
198 metrar
Skýjakljúfur i Glaðheimum
í Kópavogi
150 metrar / 40 hæðir
Suðurturn við Smáralind
í Kópavogi
115 metrar / 30 hæðir
Turn við Höfðatorg
i Reykjavik
70 metrar/19 hæðir
iiimm
iii111111
miiiiii
illllllil
111111111
Illllllll
llllll III
llllllll
111111 f I ■
111*11 III
111111111
illllllll
lllllllll
i 11111111
111111111
IIIIIIII
Hallgrímsklrkja
í Reykjavik
74 metrar
Turn vlð Smáratorg
I Kópavogl
78 metrar / 20 hæðir
—1
z
. : :: m m m
,Ef Reykjanesbraut ber ekki umferðina mun hún
hríslast í gegnum bæinn, með aukinni hættu og
óþægindum fyrir bæjarbúa."
Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingar-
innar í Kópavogi, segir að búið sé að leggja hug-
myndina fyrir skipulagsnefnd. Hún tekur undir
með Gunnari að aukin umferð um svæðið geti
orðið vandamál.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á
bladid@bladid.net
Gjaldskrá á 2
af 10 biðstofum
Útdráttur úr gjaldskrá tannlækna
var á aðeins 2 af 10 biðstofum á
þriðja tug tannlækna sem Blaðið
gerði skyndikönnun hjá í gær. Tann-
læknum er skylt að hafa útdrátt á
áberandi stað á biðstofu
skv. reglum Neytendastofu. /L
Afsökun í skugga
málsóknar
Einar Hermannsson hótaði
Kristjáni Möller samgönguráð-
herra málsókn fengi hann ekki
afsökunarbeiðni. Lögmaður gaf
ráðherranum fjóra daga til að biðj-
ast afsökunar og baðst hann \\/|
afsökunar á fimmta degi. •
Ekki lokað á
Egilsstöðum
Mjólkursamsalan er hætt við að
loka mjólkurmóttöku á Egils-
stöðum líkt og tilkynnt hafði
verið í síðustu viku. Rekstur MS er
þungur að sögn forstjóra en tapið
í ár nemur hátt á annað \\/Z
hundrað milljónum króna. rO
Sexfalt fleirí
taka pungapróf
Yfirvofandi lagabreyting hefur
orðið til þess að um 300 manns
hafa skráð sig á pungaprófsnám-
skeið þessa önn. Vanalega eru
haldin tvö námskeið með um 50
nemendum. Námskeiðin \\*| «■
verða 13 að þessu sinni. ## I I
Strokufangi
í lögguveislu
Strokufangi var gripinn af
lögreglu í Taívan eftir að
hann mætti í grillveislu, sem
starfsmenn lögreglustöðvar
skipulögðu um helgina. Lög-
reglumenn í borginni Xinzhu
voru fljótir að handsama
strokufangann Chen, dæmdan
fíkniefnasala, eftir að þeir
komu auga á hann í veislunni
sem þeir höfðu boðið íbúum
umdæmisins í til að fagna með
þeim tunglhátíðinni.
Við handtöku útskýrði Chen
fyrir lögreglu að hann reikn-
aði með að veislan yrði síðasti
staðurinn þar sem lögregla
myndi leita hans. aí
NEYTENDAVAKTIN ’mi
Verð á rakvél
Fyrirtæki Krónur
Nettó 979
Samkaup-Úrval 1.099
Þín verslun Seljabraut 1.598
10-11 1.699
11-11 1.898
Kjarval 1.898
Verð á Gillette Fusion Manual rakvél
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
iU! USD 62,69 0,47 a
lllá GBP 126,06 -0,07 V
55 DKK 11,85 0,53 ▲
• JPY 0,54 0,73 ▲
Hl EUR 88,39 0,54 ▲
GENGISVÍSITALA 118,49 0,43 ▲
ÚRVALSVÍSITALA 7.845 -0,54 ▼
VEÐRIÐ í DAG
VEÐUR2