blaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 1
Próf fyrir heyrnarlausa Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur hefur þýtt og staðfært sérstök próf sem ætluð eru heyrnarlausum börnum en þau geta einnig nýst einhverfum börnum. 182. tölublað 3. árgangur Fimmtudagur 27. september 2007 HEILSA»: FRJÁLST, ÓHÁÐ & Ó Bíó um alla borg Hrönn Marinósdóttir er stjórn- andi Alþjóðlegrar kvikmynda- hátíðar í Reykjavík sem hefst í dag en þetta er ein stærsta hátíð sinnar tegundar hér á landi. Margt óvenjulegt verður í boði. KOLLA»18 Fullir íslendingar Bloggheimurinn logar stafn- anna á milli vegna ummæla bandaríska grínistans 1 Pablo Francisco um / drykkjuþol íslendinga / og virðast margir hafa sterka skoðun á málinu. , ORÐLAUS»32 Dómar tvöfaldast ■ •! ■ Hæstaréttardómar í fíkniefnamálum eru rúmlega helmingi lengri í ár en þeir sem féllu í fyrra ■ Meira magn amfetamíns og e-taflna í seglskútunni en fannst samanlagt 2006 Eftir Pórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net Flkniefnadómar í Hæstarétti í ár eru rúmlega helmingi þyngri en þeir voru árið 2006. Það sem af er árinu 2007 er meðaltal refsingar íyrir slík brot rúmlega fjögurra ára fangelsi, en var um tvö ár í fyrra. Þyngstu dómarnir vegna fíkniefnamála féllu þó árið 2002 þegar sex manns voru dætpdir í fjögurra ára og átta mánaða fangelsi að meðaltali. Metárið 2006 Flest fíkniefnamálin sem hafa komið til kasta Hæstaréttar á þessu ári komu upp í fyrra. Það ár var lagt hald á meira magn harðra fíkniefna en nokkru sinni áður á íslandi, tæp 47 kíló af amfet- amíni og um þrettán kíló af kókaíni. Framan af árinu 2007 virtist stefna í verulegan samdrátt í haldlagningu fíkniefna hérlendis. Það breyttist allt saman í lok síðustu viku þegar lög- regla fann 45 kíló af amfetamíni, fjórtán kíló af Meðallengd fíkniefnadóma í Hæstarétti 1972-2007 Lengd dóma í mánuðum. Taflan miðast við óskilorðsbundna dóma þar sem fíkniefnabrot eru meginbrot. u _ 9,2 1872- 1981- 1991- 1996- 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 1980 1990 1995 1998 e-töfludufti og 1.800 e-töflur um borð í seglskútu í höfninni við Fáskrúðsfjörð. Refsiramminn tólf ár Hámarksrefsing fyrir fíkniefnabrot var þyngd úr tíu árum í tólf árið 2001 í kjölfar þess að refsi- ramminn hafði verið nær fullnýttur í nokkrum FÍKNIEFNI ► Refsiramminn í fíkniefnamálum var þyngdur árið 2001 úr tíu árum í tólf. Þyngstu dómarnir falla iðulega í málum sem snúast um innflutning á e-töflum. ► Á árinu 2006 var lágt hald á tæp 47 kíló af amfetamíni, 2.200 e-töflur og 83,5 grömm af e-töfludufti. e-töflumálum. Þremur mánuðum eftir að laga- breytingin gekk í gegn var Austurríkismaður handtekinn í Leifsstöð með rúmlega fjórum sinnum meira magn af slíku efni en áður hafði verið lagt hald á hérlendis. Hann fékk tólf ára dóm í héraði sem er í fyrsta og eina skiptið sem refsiramminn hefur verið fullnýttur. Hæstiréttur mildaði dóminn yfir honum í níu ár. FÍKNIEFNADÓMAR AÐ ÞYNGJAST Á NÝ»12 Afsakar ekki lög- brot tannlækna Formaður Tannlæknafélagsins vonar að fjárhirslur ríkisins séu nógu stórar til að taka við sektar- greiðslum tannlækna sem ekki birta útdrátt úr gjaldskrá. Hann vill kynna verð og þjónustu VA á heimasíðu félagsins. Þurfa að vera dug- legir að borða Nemendur MA og VMA eru skyld- ugir að kaupa a.m.k. tvær máltíðir á dag í mötuneytinu en nemendum sem ekki búa á heimavist býðst að kaupa eina máltíð á dag. Þetta er ekki brot á jafnræði, segir q fjárhaldsmaður mötuneytis. O Gatnamótin sem hurfu í kerfinu Orðin þreytt á að lulla í hægagangi og styrkja olíufélögin Umferðin þokast hægt á álagstímum á Reykjanesbrautinni. Fjármagn hefur verið eyrnamerkt mislægum gatna- mótum við Bústaðaveg sem leysa ættu vandann. Gerðar hafa verið tvær tillögur að gatnamótum, en borgarráð hafnaði báðum fyrir tæpu ári vegna umhverfisverndarsjónarmiða. Síðan hefur ekkert gerst í málinu. íbúasam- tökin Betra Breiðholt eru orðin langþreytt á ástandinu, krefjast aðgerða og hyggjast taka upp samstarf við önnur hverfasamtök sem þurfa að búa við sams konar samgönguvandamál. MISLÆG GATNAMÓT DAGAR UPPI »6 HELGA %:þ. •#. .r; Grillaður kjúklingur franskar og 2 I Coca Cola kr 899 pk Opið alla daga frá kl. 10.-20. SP. P Bæjarlind 1 - Sími 544 4510 Hræddir við hommana Norska dómsmálaráðuneytið óttast að ný hjúskaparlög leiði af sér að samkynhneigðir ferðamenn flykkist til Noregs að láta gefa sig saman. í frétt Verdens Gang kemur fram að ráðuneytið telji slíkt óæskilegt, kostnaðarsamt og vinnufrekt fyrir yfirvöld. Hilde Solheim, talsmaður ferðaþjónustunnar, botnar ekk- ert í áhyggjum stjórnvalda og segir bæði samfélag og ríkis- sjóð hagnast á brúðkaupsferða- mennsku. „Þetta eru aukþess eyðslusömustu ferðamenn- irnir. Menn vilja ekkert til spara þegar þeir gifta sig.“ aí WIIIMMJWMIB Verð á rakvélablöðum Verslun Krónur Bónus 1.059 Melabúðin 1.098 Þin verslun Seljabraut 1.464 Spar Bæjarlind 1.465 Samkaup-Strax 1.499 Kjarval 1.898 Verö á Gillette Fuslon Manual, 4 stk. í pakka. Upplýsingarfrá Neytendasamtökunum #&§ GENGI GJALDMIÐLA SALA % |H USD 62,23 -0,74 ▼ m§í GBP 125,46 -0,48 T 5S DKK 11,79 -0,51 ▼ • JPY 0,53 -1,63 ▼ EjH EUR 87,94 -0,51 ▼ GENGISVI'SITALA 117,78 -0,50 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 7.971 1,59 A VEÐRIÐ I DAG 6ara Fossaleynir 6 - 112 Reykjavík - Sími: 586 1000 - www.husgogn.is i2áfa ^

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.