blaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 1
Fékk foreldraorlof
Bubbi dáir íslensku
Fiuttur heim
Evu Maríu Jónsdóttur finnst
erfitt að samræma vinnu
og einkalíf og trúir því ekki
að nokkurri móður finnist
það auðvelt. Hún nýtti i
sér löggjöfinatil aðfá 13 L
vikna foreldraorlof. J
Bubbi Morthens leitar að
nýrri stórstjörnu fslands
í nýjum raunveruleika-
þætti og segist með þessu
vera að verja íslenska tungu
jafnframt því að skemmta
landanum.
Gissur Páll óperusöngvari er
fluttur heim eftir nokkurra
ára dvöl á Ítalíu þar sem
hann nam hjá Kristjáni
ðtt Jóhannssyni.Núflýgur
I hann um heiminn og
synguríóperuhúsum,
FÓLK»38
ORÐLAUS»35
BORN»23
183. tolnbiaö 3. argángur
Föstudagur
28. september 2007
FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS!
Bókaprentun úr landi
■ íslenskar prentsmiðjur ekki samkeppnishæfar ■ Helmingur bóka prentaður ytra
H Kæmi ekki á óvart þótt prentun á bókum yrði nánast engin í framtíðinni
Eftir Frey Rögnvaldsson freyrr@bladid.net
Jólabækurnar verða að miklu leyti prentaðar
erlendis í ár. Verulegur samdráttur hefur orðið
á prentun bóka á tslandi síðasta ájatuginn þótt
útgefnum titlum hafi fjölgað. Árið’1998 voru ríf-
lega 2/3 hlutar bóka sem gefnar voru út á tslandi
prentaðir hérlendis. I fyrra var þetta hlutfall
orðið rétt rúmur helmingur samkvæmt upplýs-
ingum frá Félagi íslenskra bókaútgefenda.
Prentverðmunur gríðarlegur
Að sögn Jóhanns Páls Valdimarssonar útgef-
anda er langstærstur hluti þeirra bóka sem JPV-
Útgáfa gefur út prentaður erlendis.
„Verðmunurinn á því að prenta bækur hér heima
og erlendis er gríðarlegur. Venjuleg skáldsaga er
allt að helmingi dýrari prentuð hér heima en er-
lendis.“ Jóhann hefur skipt við Prentsmiðjuna
BÓKAPRENTUN
►
►
Stærstur hluti venjulegra skáldsagna og
bóka sem eru einungis í svörtu og hvítu
er prentaður í Skandinavíu. JPV lætur að
mestu prenta slíkar bækur í Svíþjóð.
Litaprentun bóka hjá JPV forlagi fer að
mestu fram í Slóveníu en þó að hluta í
Finnlandi. Pað færist í vöxt að bækurnar
séu prentaðar í Kína og Indlandi.
Odda og hefur góða reynslu af þeim. „En það er
gífurlegur verðmunur á þeim og prentsmiðjum
erlendis. Prentsmiðjur erlendis eru orðnar svo
sérhæfðar að þær geta boðið verð sem íslensk fyr-
irtæki geta ekki keppt við.“
Jóhann Páll segir að JPV leiti eftir tilboðum
í prentun á flestum sínum bókum og skipti við
fyrirtæki víðs vegar um heim. „Mér þykir leitt
að segja það en það kæmi mér ekki á óvart að ís-
lenskar bækur yrðu í framtíðinni í nánast engum
mæli prentaðar hér heima.“
Prenta hér sé fyrirvarinn stuttur
Guðrún Vilmundardóttir, markaðsstjóri hjá
Bjarti, segir að ríflega helmingur þeirra titla
sem Bjartur gefur út sé prentaður erlendis og
sá fjöldi fari vaxandi. „Því fyrr sem við erum til-
búin með titlana, því stærra hlutfall er prentað
erlendis."
Eyþór Páll Hauksson, markaðsstjóri hjá Odda,
segir samkeppnina síharðnandi en menn reyni
að halda sjó. „Munurinn á verði á prentun hér
heima og erlendis getur kannski numið að með-
altali 100 krónum á bók. Ég hef stundum sagt að
væri verð á bókum 100 krónum hærra væri hægt
að prenta allar bækur hér heima á íslandi."
Hafa náð 10 kíló-
um af kannabis
Lögregluyfirvöld hafa náð fimm
sinnum minna af kannabisefnum
á árinu en síðustu ár. Nú eru kílóin
um tíu en þau tóku að meðaltali
tæp 52 kíló á ári á tímabil- \\yg
inu 1999 til 2006. • nr
Bankamir berjast
um nemendur
Bankarnir yfirbjóða hver annan í
baráttu sinni um að fá að styrkja
nemendafélögin. í staðinn nýta
þeir nemendafélögin til að hvetja
nemendur til viðskipta. Nemi
segist nota SPRON-kort ; jm
til að kaupa ballmiða.
Hremmingar í Keflavíkurflugi
„Þetta er eins og ef starf sfólkið bryti á þér báðar lappirnar"
Guðjón Sigurðsson, sem sat í gær ráðstefnu um réttindamál fatlaðra í HR, hefur ítrekað lent í vandræðum við að fá
rafknúinn hjólastól sinn úr greipum flugafgreiðsluaðila á Keflavíkurflugvelli við komu til landsins. Stóllinn hefur
skilað sér niðurrigndur, brotinn og nú í vikunni týndist hann í tvo tíma. Guðjóni er ekki skemmt, þó að
hann reyni að sjá skoplegu hliðarnar á vandanum, þvi sjálfstæði hans og reisn er háð stólnum. “
* BORG
Traust þjónusta
lUftir PilörtkMOB Mnau. MrivMtfe H.l«« Lán ÖUftdéttU
6591159 6599606
Frítt verðmat
www.remaxeignir.com
Krókódílar
með heimþrá
Þrír krókódílar í Ástraliu hafa
af sjálfsdáðum snúið aftur til
síns heima eftir að þeim var
komið fyrir á nýjum stað í 400
kílómetra fjarlægð. Þessi upp-
götvun var gerð eftir að stað-
setningartækjum var komið
fyrir á skriðdýrunum.
Algengt er að flogið sé með
krókódíla sem halda sig nærri
vinsælum baðströndum
Ástralíu í þyrlum til fjarlæg-
ari staða til að forðast slys.
Vísindamaður við Queensland-
háskóla segir fréttirnar hafa
komið sér í opna skjöldu, talið
hafi verið að dýrin hefðu ekki
þrek til að ferðast svo langt. aí
NEYTENDAVAKTIN
• dtns: u
Gerber-barnamatur
Verslun Krónur
Nettó 59
Fjarðarkaup 86
Samkaup-Úrval 89
Hagkaup 91
Nóatún 93
10-11 102
Verð á Gerber-barnamat, bananar 130 g. Upplýsingarfrá Neytendasamtökunum '^l
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
WM USD 62,06 -0,27 T
isngsi GBP 125,59 0,10 ▲
II ■■ DKK 11,77 -0,18 ▼
• JPY 0,53 -0,25 ▼
m EUR 87,78 ► co o
GENGISVÍSITALA 117,63 -0,12 ▼
ÚRVALSVÍSITALA 8.006,00 0,43 ▲
• Hvergi meira úrval
af stillanlegum heilsurúmum og heilsudýnum.
• Sjúkraþjáfari er í versluninni
á fimmtudögum frá kl. 16 -18.
• Sérþjálfað starfsfólk
aðstoðar við val á réttu rúmi.
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500
Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504
Opið virka daga: 10-18 og laugardaga 11-16