blaðið - 29.09.2007, Blaðsíða 24
24
ATVINNA
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2007
blaðió
Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi
Sérfræðingur í málmvinnsluteymi
Við leitum að öflugum einstaklingi til að leiða þróun framleiðsluferla í málmvinnsluferli Fjarðaáls. Rúmlega 100 manns munu starfa í
málmvinnsluferlinu. Steypuskáli álversins við Reyðarfjörð verður meðal peirra fullkomnustu í heiminum.
Starfið veitir einstaklingi sem nær árangri einstakt tækifæri innan ört vaxandi stórfyrirtækis í alþjóðlegu umhverfi. Samstarf, hóþvinna
og valddreifing eru lykilatriði og mikil áhersla lögð á stöðugar endurbætur ásamt síaukinni hæfni og ábyrgð starfsmanna. Starfið krefst
mikilla samskipta við aðra starfsmenn á öllum stigum framleiðslunnar. Náið samstarf er við framkvæmdastjóra málmvinnslu og
sérfræðinga í málmvinnslu.
Ábyrgðarsvið:
• Leiða þróun á framleiðsluferli samkvæmt straumlínu-
stjórnkerfi Alcoa, sem byggir á framleiðslukerfi Toyota.
• Umsjón með mælingum og endurbótum framleiðsluferlis,
sem og að greina þörf fyrir þjálfun starfsfólks svo tryggja
megi stöðugar endurbætur.
• Náið samstarf við framkvæmdastjóra framleiðsluþróunar,
sem og aðra starfsmenn fyrirtækisins.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræði.
• Reynsla í framleiðslustýringu æskileg sem og reynsla af notkun
straumlínustjórnkerfa.
• Reynsla af greiningu, rannsóknir og endurbætur framleiðsluferla.
• Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í rit- og talmáli, sem og
hæfni til tjáningar.
• Hæfni til miðlunar og kennslu.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
capacent
RÁÐNINGAR
Ef þú hefur áhuga á þessu tækifæri ættir þú hiklaust að hafa samband við Sigurlaugu Þorsteins-
dóttur hjá Caþacent, í síma 540 1000 eöa á netfangið sigurlaug.thorsteinsdottir@caþacent.is
eöa skrá umsókn þína á www.caþacent.is og haft verður samband við þig.
www.alcoa.is
Alcoa Fjarðaál 0
ALCOA
"N
-'V.
«'
Góð laun í boði fyrir duglegt fólk - Laun árangurstengd
Blaðið óskar eftir duglegum, metnaðarfullum og kraftmiklum
sölumönnum til starfa á auglýsingadeild Blaðsins sem fyrst. Við
leitum að fólki með frumkvæði, ódrepandi áhuga, vilja og getu til
að vinna í krefjandi og erilsömu umhverfi og hressleikann að
leiðarljósi.
Umsóknir sendist á steini@bladid.net
l'lllJt-BS y