Orðlaus - 01.02.2003, Blaðsíða 47

Orðlaus - 01.02.2003, Blaðsíða 47
r Ljjónið (23.júlí - 22.ágúst) Þótt Ijónið kjósi að þóknast félaga sínum birt- ist það jafnframt árásargjarnt í eðli sínu þegar árið framundan er kannað. Þú býrð yfir hernað- aranda sem þú heldur í skefjum og gefur ekki lausan tauminn nema við vissar aðstæður. Tilfinningar þlnar upplifa erfiða tíma og þú verður að læra að þekkja reiðina og skynja afl ástar og samvinnu. Þú hefur sjaldséðan mátt til að lækna og eyða þegar ástin er annars veg- ar,og ert fær um að gefa þig óskipta/n.Á þess- um tímapunkti hefur þú gert upp hug þinn innra með þér. Mannleg samskipti, verkefni eða viðskipti, hvað sem það er þá reynir þú til hins ýtrasta að láta það ganga. Areiðanleiki og örlæti einkenna Ijónið í byrjun aprfl en þegar það verður fært um að sjá hlutina eins og þeir eru frekar en eins og það vill að þeir séu lærir það að sleppa takinu burtséð frá því hversu sársaukafullt sem það nú er. Fyrir mars byrjun birtist auðmýktin holdi klædd og þú gerir ým- islegt fyrir aðra af hreinni góðmennsku, en þú átt það til að taka hluti of nærri þér og ættirað hætta að berjast við fólk og veita mótstöðu. Sporðdreki (24.okt - 21 .nóv) Þú ættir að draga þig svolftið út úr hring- iðunni um stund, greina aðstæður og setja þér skýrari markmið árið 2003. Stjarna sporð- drekans gæti fundið fyrir ójafnvægi í byrjun ársins en þú býrð yfir geysilegri keppnishörku sem kemur þér á áfangastað. Þú gætir þó á sama tíma étt það á hættu að særa aðra ef það skilar árangri f samkeppninni. Ekki láta aðstæður draga úr þér allan mátt, hvort sem um einkalff þitt eða starf/nám er að ræða. Þú þarft að verjast með þvf að draga þig út úr hringiðunni, eins og fyrr segir. Fólk fætt und- ir stjörnu sporðdrekans þarf að geta kúplað sig út úr hlutunum til þess að vera fært um að setja sér skýrari markmið.Taktu þátt í verk- efnum sem auka sjálfstraust þitt og hafðu það hugfast út nóvember mánuð og jafnvel fyrri hluta desember. Óvæntir hlutir stíga fram á sjónarsviðið þar sem umhyggja og djúpur fögnuður þfns eigin anda verður nánast áþreifanlegur af þinni hálfu. Þú ert minnt/ur á það hérna að þeir sem leita stöðugt að öryggi halda áfram að leita alla ævi án þess að finna það sem leitað er að.Valið er í þínum höndum árið framundan. Meyjan (23.ágúst - 22.sept) Meyjan er gefandi f samskiptum við sfna nán- ustu en er nú óttaslegin varðandi öryggi, bæði fjárhagslegtogtilfinningalegt,sembyrgirann- ars snjallt innsæi hennar. Ef þú óttast höfnun eða sársauka ættir þú að vera vakandi fyrir táknum sem birtast þér um þessar mundir og vera óhrædd/ur við tilfinningar þínar. ( febrú- ar ættir þú að byrja að sætta þig við þá stað- reynd að þú ert uppfull/ur af hæfileikum sem þú þarft að fara að virkja. Nóttin er jafnvel sá tfmi sem þú gerir áætlanir og þú átt jafnvel erfitt með svefn því þú hefur mjög viðkvæmar taugar og ert ákaflega næm/ur á alla strauma í kringum þig. Þú verður að læra að nota kraft þinn á réttan hátt því ef þú ferð rétt að mun hann nýtast þér vel næstu misseri.Maí mánuð- ur á eftir að verða einkar jákvæður fýrir þig og þú kemst í gegnum hvað sem er með þvf að nýta orku þína rétt. Bogamaður (22.nóv - 21 .des) Gleymdu því ekki, að ef þú nýtur ekki stund- arinnar gerir þú hlutina ekki eins vel og þú ert annars fær um. Þú ert án efa þægileg/ur í umgengni en gleymdu ekki að hreyfa þig endrum og eins. Hafðu stjórn á lund þinni þessa dagana. Ástarhiti birtist hér en þar ertu á réttum miðum,en ekki leyfa afbrýðiseminni að eiga mfnútu af tfma þfnum. Stjórnun og völd eiga vel við þig árið framundan en þú mátt ekki gleyma að fyrirgefa náunganum. Gefðu þér tfma til að hinkra aðeins við og þá sérstaklega í byrjun apríl. Bfddu eftir lausninni með því að hafa vakandi auga og hugsa ein- ungis um það sem skiptir máli, þá kemur hún af sjálfu sér. Heimilislíf þitt verður hamingju- samt og þar ræður gleði og góðvilji rfkjum.en á sama tíma ert þú minnt/ur á að spilla ekki ástvinum með dekri og eftirlæti. Þú ert barn Júpíters sem segir að lukkan sé þér hliðholl um ókomna tíð.Veittu þérfrelsi til að skapa og hlustaðu á sálina sem reynir án efa um þessar mundir (febrúar 2003) að ná til þfn. Þú ert fær um að fá það sem þig vanhagar um en ekki ýta fólki frá þér sem þú berð tilfinningar til. Vogin (23.sept - 23.okt) Vorið 2003 sýnir vogina á leiðinni í frí sem tengist löngu ferðalagi þar sem hún mun ta- kast á við skemmtilegt tækifæri og ekki síður áhugaverða reynslu. Ef þú leitast við að ná fjár- hagsiegu öryggi ( fari annarra ( stað þess að fullnægja þörfum þínum mun eflaust harðna ( dalnum, því hér eru á ferðinni rangar áherslur. Þú kýst manneskju sem lætur undan þörfum þfnum og uppfyllir kröfur þínar, en innst inni virðir þú fólk enn meira ef það hleypur ekki á eftir öllum óskum þínum. Hættu að leita og reyndu að vera róleg/ur og afslöppuð/afslapp- aður í samskiptum við aðra árið framundan. Ef þú bindur mjög miklar vonir við það sem koma skal á tilfinningasviðinu ættir þú að líta inn á við mun betur. Ef þú hefur upplifað höfn- un á einhvern hátt árið 2002 ættir þú að efla innri styrk þinn fremur en að virkja veikleika þfna þetta árið. Jafnvægi rfkir milli þín og fé- laga þinna og sú vinátta hjálpar þér að takast á við hvaða hindranir sem kunna að verða á vegi þínum. Allir vegir eru þér færir ef þú kær- ir þig um. Steingeit (22.des - 19.jan) Steingeitin ætti að hlusta á sínar innstu þrár varðandi framtfð sína en reyna einnig að taka hverju sem verður á vegi hennar með jafnaðargeði. Ekki hika við að finna þér nýjar ögranir og efldu skopskynið sumarið 2003. Oft verða hlutirnir ekki eins og þú sjálf/ur ósk- ar þér, en með því að taka hlutunum eins og þeir eru axlar þú raunverulega ábyrgð. Næstu þrfr til sex mánuðir sem framundan eru verða annasamir, en ánægjulegir, en ef þú ætlar þér að ná þeim árangri sem þú sættir þig við í starfi/námi mátt þú hvorki líta á sjálfan þig með augum heimsins né leyfa þér að verða háð/ur gagnrýni annarra. Þú ert fær f hverju sem þú tekur þér fyrir hendur og býrð yfir ein- stakri aðlögunarhæfni sem kemur þér þangað sem þú ætlar þér hverju sinni. Ef þú ert stadd- ur/stödd í vandræðum um þessar mundir (febrúar 2003) skalt þú horfast í augu við vandamálið, taka strax á málinu af krafti og huga vel að framtfð þinni. Marsw mánuður færir stjörnu þinni mikla gleði og eflir vilja þinn til að vera góð(ur) við þá sem þér þykir vænt um. Síð- ari hluti ársins 2003 færir þér aukin tækifæri og fjárhagslegt öryggi þitt á eftir að batna á árinu.

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.