Orðlaus - 01.10.2003, Blaðsíða 8

Orðlaus - 01.10.2003, Blaðsíða 8
DREYMIR ÞIG UM AÐ SOFA HJÁ ÓKUNNUGUM, TVEIMUR í EINU EÐA VINKONU KÆRUSTUNNAR? yrtLÍFS FAIJTASIUI} Fantasíukynlíf er kynlíf án ábyrgðar og öllum þeim neikvæðu hlutum sem kynlífi getur fylgt og er það ástæða þess að fólk lætur sig dreyma. Fantasíur eru jafn mismunandi og við erum mörg og skoðanir á þeim misskiptar. Sumir segja að þær lífgi upp á kynlífið á meðan aðrir halda því fram að fantasíur tilheyri eingöngu þeim sem eru einmana og örvæntingafullir. Næstum allir eiga sér einhverjar ákveðnar kynlífsfantasíur hvort sem þeir viðurkenna það eða ekki. Þær geta poppað upp hvenær sem er, hvar sem er. Flestir halda þeim fyrir sjálfan sig eða í mesta lagi deila þeim með sínum nánusta en þá er hætta á því að sveittur og illa lyktandi raunveruleikinn standist ekki væntingar. Það sem þó fæstir vita er að þær má túlka, stundum merkja þær það sama og viðkomandi dreymir um en oftast eiga þær sér þó fleiri merkingar. KONUR 1. Kynlíf með ókunnugum Fantasían: Það er kvöld. Þú ert stödd á bar, í leikhúsi eða í stóru samkvæmi. Þú kemur auga á ókunnugan mann hinum megin í herberginu. Þið horfist í augu. Án þess að segja nokkuð gengur hann til þín og dregur þig út úr mannþrönginni út í næsta húsasund, þrýstir þér upp að veggnum, dregur upp á þér pilsið og þið hafið samfarir þarna úti í myrkrinu. Á eftir haldiö þið hvort í sína áttina eins og tvær ókunnugar manneskjur og hittist aldrei aftur. 1. Að vera með tveimur í einu Fantasían: Þú liggur uppi í rúmi með tveimur leggjalöngum súperkonum sem kyssa hvor aðra og strjúka hvor annarri hátt og lágt. Þú fylgist með hverri einustu hreyfingu þeirra, þær horfa í augun á þér og benda þér á að koma nær svo þú getir séð betur hvað þær eru að gera. Þú afþakkar ekki, slæst í leikinn og hefur samfarir við þær báðar. 2. Kynlíf á almannafæri. Fantasían: Þú og elskhugi þinn eruð stödd í almenningsgarðinum, á svölunum, á skrifstofunni eða bara hvar sem er á almmanafæri og stundið villt kynlíf. Þetta er bannað, en hvað ef maður næst ekki? Þetta er spenna, kannski er einhver að fylgjast með, kannski ekki. Merkingin: Margar nútímakonur fantasera um að einhver ókunnugur fylgist með þeim í kynlífsleikjum sínum og hugmyndin kveikir í ófáum. Hugmyndin um að vita af því að aðrir æsist við að fylgjast með þér gefur einhvers konar valdatilfinningu og þér finnst þú kynþokkafyllri en nokkru sinni fyrr. Ef þú fantaserar oft um það að einhver ókunnugur fylgist með þér á meðan þú stundar kynlíf með elskhuganum gætir þú einnig verið að leita eftir athygli og aðdáun sem þéi finnst skorta í þínum daglegt samskiptum en gæti einnig táknað hræðslu þína við innileg sambönd 2. Að vera með bestu vinkonunni Fantasían: Það er grenjandi rigning úti. Dyrabjallan hringir, þú opnar og úti stendur besta vinkona kærustunnar. Hún er rennandi blaut og spyr hvort vinkonan sé heima. Það er hún því miður ekki. Hún biður þá um að fá að koma inn og hringja. Hún gefur þér merki, hún vill þig. Þú stenst ekki mátið og þið hafið eldheitar samfarir á sófanum. Merkingin: Þetta er leikur við eldinn. Þetta er bannað en um leið alveg ótrúlega æsandi. Að fantasera um bestu vinkonu konunnar merkir að þú ert kappsfullur. Ef þig dreymir um þetta oft ættirðu ef til vill að athuga hvort eitthvað meira liggi þar að baki. Áttu ef til vill í einhverjum sambandserfiðleikum? Finnur þú til vanmáttar gagnvart þessari vinkonu? Þú þarft allavega að gera þér grein fyrir öllum þeim vandamálum sem myndu spretta upp ef þú myndir gera þessa fantasíu að veruleika. 3. Gyðjan og þjónarnir hennar Fantasían: Þeir þvo á þér fæturna, helga sig ríkulega þínum helgustu svæðum og nudda hvern einasta part af líkama þínum. Þeir eru tilbúnir til að gera hvað sem þú biður þá um, hvenær sem þér þóknast. Þú ert gyðjan sem alla karlmenn dreymir um, og þú getur gert hvað sem þú vilt. 3. Haninn í hænsnakofanum Fantasfan: Þú liggur í hengirúmi á einhverri afskekktri sólríkri eyju. Þú ert umkringdur gullfallegum konum sem vilja gera allt til þess að fullnægja þínum þörfum. Ein nuddar þig, önnur matar þig o.s.frv. Þær hafa allar sína sérstöðu á kynlffssviðinu og ekkert er bannað. Merkingin: Marga karlmenn dreymir um að hafa úrval af kvenfólki í kringum sig sem þeir geta valið úr þegar þeim hentar án þess að þurfa að hafa áhyggjur af neinum skuldbindingum. Þetta er svolítið svipað og fantasía konunnar um hlutverk gyðjunnar, þú þráir að vera almáttugur og hafa stjórn á öllu. 4. Að vera með konu Fantasían: Þú ert með annarri konu, þið kyssist innilega og strjúkið hvor annarri. Þú strýkur á henni brjóstin og hún veitir þér þá allra bestu fullnægingu sem þú hefur nokkru sinni fengið. Merkingin: Þessi fantasía þarf alls ekki að merkja að þú sért samkynhneigð. Margar konur dreymir um að vera með konu þótt ekki sé nema í eitt skipti, bara til þess að prófa það. Þær konur dreymir um að kynnast sjálfri sér betur og að vera með einhverjum sem skilur þarfir þeirra betur. Ef þig dreymir um þetta oft ættirðu kannski að prófa að láta fantasíuna verða að veruleika og athuga hvort raunveruleikinn stenst væntingarnar. 4. Að sofa hjá stórstjörnu Fantasían: Flestrr karlmenn eiga að minnsta kosti eina stórstjörnu sem þeir fantasera um. Hugsa um að sofa hjá henni og ímynda sér hana stundum I hiutverki sem hún hefur tekið að sér. T.d. eru örugglega ófáir karlmenn sem hafa fantaserað um Angelinu Jolie í gallanum úr Tomb Raiderl! Merkingin: Stórstjörnur eru klassísk fantasía. Fantasían er bæði hughreystandi og án samviskubits þar sem samband við stjörnuna er ekki mjög líklegt til að verða að veruleika, eða réttast sagt verður aldrei að veruleika...

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.