Orðlaus - 01.12.2003, Blaðsíða 18
I
Chosen Ground voru að gefa út sína fyrstu piötu
FAR. Kalli (Charly-D) sem margir kannast við úr
Subterranean er þar á ferð ásamt Söru
Andrínudóttir. Það gleður eflaust marga að heyra
að Kalli sé kominn aftur eftir nokkurra ára hlé
en okkur lék forvitni á að fræðast meira um
þessa ungu söngkonu sem er að gera frumraun
sína með þessa plötu og hittum hana því í stutt
spjall.
mánuðum seinna fórum við svo bara í stúdíóið hjá
Rúnari Júl og tókum plötuna upp á tveimur dögum.
Eftir stúdióferðina spuröi ég hann hvað í fjandanum
fékk hann til að gera þetta því hann var ekki búinn að
heyra f mér syngja en hann sagðist bara trúa á mig og
sagðist heyra það á því hvernig ég tala að ég hefði
góða rödd. Ég er rosalega ánaegð að vera að vinna
með honum og mér finnst ég vera rosalega heppin því
mér finnst hann vera að gera rosa góða hluti. Þetta er
ekkert í stíl við Subterranean samt jú, þetta er eiginlega
allt annað, en af sömu gæðum.
Eruði komin einhversstaðar í spilun?
Emm, ég held sko að platan sé komin á allar
útvarpsstöðvar og erum með eitt lag sem gæti farið á
FM en þetta er samt ekkert þannig plata. Ég vil auðvitað
að fólk heyri tónlistina og hlusti á hana en ég væri
frekar til ( að vera f spilun á X-inu eða Skonrokk eða
svoleiðis.
Er svo bara kampavín og kaviar fr
Já heldur betur!
undan?
Jæja Sara, velkomin.
Takk fyrir það.
Chosen Ground eru þú og Kalli eða eru
meðlimirnir fleiri í hljómsveitinni?
Nei, þetta er eiginlega bara dúett. Það voru gítarleikarar
og allt svona sem spiluðu á plötunni, en þeir voru
eiginlega bara til að fegra uppá og gefa plötunni betra
sánd.
Á næstu plötu sem við erum að byrja að vinna að
ætlum við að hafa hljómsveit og spila síðan allt live.
Á siðustu tónleikum var með okkur strákur sem
breikdansaði fyrir okkur þannig að það er geðveikt
gaman á tónleikunum hjá okkur. Við ætlum að reyna
að vera alltaf með svona uppákomur. Hann breikaði
á meðan ég var að syngja og þannig magnaðist upp
stemmningin.
Er langt síðan þú og Kaili fóruð að vinna tónlist
saman?
Nei, Kalli heyrði ekki í mér syngja fyrr en í stúdíóinu,
hann vissi ekkert um mig. Ég kynntist honum f gegnum
fyrrverandi kærasta systur minnar. Svo ákvað ég bara
að spyrja hann hvort hann vildi einhvern tíman vinna
tónlist saman, var búin að peppa sjálfa mig upp í það
alveg geðveikt lengi og hann sagði bara já. Einhverjum
Hvernig myndir þú lýsa plötunni ykkar?
Emm, við erum búin að stúdera þetta svo ógeðslega
mikið því þetta er ekki beint hip hop og ekki beint
einhver elektrónísk tónlist þannig að við erum eiginlega
búin að stimpla þetta sem graffitítónlist. Það er bara
eitthvað nýtt hugtak ... svona þægileg tónlist.
Þið hafið fengið góða dóma og líkt við
Moorcheeba ...
Já okkur var líkt við þá, Portishead og Massive Attack.
Moorcheeba er uppáhalds hljómsveitin mín þannig að
ég var alveg ýkt ánægð.
Var Kalli búinn að vinna lengi að þessum lögum?
Þetta voru lög sem eru búin að vera lengi í hausnum
á honum og búin að liggja lengi á borðinu hjá honum.
Þetta var eiginlega allt tilbúið.
Þannig að það vantaði bara þig?
Ha, ha .... já. En okkur hlakkar rosalega til að gera
næstu plötu.
Eruði komin með breiðan aðdáendahóp?
Ha, ha ... ég er ailavega búin að gefa mina fyrstu
eiginhandaáritun.
En þessi plata er frumraun þin í söng er það
ekki?
Ég var ( kór i áttunda bekk en það var ekki nógu mikil
athygli á mér þannig að ég hætti. Ha, ha, nei ég segi
svona. Ég einhvern vegin festi mig aldrei inni í því.
Mamma mín og systir mín gerðu alltaf grín af mér
þegar ég var litil því ég var alltaf að reyna að syngja
eins og Whitney Houston með kertastjaka heima í stofu
en þorði aldrei að syngja fyrir framan neinn og
þessvegna er þetta svolítið stórt skref. Þetta hefur verið
svona leyndarmál bara fyrir mig.
Myndirðu taka þátt í Idol?
Nei, ég er ekkert að stila mig inn á það að vera einhver
söngkona. Ég er engin Whitney Houston. Ég ofsyng
ekki lögin mín og ég er ekki með einhverjar dúllur hér
og þar.
Hvenær eru næstu tónleikar?
Réttfyrir jól, 19. desember llklegastá Prikinu og einnig
verðum við með tónleika á Akureyri rétt fyrir jól.
Að lokum?
Súperstaaaar
Texti: Hrefna & Steinunn.
Myndir: Atli.