Orðlaus - 01.12.2004, Side 23

Orðlaus - 01.12.2004, Side 23
Það er örugglega bara tímaspursmál hvenær hún Ásdís Rán tekur sig til og kemur lceland's nexttop model í loftið. Hún hefur verið í bransanum í mörg ár og ásamt því að hafa staðið fyrir keppninni ísdrottningunni á hún model.is og hefur setið fyrir sjálf. Hún er því kjörin í hlutverk Tyru Banks. Hún gæti síðan fengið Svavar tískulöggu og Skjöld til að dæma með sér. Þetta er þáttur sem Skjárl ætti að setja á dagskrá .... Miðvikudagar eru módelkvöld! Rai Birgitti kærasti Rai , Yasmine Olsen, mkdal, Addi í Skítamóral, Bensi , Haukur Ingi kærasti Þau eru öll vinir! Örugglega fallegasti og hressasti vinahópurinn á íslandi og fullkomin fyrirmynd að vinalegum þætti. Það væri hægt að krydda upp á þáttinn með því að fá Hanna sem gestaleikara, þessi brjálaða fyrrverandi týpa. Síðan gætum við fylgst með Adda og vini hans Einari Ágústi, „ætli að hann falli" dudududu. Að lokum gæti þeirra „Central perk" verið Pylsubar Bigga ... bara hugmynd! Þau eru flott, rík og falleg. En það sem meira er þá eiga þau næstum því allan fatamarkaðinn á íslandi. Bolli er Ridge Forrester og Svava fær að vera Brook Logan Forrester. Síðan er hann Jón Ásgeir kjörinn sem Sally Spectra. Spennandi sögur úr tískuheiminum beint upp úr íslenskum samtíma. Nú þurfum við bara að etja þeim saman og þá verður úr alvöru sápa ... pant glápa! Þáttursem gengur útá þaðað líttfrægtfólkeða gamlar stjörnur eru settar saman út í óbyggðir og því sjónvarpað allan sólahringinn. Síðan er það undir áhorfendum komið hver fær að fjúka hverju sinni. Þátturinn er þó eflaust frægastur fyrir ofurparið Jordan og Peter Andre sem byrjuðu saman í þættinum. Rut Reginalds - Athyglissýki á hæsta stigi, ætti því að vilja taka þátt. Heiðar snyrtir - Gaman að sjá hann koma aftur í sviðsljósið ... skemmtilegur karakter sem allir elska. Ema Gunnþórsdóttir - Hún ætti heldur betur að geta hrist upp í hlutunum ef hún er eitthvað lík mömmu sinni, það verður líka að hafa bombu eins og Jordan. Marín Manda - Hún reyndi við frægðina á íslandi en gekk ekki, reyndi þá fyrir sér í danska Idolinu en gekk ekki ... Ósk Norðfjörð - Sagðist vera ólétt eftir Eið Smára en var síðan ekki ólétt... Hver er hún? Fjölnir Þorgeirs -Töffarinn í hópnum sem bræðir hjörtu allra kvenna sem sitja við sjónvarpsskjáinn ... hann er líka vanur sveitasælunni. Ástþór Magnússon - Að taka þátt í þessu væri fín kynning fyrir næstu forsetakosningar, þarna hefði hann tækifæri til að láta Ijós sitt skína. Beta Rokk - Varð fræg fyrir ekkert og kemst þvi strax í þáttinn, hún á örugglega eftir að vinna, hún er svo góð í þessu. Ágúst Hilmisson 35 ára Fyrir hvað stendur skammstöfunin GMT? Ekki hugmynd. Hver er borgarstjóri Reykjavíkur? Það er hún Valdís. Hún Steinunn Valdís. Hvað er okfruma? Okfruma er annaðhvort er það sáðfruma eða kynfruma. Hver er höfuðborg Úkraínu? Úkraínu? Ja, þú segir nokkuð! Ég man það bara ekki. Jæja! Hvað þýðir decode? Það er bara að afrugla. Fyrir hvað stendur skammstöfunin GMT? Ég veit það ekki. Hver er borgarstjóri Reykjavíkur? Hvað heitir hún aftur, maður? Þórólfur. Nei, hann er hættur! Hann er hættur? Ahhh! Hvað er okfruma? Þetta er rosalega erfitt. Okfruma? Ég veit það ekki. Hver er höfuðborg Úkraínu? Kiev. Hvað þýðir decode? Decode, er það ekki bara nafnið á fyrirtækinu? Erfðarannsóknir! Það hlýtur bara að vera það. Ari Guðmundsson 16 ára Fyrir hvað stendur skammstöfunin GMT? Give me time? Er það ekki þarna Greenwich Mean Time? Hver er borgarstjóri Reykjavíkur? Ég veit ekki alveg hver er sú nýja en það var allaveganna Þórólfur! Hvað er okfruma? Okfruma? Ég veit það ekki. Hver er höfuðborg Úkraínu? Ég veit það ekki. Hvað þýðir decode? Afkóðun.

x

Orðlaus

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.