Orðlaus - 01.12.2004, Side 24

Orðlaus - 01.12.2004, Side 24
ROKKSKÓLI ORÐLAUS Gera: Nú til dags er leður og gaddabelti álíka krassandi og ristað brauð. Rokk hefur alltaf verið um að vera á móti ríkjandi stefnu. Sid Vicious og Kurt Cobain fóru aldrei eftir neinum tískustraumum. Keith Richards er best klæddi rokkari allra tíma og hann var oftast í fötum af kærustunum sínum. Ekki Gera: Motörheavd var ein rosalegasta rokkhljómsveit allra tíma, og að vera í bol merktum þeim gæti virst góð hugmynd í fyrstu. En hafið í huga að þannig boli er hægt að kaupa í Topshop og þegar Britney er í rokkarastuði þá skellir hún sér í Motörhead bolinn sinn. Gera: Það eru nokkrar hljómsveitir sem eru alveg loftþéttar: Stones, Zep, Misfits, Stooges, Canned Heat, Van Halen, Guns 'n' Roses og Slayer. Með þetta í plötukassanum ætti sjálfur Johnny Mínus að vera stoltur af að drepast í sófanum þínum. Ekki Gera: Ekki vera þrjóskur múlasnj og vera með járnklædda afneitun á allri annari tónlist en því sem þú telur vera rokk. Það er kallað að vera með opinn huga, vitleysingurinn þinn. Ef þú sérð ekki snilldina í „Ruby don't take your love to town" með Kenny Rogers þá áttu enga von. Þú getur bara haldið áfram að hlusta á Korn þangað til þú ert orðinn nógu gamall til að sjá eftir því. Gera: Ef þú ætlar að fá þér tattú, ekki vera aumingi og fá þér eitthvað lítið sem er auðvelt að fela. Farðu alla leið og skelltu einu á hálsinn, á puttana eða ef þú ert alvöru, beint á andlitið. Hvers konar rokkari ertu ef þú lætur ekki foreldra þína fá hjartaáfall? Ekki Gera: Stelpur, þetta tribal-tattú fyrir ofan rassinn á ykkur á eftir að vera þarna til æviloka. Þegar þið eruð orðnar áttræðar á þetta ógeð eftir að gægjast uppúr fullorðinsbleyjunni þegar það er verið að skipta á ykkur. Gera: Þú vaknar og drekkur fyrsta bjórinn af sextán í morgunsturtunni. Þú skiptir yfir í viskí um kvöldið og heldur þig við það þangað til þér sortnar fyrir augum. Þetta ferli er endurtekið þangað til þú klessir sportbílinn þinn og drepst. Ekki Gera: Víngos er fyrir aula. Og ef þú ert að eyða 800 kalli á barnum fyrir rommskvettu með sódavatni og mintulaufi, þá getur þú bara gleymt þessu. ÁFENGI HÚÐFLÚR FATNAÐUR PLÖTUSAFNIÐ POPPSKÓLI ORÐLAUS HS ' ■ ' • ■■ œs&1' FATNAÐUR Gera: Derhúfa er skyldueign fyrir poppara í dag. Einnig er möst að eiga eitt par af Puma skóm og íþróttapeysu (Adidas, Puma eða Henson) auk snjáðra gallabuxna. Fyrir stelpurnar eru loðnu mokkasíurnar sem fást í 17 algjört möst, flegnir bolir og mínípils. Með þetta allt í fataskápnum væri Heiðar Austman stoltur af þér. Ekki Gera: Ekki fara í Buffalo skó, þeir eru alveg búnir að vera. Ekki fá þér leðurbuxur eða kúrekastigvél, þau bara passa ekki við popp. Þú verslar heldur ekki í Kolaportinu enda áttu ekki flik undir 4.000 krónum. Ekki fara í Ijós, notaðu brúnkuklefa, krem eða klúta. Gera: Fáðu þér vinnu í fatabúð, á bar eða í líkamsræktarstöð. Þar getur þú hlustað á popptónlist alla daga og minglað við fullt af fólki. Það er líka míkið slúðrað á svona stöðum sem er einmitt kjörið fyrir popparana því þeir vilja vera með puttana á því sem er að gerast, hjá hverjum og afhverju. Einnig koma bílaverkstæði vel til greina þar sem bílar eru oft eitt af áhugamálum poppara. Toppurinn er auðvitað að vinna hjá FM eða Popp Tíví. Ekki Gera: Skrifstofustörf ... þú færð enga athygli auk þess sem þú getur ekki hlustað á útvarpið í vinnunni. PLOTUSAFNIÐ Gera: Best of Skímó, Pottþétt 1-35 og Daysleeper eru allt skyldueignir í geisladiskasafni popparans. Auk þess má nefna Justified, In the Zone, Usher og Scooter. „Scream for the man in the lcecreem van" er setning sem kemur þér alltaf í stuð. Ekki Gera: Ekki vera væminn og hlusta bara á ástarlög, popp er stanslaust stuð og gleði. Alls ekki vera tilraunakenndur í tónlist - hlustaðu á það sem er vinsælt hverju sinni og eltu almúgann. Gera: Víngos og kokteilar eru alveg málið. Ávaxtabragðið undirstrikar sykursæta útlitið og sterkir litir passa vel við regnbogalitaðar skoðanir þínar. Ekki Gera: Ekki drekka óblandaða drykki, þú vilt ekki að ógeðissvipurinn á þér sjáist til Kína þegar þú færð þér sopa. HIP-HOP SKÓLI ORÐLAUS Engill Egilsson. •Gera: Nóg af hvítum xx-large stuttermabolum, steinbláar einfaldar gallabuxur, Timberland boots, sérhannaðir Nike Air Force Ones og eins ýktir og hægt er! Ef þú vilt fara alla leið þá treðurðu gallabuxunum ofaní uppháu hvítu sokkana þína og lætur skóna vera sem mest áberandi, sænskur Södermalm stíll. Hettupeysan er eitthvað sem allir hip-hop hausar verða að eiga. Stór og mikil úlpa, ekki endilega bara fyrir veturinn. Yankees derhúfa. Adidas galli eða Jordan galli. Minkapels. Sunnudags klæðnaðurinn; hvítur hlíðermabolur, apaskinns galli og vintage Casall sólgleraugu. Merki: Roca Wear, Marc Eckö, L-R-G, Zoo York, Trible 5 Soul og Fifty 24SF. Ekki Gera: Psycho cowboy gallabuxur, nei takk! „Jesus Is My Homeboy" stuttermabolur, nóbb! Fara rólega í Polo bolina, þeir eru á brúnni að fara að detta niður, sama með allt bleikt. Rúgbý treyjur og föt með of stórum lógóum á, ekki alveg að virka að vera með til dæmis KING KONG JOHNNY BLAZE framaná peysu! Stelpur ... ekki klæða ykkur í baggie buxur!! Stranglega bannað! Trucker derhúfur, frekar þreytt trend ... Sorrý Balli. Yfirgnæfður snjóbrettafatnaður, never been a fan! Merki: Burberry, Johnny Blaze, Phat Farm, J.Lo, Fubu og LaCoste. VINNA Gera: Kentucky Fried Chicken, ekki spurning! Innifalið að vinna á KFC; gettó hárnet, baggie Dickies buxur og nóg af „munchies". Ekki Gera: Kassavinnu í súpermarkaði, of vandræðalegt fyrir hip-hopara. Gera: Fyrst og fremst verðurðu að eiga allar N.W.A., Public Enemy, lce-T og LL Cool J plöturnar, helst á vínyl. Svo er algjör möstí að eiga nýju plötuna frá Antlew Maximum-Time Money & Patience, styðja íslenskt hip-hop! R. Kelly & Jay-Z-Unfinished Business fyrir stelpurnar og jiggy gauranna. Þrátt fyrir að hip-hop sé kannski þitt lingo ekki gleyma Guns N' Roses, Marvin Gaye, Stevie Wonder, M.J. og Rick James í safnið, treystu mér! Ekki Gera: Klassísk tónlist, Vanilla lce, MC Hammer og SCOOTER! shit! ÁFENGI Gera: Það fer eftir hversu langt þú þorir, ég skal setja þetta upp á einfaldan hátt; - fyrir „underground" liðið: Heineken kippa og Captain í kók. - fyrir „ol skool" liðið: Fjörtíu únsa bjórflaska og gin+djús. - fyrir „mainstream" liðið: Kristal kampavín og Armadale vodka. - fyrir mig og mitt fólk: Campari með klökum, Hennessy koníak og Turley „holla" freyðivín. Ekki Gera: Breezer, Tequila, Epla snaps og Screwdriver, fáðu þér frekar vatn!

x

Orðlaus

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.