Orðlaus - 01.12.2004, Page 39

Orðlaus - 01.12.2004, Page 39
Kenndar eru praktískar tegundir förðunar eins og náttúruleg förðun, brúðarförðun, tískuförðun og með mismunandi áferðum eins og mattri, blautri og sanseraðri. Áhersla er lögð á að nemendur æfi sig sem mest bæði í og utan skóla því að með æfingunni kemur færnin. Nemendur eru einnig hvattir til að skoða tískublöðin sem mest, fara á netsíður og skoða hvernig fræga fólkið er farðað; til dæmis að skoða vel alla tískuþætti og virkilega pæla í viðkomandi förðun, hvaða litir eru í gangi, hvernig skyggingar og hvernig áferð, fatnaður, hár, fylgihlutir, bakgrunnur, pósa og hvernig viðkomandi módel tjáir sig. Einnig hvaða tilfinning fylgir viðkomandi Ijósmynd. Þetta er allt mjög mikilvægt þegar kemur að þvi að fara að vinna í faginu. Þegar námið er rúmlega hálfnað er farið útí sköpunarvinnu eftir að nemendur fá að læra förðun liðinna áratuga og bodypaint. Þá kemur að nemandanum að hanna sjálfur ýmsar tegundir förðunar ásamt allri umgjörðinni fyrir myndatökur. Þetta er mjög krefjandi fyrir nemendur því á þessum tímapunkti nær sköpunin hámarki. í lok annar eru verkleg próf með myndatökum. Myndirnar fá nemendur til eignar ásamt viðurkenningarskjali. Leiðbeinendur skólans eru allir með mikla reynslu í faginu sem og við kennslu sem tryggir nemendum faglega kennslu. Næsta önn hefst 31. janúar næstkomandi og er skráning vel á veg komin. Skráning er í skólanum og eru áhugasamir hvattir til að kynna sér skólann með því að mæta á staðinn eða hringja í síma 544 8030. Þegar nemendur mæta í upphafi annar er byrjað á að kenna undirstöðuatriðin eins og undirbúning fyrir förðun, lögun augabrúna og vara, skyggingar andlits og hvaða þýðingu það hefur að móta andlitið. Einnig er mjög mikilvægtað nemendur fái strax tilfinningu fyrir förðunarvörunum; þá verður árangurinn bestur. í skólanum eru notaðar heimsþekktar vörur frá MAKE UP FOR EVER en þær eru einmitt hannaðar og framleiddar af fagfólki. Þetta tryggir nemendum hámarksárangur í faginu. Nemendur þjálfast í að skoða andlit og þá möguleika sem þau hafa upp á að bjóða. Förðunarskóli MAKEUPFOREVER er starfræktur í Kópavoginum. f skólanum er kennd Ijósmynda- og tískuförðun og tekur námið alls 13 vikur. Kennt er 4 virka daga vikunnar 4 klukkustundir í senn og er hægt að velja um að vera á morgnana eða á kvöldin. Þetta nám er góður grunnur til áframhaldandi náms hvert svo sem hugur nemenda stefnir, en hægt er að fara í framhaldsnám víða erlendis. Lab Monkeys - Mynd:Tótifotó - Rider: Ingó Olsen

x

Orðlaus

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.