Orðlaus - 01.12.2004, Blaðsíða 44

Orðlaus - 01.12.2004, Blaðsíða 44
Texti: Margrét Hugrún Mynd: Árni Að bregðast við með því að fara í netta vörn hljóta að vera eðlileg viðbrögð manneskju sem heyrir í fyrsta sinn minnst á ástar- og kynlífsfíkn, enda virðist þessi áratugur sem við lifum núna með endemum litaður af allskonar vandamálaskilgreiningum sem enginn hefur áður heyrt um. Halldór Laxness blessaður sagði í einhverri bókinni að mannkynið ætti eftir að farast úr sálgreiningum og sýfilis og það er kannski ekki svo langt frá sannleikanum nú á gullöld geðlyfja og lauslætis. Þrátt fyrir það má alveg skoða ástar- og kynlífsfíknar fyrirbærið betur, því að á sama tíma og ótrúlegustu sálarástönd eru orðin vandamál verður ekki undan því litið að daginn út og daginn inn er haldið að okkur margskonar ástar og kynlífsáróðri sem erfitt er að loka augunum fyrir. Bíómyndir, sjónvarpsþættir og dægurlagatextar hamra á því að ástin sé málið og að það sé ekki hægt að lifa hamingjusamur án þess að finna sér maka og stunda kynlíf eins og kynbótanaut. Þá sé maður hálfur kálfur og allt í klessu. Kynlífsaldan í fjölmiðlum hefur einnig orðið til þess að menn eru farnir að fletta klámi á netinu meðan þeir borða rúnstykkið og einkaritararnir lesa um snípsáburði á femin.is. Eðliiega hljóta að verða margskonar afleiðingar af þessu, bæði góðar og slæmar og maður væri bara vitlaus að reyna að horfa framhjá því. Þessvegna ákvað ég að slaka aðeins á vörninni og kanna þessar fíknir aðeins. Hvað er fíkn? Byrjum á því að pæla aðeins í fyrirbærinu fíkn. Fíkn er stundum líkamlegt og undantekningarlaust andlegt ástand sem þróast í lífi einstaklinga á míslöngum tíma. Fíkninni tengist endurtekin hegðun og þráhyggjukennd hugsun sem snýst umákveðna manneskju, eða, í tilfelli áfengis-eða eiturlyfjafíknar, um það efni sem einstaklingurinn notar. í byrjun veldur hegðunin og hugsunin vellíðan og "vímu" sem verður til þess að einstaklingurinn sækir í að komast aftur í ástandið. Lykillinn að þvi að eitthvað geti orðið að fíkn er að þetta svokallaða "vímu" ástand myndist, og hver hefur ekki heyrt talað um að vera í "ástarvímu"? Að komast í vellíðunar ástand er eitthvað sem gefur okkur aukinn kraft og mannskepnan sækir í þetta ástand aftur, þó að það sé oft skammvinn sæla sem varir ekki lengi. ( kjölfar fíknarinnar myndast þráhyggjuhugsun, þráhyggjuhegðun, tímaskortur, dagleg verk falla fólki úr hendi, sambönd glatast, fólk skilur hvert við annað og likamlegri og andlegri heilsu fer hrakandi. Stigvaxandi fíknin verður undirliggjandi drifkraftur manneskjunnar og nánast ekkert annað kemst að í lífinu. Kynlífsfíkn Kynlífsfíkn ertil á mörgum stigum og birtingarmyndir hennar eru allt frá þráhyggjukenndri sjálfsfróun til kynferðisglæpa, en núna ætlum við bara að skoða það sem er kallað fyrsta stigs kynlífsfíkn, en með því er átt við kynferðishegðun þar sem enginn er fórnarlamb í lagalegum skilningi þess orðs. Kynlífsfíkill sem ekki er orðinn svo langt leiddur að hann sé farinn að stunda beina kynferðisglæpi getur stundað strippklúbba, skoðað klámblöð og klámmyndir. Hann getur fróað sér fram úr hófi, keypt sér vændi, stundað margendurtekið "einnar nætur gaman" eða átt mjög marga bólfélaga. Einnig getur hann dvalið langtímum saman á spjallrásum á netinu, stundað símasex og svo mætti lengi telja. Kynlífsfíkillinn getur fundið sig í einu eða mörgum þessara atriða en hegðun hans er þráhyggjukennd, endurtekin og henni er stjórnað af fíkn. Það sem í upphafi einkenndist af forvitni og smá spennu er nú orðið að þráhyggju, sektarkennd, sjálfsréttlætingum og tilfinningalega ruglandi ástandi. Þetta fer að taka meiri og meiri tíma í lífi fíkilsins, jafnvel þótt "kikkið" sem hann fær út úr þessu verði minna og minna. Oftast leynir hann þessu fyrir þeim sem standa honum nærri. Hann deilir kannski toppnum af ísjakanum með vinum sínum en ekki því hversu mikill timi og orka fer í þetta. Ef fíkillinn er giftur eða í föstu sambandi verður hann að halda hegðun sinni leyndri fyrir makanum með lygum og tilheyrandi blekkingum. Hannþarfað útskýra í hvað peningarnir og tíminn fara, hvar hann var, með hverjum og hvað hann var að gera og á meðan fíknin kallar á meira og meira verður ánægjan innantóm og lýjandi. Vandamálin og allar óþægilegu tilfinningarnar byrja að vega mun þyngra en "kikkin" og hann er orðinn vandlega fjötraður af fíkninni. Ástarfíkn ( fyrstu virðist það vera undarleg þversögn að setja ást og fíkn saman i eitt orð en ef þú skilur hvernig fíknir virka í lífi fólks þá ætti þetta orð ekki að vera svo torskilið. Fíkn er ástand sem myndast þegar manneskja verður háð tilfinningu sem skapast við ákveðna hegðun og í þessu tilfelli er tilfinningin ást. Eins og áður segir setur þjóðfélagið sem við lifum í ástina á milli tveggja einstaklinga í algjört öndvegi. Við sjáum ást eða rómantíska ást sem grundvallar undirstöðu þess að við höfum áhuga á því að fara í alvarlegt samband við aðra manneskju. Ef það er engin rómantík í loftinu og okkur finnst við ekki vera ástfangin þá er ekki líklegt að við sjáum hjónaband eða sambúð á næsta leyti. Að vera ástfanginn er ástand sem fær mann til að ttlíða eins og maður sé hátt uppi, í ástarvímu, alsælu. Maður fær aukinn kraft og veröldin breytir um lit. Við þurfum ekki annað en að kveikja á útvarpinu til að heyra eins og einn popptexta sem reynir að lýsa þessu ástandi. f/(af/í/ó/* ffáiænC'S'rS' /j /e<s\s'acfu/€ 'S ac/cfc í ei/ifuje/€/€í /jó/cc/aic cccf /rc cc/i/if cy/t ccf ce/ic e/tc/€ acfýcc/ncst cc/€ 'S'á/cj/€ec/cc/icycc/Jí oty #cy/c/c\s' crcy /jacf e/€ Áa/t/i'S'/ic e/e/cc 'S cjcj /ancyt ^ //Hc 'S'ccnn /ec/c ccnccni /ccc cfcycc/fö/c/ c cyecf/cy/ycc cjcy /aeeA'/œtis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.