Orðlaus - 01.12.2004, Blaðsíða 48

Orðlaus - 01.12.2004, Blaðsíða 48
Ég held að konur geri of lítið úr snípnum sínum. Snípurinn er besta vinkona okkar (þó hún sé karlkynsorð). Karlmenn eru það heppnir að „snípurinn" þeirra er stærri og meiri að flatarmáli og er það svæði sem verður fyrir stanslausri örvun á meðan samförum stendur. Sem gerir það kannski að verkum að karlmenn hugsa of mikið um það líkamlega, kannski af því að kynferðisleg örvun er auðveldari fyrir þá líkamlega séð en okkur konur. Ég veit ekki um margar konur sem fá fullnægingu ef að hugurinn er ekki örvaður samhliða hinu líkamlega. Ef að framandi pía, ást eða erótík er eitthvað sem vekur upp huglægan losta hjá karlmönnum þá vil ég halda að það sé meira rjóminn ofan á súkkulaðið. Fyrir okkur konur er ekkert súkkulaði án rjóma. V Stelpur, við erum KONUR! Við eigum heiminn. Við verðum að fanga kvenleikann okkar og rækta hann. Ég er ekki að hvetja ykkur til að sýna hold eða troða ykkur í steríótýpu föt sem passa engum sem ekki er fótósjoppaður. Kvenleikinn liggur ekki í útlitinu. Kynþokkinn liggur ekki í brjóstastærð. Kynþokkafulli kvenleikinn okkar er tilfinning sem ekki sést heldur er hún skynjuð, bæði af okkur sjálfum og öðrum. Ég er að hvetja ykkur til að frelsast. Það er alveg sama hvernig við lítum út eða kroppurinn er lagaður. Við erum konur! Allar konur geta fengið karlmenn til num - sinn, þekkja snípinn - okkar bestu vinkonu og leyfa tilfinningum henni tengdri að hafa yfirhöndina yfir neikvæðum hugsunum. Við verðum að gera okkur grein fyrir tilfinningalega gildinu sem við tengjum við kynlíf, við snípinn okkar, sjálfsöryggið, kvenleikann og kynþokkann. Kona sem ekki er sátt við sjálfa sig eða sátt við örlög fortíðar sinnar getur ekki fullkomlega frelsað sjálfa sig frá neikvæðum hugsunum í sinn garð og fundið sitt eigið sjálf, kynþokkann eða kvenlega að segja nammi nammi namm. Allar konur eru rjómi ofan á súkkulaði. Við þurfum bara að finna það sem býr í okkur öllum. Kvenleikann. Engin kona er eins. Við erum alls konar í laginu og með alls konar karaktera og höfum allar ólíkar hugmyndir um hvað kvenleiki er. En hvert er hitt sanna kvenlega eðli? Og hvar finnum við það? Mér finnst að það megi líta á snípinn sem hinn kvenlega play-takka. Því hvenær er það sem við erum algjörlega óháðar líkama okkar og hugsunum? Hvenær erum við algjörlega frjálsar? Það er þegar við fáum fullnægingu. Hvar sem hún byrjar, í höfðinu eða maganum, þegar fullnægingin heltekur þig ertu algjörlega frjáls og ert ekkert nema KONA. Þú ert ekki lengur feit eða ijót eða loðin eða heimsk eða neitt af því sem þú ert svo ranglega búin að sannfæra þig um að þú sért, þú ert ekkert nema KONA, og þér líður vel. Þetta er það sem við þurfum að grípa og halda um, þessa óháðu frelsistilfinningu, kvenleikann okkar og kynþokkann. Ég er ekki að segja að við eigum að halda uppi einni samfelldri raðfullnægingu alla daga (við kæmum nú ekki miklu i verk ef við gætum það, híhíhí) heldur er ég að tala um að þekkja líkama BEYONCE KNOWLES OG NEFIÐ Fyrr í haust skellti undirrituð sér til Köben til að vera viðstödd blaðamannafund þar sem kynntur var nýi ilmurinnfrá Tommy Hilfiger. Mér fannstfrekar fyndið að komast að því að útkoma ilmvatns væri tilefni til alþjóðlegs blaðamannafundar en komst fljótt að því að ilmvatnsbransinn er mun umfangsmeiri en ég hafði gert mér í hugarlund. Þetta nýja ilmvatn kallast True Star, a private performance og var unnið í nánu samstarfi við ofurstjörnuna Beyonce Knowles. í okkartæknivædda heimi hélt ég að ilmvötn væru algjörlega tölvuvædd framleiðsla og að löngu væri búið að taka hinn mannlega þátt út, ég var því frekar hissa þegar ég komst að því að á bak við þennan ilm stóð eitt frægasta „nef" í heimi! „Nefið" heitir Raymond Matts, bandarískur karlmaður á fertugsaldri og á að baki langan feril í ilmvatnsgerð. Hann gerði meðal annars Clinique Happy, T for men og DKNY Simply. Ray er menntaður i hagfræðitengdri skipulagðri glæpastarfsemi og hugði ekki á landvinninga í ilmvatnsbransanum á sínum yngri árum. Hending réði því að hann fór í markaðsnám á ilmvörum og þaðan leiddist hann svo út í gerð á ilmvötnum. Hann var 3 ár að vinna að True Star þar til fékkst útkoma sem hann, Tommy Hilfiger og Beyonce Knowlesvoruöllánægðmeð. Ilmvatniðsamanstendur af þremur tónum; sætum keim sem minnir á hafra, blómailmi og síðan mjög ferskum ávaxtailmi. Ray velur tóna sem hann finnur í umhverfinu og tengir einhverju sem hann hefur upplifað. Ilmvatnið er því mjög lifandi og er maður lengi að átta sig á því og finnst eins og það breytist þegar það fær að anda. Flaska ilmvatns sagði Ray líka að skipti gífurlegu máli í sölu þess og var mikill tími lagður í hönnun glassins. Glasið er vatnsblátt á lit og minnir að mörgu leit á verðlaunagrip og er það vísan í undirtitilinn, a private performance, þar sem átt er við að allar konur eigi sínar stundir þar sem þær eru stjörnur. huqavert um ilmvötn I lokin notaði ég tækifærið og spurði hann hvort ekki væru einhver leyniráð þegar kæmi að ilmvötnum. Hann sagði mér að flest af því sem sagt sé um ilmvötn sé algjör vitleysa. Eins og t.d. það sem við höfum allar heyrt að ef maður finni lyktina af sér þá eigi hún ekki við mann. Hann sagði að það færi bara eftir því hvaða tónar væru notaðir, sumum vendist nefið strax en sum ilmvötn ná að halda athygli manns mun lengur. Þegar við prófum ilmvötn á maður heldur aldrei að þefa af flöskunni eða spreyja á únliðinn, best er að spreyja á ermina á sér og bíða síðan þar til lyktin berst til manns. Ástæða þessa er að gott ilmvatn þarf að anda og er því sjaldnast gott ef þefað er af flöskunni. Hann sagði mér einnig að maður ætti að vara sig ef lyktin er góð af ilmvatninu í fullum styrk þar sem sumir ilmvatnsframleiðendur væru farnir að framleiða ilmvötn með það í huga að þau séu góð þegar maður þefi af þeim i fullum styrk en slík ilmvötn missa fljótt lyktina þegar þau komast í snertingu við andrúmsloftið og hreinlega gufa upp. í lokin bað ég hann um að setja á mig smá True Star og hann spreyjaði í hárið á mér og sagði mér að það væri besti „berinn" fyrir ilmvötn þar sem fitan í hárinu varðveitti það og auk þess léki þannig loft um ilmvatnið og lyktin dreifðist betur. eðlið, síður þá fullnæginguna. Og það er enginn annar sem getur fundið það fyrir þig heldur. Minni ykkur á það, mínar kæru konur, að við erum færar um að fá fullnægingu án þess að vera snertar. Ef við náum tökum á því getum við fengið það hvenær sem er, hvar sem er, án nokkurrar snertingar. Það eina sem við þurfum er okkar eigin huglæga örvun, tilfinningar, meðvitund og ímyndunarafl. Það er okkar kvenleiki og okkar kynþokki sem gerir okkur kleift að gera þetta. Þetta geta konur. (Ég meina það, við virkilega getum það!) Mérfinnst, að alveg eins og og kóngur á karlmönnum er kallaður kóngur, ætti snípurinn okkar að vera kallaður drottningin. Nú líður að jólum og ég ætla að gefa ykkur, stelpurnar mínar, sem ég hef skrifað fyrir svo lengi þessar hugrenningar i jólagjöf, með von um að ykkar kvenlega eðli brjótist fram og við förum inn í nýtt ár í þokkafullri sveiflu, fullar sjálfstrausts vitandi það... að það eru karlmenn sem eru rjóminn ofan á súkkulaðikroppana okkar. Óska ykkur fullnægðar og gleði á komandi ári. Mínar bestu kveðjur, Rjómahanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.