Orðlaus - 01.12.2004, Side 54

Orðlaus - 01.12.2004, Side 54
M Wj&M GrJ ip) Það er bæði einfalt og ódýrt að skeila sér til London því lcelandair fljúga þangað á hverjum degi. Það tekur álíka langan tíma að keyra til Akureyrar og að fljúga með lcelandair til sameinaða konungsdæmisins. Ferðin þarf ekki að vera dýr því í London er hægt að gera mun meira en að hanga í rándýrum verslunum. Eitt af því sem gerir London að svo yndislegri borg er að það er næstum því hægt að skipta henni í nokkur lítil lönd og í hvert skipti sem þú ferð yfir ein af mörgum ósýniiegum landamærum þá breytist umhverfið, fólkið og jafnvel tungumálið! Hinir fjölmörgu markaðir og garðar í borginni litast af umhverfi sínu og segja jafnframt heilmikið um hverfið og fólkið sem þar býr, það er að segja ef túristar eins og ég eru ekki taldir með! Camden Tveir stærstu markaðir borgarinnar eru markaðirnir í Camden og svo markaðurinn á Portobello Road í Notting Hill. Camden-markaðurinn er í rauninni nokkrir litlir markaðir út frá Camden High Street sem ásamtvvv fjöldanum öllum af litlum búðum og veitingastöðum mynda mjög spes svæði sem er gjörsamlega troðið um helgar! í Camden er best að fara úr á Camden Town-lestarstöðinni og taka síðan stefnuna beint upp götuna í áttina að Camden Lock- markaðnum sem er auðkenndur af litlum hvítum sölutjöldum sem hlykkjast um gömul vöruhús. Þar eru bestu básarnir ef hægt er að segja slíkt og líka skemmtilegasta umhverfið. Á hinum mörkuðunum í Camden er svolítið mikið verið að selja sömu hlutina og eftir 10. básinn ertu búinn að sjá allt sem í boði er! Camden er best að skoða um helgar en sumir básarnir eru opnir alla vikuna. Markaðurinn á Portobello Road er stærri og fjölbreyttari en sá í Camden og hægt að finna eitthvað fyrir alla þar. Hvort sem þú ert á höttunum eftir einhvers konar antík, tónlist, bókum, notuðum fötum eða fötum eftir unga hönnuði þá finnurðu það á Portobello í Notting Hill! Markaðurinn hlykkjast eftir þessari löngu götu; efst eru antík salarnir, svo koma grænmetissalarnir og á eftir þeim svona týpískir enskir sölubásar sem selja ódýr úr, töskur, föt og gatan endar svo í svona Kolaportsfíling þar sem notuðu fötin og ungu hönnuðirnir eru. Þetta er svolítið eins og maraþon því það gefast ansi margir upp á leiðinni og það er því ekki nærri eins troðið þarna eins og ofar. Ef fólk hefur lítinn tíma þá myndi ég hreinlega mæla með að fólk færi beint i þennan hluta og tæki lestina á Ladbroke Grove-stöðina í staðinn fyrir Notting Hill Gate. Eins og með Camden þá er þessi markaður langbestur á laugardögum og það er ekki vitlaust að taka bara daginn snemma, þá er færra fólk og hérna gildir reglan: fyrstur kemur, fyrstur fær. Alveg eins og myndin Notting Hill gerði samnefnt hverfi frægt hefur myndin Bridget Jones dregið fólk að Borough Market og umhverfi en þar býr Bridget steinsnar frá og verslar í matinn. Það verður enginn svikinn af þessum markaði sem sérhæfir sig í hinum og þessum matvælum, hann er opinn alla vikuna og er beint á móti London Bridge-lestarstöðinni. Ferskt grænmeti beint frá bóndanum, ferskur fiskur og kjöt ásamt kryddum og eiginlega bara öllu sem viðkemur mat er á boðstólum og það eru fagmennirnir sjálfir sem sjá um að selja. Að sjálfsögðu er ekki bara verið að selja hráefnið heldur er líka hægt að kaupa sér eitthvað til að seðja sárasta hungrið en það er ekki frá því að maður verði svangur af því að labba þarna um allan þennan mat! Þessi markaður er algjör himnasending fyrir sælkera og nauðsynlegt stopp á eftir matardeildinni í Harrods. Síðan má finna fjölmarga aðra en minni markaði í borginni eins og Brick Lane, Spitalfields og Petticoat Lane en þeir eru allir opnir á sunnudögum. í Covent Garden er líka smá markaðsstemming í gamla markaðshúsinu og þar er opið alla vikuna. Fyrir þá sem eru á leiðinni til London myndi ég mæla með því að nota laugardag og sunnudag í að kíkja á St. James Park markaðina og forðast Oxford-stræti eins og heitan eldinn. Og svo þegar menn eru búnir að fá sig fullsadda af mannfjöldanum og stressinu er hægt að ná andanum aðeins í hinum fjölmörgu almenningsgörðum borgarinnar. Þeir garðar sem auðveldast er að kíkja á eru Hyde Park, Kensington Gardens, Regent's Park, Green Park og svo St. James' Park. Hyde Park Hyde Park (ásamt Kensington Gardens) er stærstur og í beinu framhaldi af Oxford-stræti en þó hinir séu minni eru þeir alls ekki ómerkari. Kensington er kannski frægastur fyrir tengslin við Díönu prinsessu en hún dvaldi í Kensington-höll þegar hún var í London og þangað flykktist fólk með blóm eftir slysið í París 1997. St. James' Park er í sérstöku uppáhaldi hjá mér en þessi garður liggur eiginlega á milli Trafalgar- torgs og Buckingham-hallar, í framhaldi af Green Park. Eftir honum endilöngum hlykkjast lítið síki og þar er heilmikið fuglalíf, allt frá krákum til svartra svana. Hann er einn af konunglegu görðunum og er því mjög vel viðhaldið. Þarna má alltaf finna nóg af fólki á röltinu, hvort sem það er á morgnana eða seinnipartinn og það verður enginn svikinn af heimsókn þangað. Svo má ekki gleyma öllum þeim litlu almennings- görðum sem eru á víð og dreif um borgina, oft þarf ekki meira til en að fara örlítið inn í hverfin til að finna þessa garða. Þarna slappar fólkið í hverfinu af á bekkjum sem eru oftast kostaðir af fólki til að minnast náins ættingja eða vinar eða samtökum sem vilja minna á einhvern atburð. í Tavistock Square Garden má finna bekk til minningar fórnarlamba Hiroshima og eins bekk um fallna hermenn úr seinna stríði. Næst þegar þið eigið leið um London þá er hægt að hafa þetta bak við eyrað, kíkja í almenningsgarð til að hlaða batteríin fyrir næstu búðarferð eða taka laugardagsmorgun snemma og kíkja á mannlífið fyrir utan miðbæinn.

x

Orðlaus

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.