Orðlaus

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Orðlaus - 01.12.2004, Qupperneq 55

Orðlaus - 01.12.2004, Qupperneq 55
 Hrútur (21. mars - 20. apríl) Allt hefur verið í óreiðu hjá þér upp á síðkastið, en það þýðir einungis að þú stendur á kaflaskiptum í lífinu. Miklar breytingar eru framundan og þú átt eftir að taka mjög óvænta stefnu, þér og þínum til mikillar ánægju. Þú þarft þá að losa þig undan öllum tilfinningaflækjunum sem hafa angrað þig og halda á önnur mið. Nú ættirðu að huga að því að breyta til í vinnunni líka. Nýta alla hæfileika þína til fulls og sýna hvað í þér býr. Búðu þig undir mikla rómantík í kringum jólin, eitthvað sem þú hefur ekki vanist að undanförnu. f>ú verður búin að ná áttum í kringum áramótin og verður þá gjörsamlega geislandi af ánægju og kynorku og getur heillað hvern sem er. 'b' H Naut (21. apríl - 21. maí) Þú hefur átt erfiða tíma, en nú verðurðu að hætta að horfa til baka og byrja að treysta á ný. Ef þú ert heiðarleg við sjálfa þig og aðra þá áttu eftir að finna það sem þú ert að leita svo grimmt að. Einhvern sem skilur hvernig þú ert og tekur þér með þínum kostum og göllum. í vinnunni verðurðu að læra að standa á eigin fótum og hætta að leita svara hjá öðrum vinnufélögum. Finndu þau sjálf! Þú átt eftir að lenda í miðjunni á leiðinlegum misskilningi á næstunni og þarft að hugsa vel út hvert einasta orð sem þú segir við deiluaðilana. Eftir allt vesenið eru farsælli tímar framundan hjá nautinu sem mun eiga sérstaklega áhugaverð áramót. Tvíburi (22. maí - 22 júní) Þú hefur verið alveg sérstaklega lífleg að undanförnu og fólk hreinlega sogast ífélagsskap þinn. Þú ættir að nýta þér þessar auknu vinsældir til fulls, skipuleggja einhverja uppákomu eða stórt partý, því þú getur auðveldlega fengið fólk til liðs við þig núna. Ekki fá samviskubit yfir að nýta þér aðstoðina, þetta mun koma vel út fyrir alla. Velgengni á eftir að einkenna byrjun næsta árs, bæði í ástar- og peningamálunum og ef þú passar að fara ekki fram úr þér á hún eftir að færa þig hratt upp þrepstigann, jafnvel út fyrir landsteinana. Já, árið 2005 er árið þitt! Krabbi (22. júní - 23. júlí) Tækifærin gjörsamlega þefa þig uppi þessa dagana og þú átt erfitt með að velja úr frábærum tilboðum. Farðu þér þó varlega í félagslífinu. Þú ert á því tímabili sem þér finnst þú þurfa að rasa út og sigra heiminn en gerir endalausar vitleysur á leiðinni, þannig að þú vilt helst hverfa ofan í skóna þína. Vissulega skemmtir þú þér og fólkinu í kringum þig, en aðeins til skamms tima, því fallið verður stórt ef þú slakar ekki aðeins á. Tækifærin geta þýtt nýtt ástarsamband ef þú gefur þér tíma í það, en ef þú rasar svona út þá gætu tækifærin þýtt hrikalega eftirsjá og ástarsorg. Þetta er samt allt gott og blessað því þú munt fá spennandi vinnutilboð á næstunni sem gæti tekið allan þinn tíma. Ljón (24. júlí - 23. ágúst) Ekki láta einhver formsatriði stoppa þig í að gera það sem þú vilt gera. Þessi endalausa óákveðni þín er að verða gjörsamlega óþolandi, eða það finnst þínum nánustu. Þú átt bara eftir að missa það sem þú tekur sem sjálfsögðum hlut með þessu áframhaldi. Fyrstu vikurnar i desember eiga eftir að vera alveg hrikalega annasamar, en strax eftir jól kemur mikil spenna inn í líf þitt. Mjög hugsanlegt er að þú takir saman við fyrrverandi elskhuga eða kærasta og þá á allt öðrum nótum en var áður. Þú átt það til að vera áhrifagjörn og auðvelt er að æsa þig til að gera heimskulega hluti, sérstaklega núna. Ekki láta vinnufélagana plata þig í að gera einhverja vitleysu. Stattu frekar ein utan við áformin hjá þeim á næstunni og þú munt vinna þér inn góð stig hjá yfirmanninum. m. Meyja (24. ágúst - 23. september) Þú hefur sýnt ótrúlega ábyrgð upp á síðkastið og hefur tekið að þér verkefni sem flestir voru löngu búnir að flýja. Gífurleg þreyta mun því hellast yfir þig um miðjan mánuðinn, en ef þú tekur jólaundirbúningnum með ró og reynir að forðast allt jólastressið eiga síðustu dagar mánaðarins eftir að verða ofboðslega þægilegir og notalegir. Þú munt ganga í gegnum miklar breytingar í byrjun næsta árs og verður öll í mun meira jafnvægi en áður. Rómantík mun kvikna á vinnustaðnum eða í skólanum og þú átt eftir að kynnast allt annarri hlið á manneskju sem þú hefur þekkt í nokkurn tíma. Öll sú reynsla á eftir að koma þér til góðs í framtíðinni. X1 Sporðdreki (24. október - 22. nóvember) Þú ert trú þínum nánustu og ert ótrúlega tilfinninganæm um þessar mundir, bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. Þúátt þóauðvelt meðaðaðlagast þreyttum aðstæðum og óvæntum uppákomum sem er mjög gott miðað við vikurnar sem eru framundan. Sporðdrekinn er nefnilega í endalausu stuði núna eftir frekar rólegar vikur. Þú átt eftir að vera hrókur alls fagnaðar um jólin og áramót og ekkert virðist geta stoppað þig. Nýttu þessa orku vel, ekki bara í félagslífinu því það eru flutningar eða aðrar breytingar í vændum. Sparsemi þín síðustu mánuði á eftir að koma sér vel núna þar sem launahækkun virðist í vændum, það er ef þú biður um hana, og núna ertu loksins búin að læra hvernig þú átt að fara með peningana þína. Eyddu þeim skynsamlega! /wt Vatnsberi (21. janúar - 19. febrúar) Þú hefur ekki kvartað mikið að undanförnu og engin ástæða til heldur. Ótrúleg vellíðan og innri ró hefur einkennt þig og mun gera það áfram ef þú lætur ekki jólahasarinn gleypa þig. Þú átt eftir að falla fyrir manneskju á næstunni sem er ákveðin og nokkuð stjórnsöm en þið náið vel saman eftir því sem þið kynnist betur. Úr þessu gæti orðið langvarandi samband eða mjög góður vinskapur. Þú hefur haft mikla þörf fyrir félagsskap upp á síðkastið og það virðist ekkert vera að breytast, að minnsta kosti ekki næstu vikurnar. Þú átt eftir að skemmta þér konunglega út árið enda eru endalausar veislur og partý sem þú mátt alls ekki missa af. Eftir að flugeldarnir eru slokknaðir og kampavínið búið ættirðu þó aðeins að fara að róa þig niður og einþeita þér að heimilinu. Bogamaður (23. nóvember - 21. desember) Ekki vera alltaf þögula manneskjan í vinahópnum. Þú veist þig langar að segja þínar skoðanir og það á enginn eftir að hlæja að þér. Eirðarleysi hefur einkennt þig alvegfrá því í haustog hluti af vandanum er sá að þú þráir meira frelsi til þess að geta verið þú sjálf. Þú þarft að fara að breyta um umhverfi, flytja, fara í nám eða breyta um vinnu. Gera eitthvað alveg nýtt og kynnast ólíku fólki. Um leið og þú kemst út úr rútínunni sem þú ert svo föst í áttu eftir að að daðra við þá sem þú hefðir ekki einu sinni þorað að heilsa áður. Mikil ást og rómantík er í vændum hjá bogmanninum ef hann tekur smá stefnubreytingu og hættir að fela sig á bak við vinkonuskarann. K Vog (24. september - 23. október) Þú hefur verið full af sektarkennd og samviskubiti að undanförnu en gerir þér ekki alveg grein fyrir af hverju. Þú verður að komast að rót vandans ef þú ætlar að ná að klára öll plönin sem þú varst búin að setja þér fyrir áramótin. Um miðjan mánuðinn áttu eftir að lenda í miðjunni á rifrildi í sambandi sem þú tengist á frekar furðulegan hátt, en þú átt eftir að tengjast annarri manneskjunni mun betur á eftir. Einhver særindi munu þó leiða af þessu ef þú reynir ekki að segja sem minnst. Byrjun næsta árs mun einkennast af vinnuleiða því þér finnst þú ekki vera að stefna að neinu marki, en þá þýðir ekki annað en að hætta að vorkenna sér og drífa sig í að finna út hvert þú vilt stefna. Endurnýjaðu ferilskrána og farðu að skima um eftir nýrri vinnu! Steingeit (22. desember - 20. janúar) Þú hefur látið nánast allt eftir þér síðustu vikur og hefur á ótrúlegan hátt talið þér trú um að þú eigir skilið að kaupa allt sem þig langar í. Sem betur fer ertu ekki aðeins örlát á sjálfa þig heldur á aðra líka. Þessi lifnaðarháttur hefur þó safnað vöxtum og brátt kemur að gjalddaganum! Komdu skipulagi á fjármálin hjá þér áður en árið tekur enda og byrjaðu það nýja með gjörólíkum áherslum. Komdu einhverjum, sem þú hefur vanrækt, á óvart um jólin og hvernig væri að gera smá jólalegt heima hjá þér? Þá muntu skilja að lífsþægindi og rómantík þurfa ekki að kosta morðfjár. Samband sem þú taldir vera traust mun fara í háaloft í byrjun ársins og það á eftir að taka þig smá tíma að ná áttum. Allt á það samt eftir að leiða af sér mun ánægðari steingeit. Fiskar (20. febrúar - 20. mars) Þú hefur haft ótrúlega sköpunarþörf upp á síðkastið og hefur komið meiru i verk en þú hefðir þorað að vona. Haltu áfram á þessum krafti og þú munt geta skálað fyrir sjálfri þér á gamlárskvöld án þess að vera með neina eftirsjá. Ást og rómantík mun siðan kvikna í janúar, hvort sem um er að ræða nýtt samband eða bætt samskipti í því gamla. Líklegt er að þú gerir breytingar í námi eftir áramótin og ákvarðanirnar eiga eftir að vera erfiðar, en gefðu þér bara góðan tíma í það. Mjög dularfullur aðili á eftir að koma inn í líf þitt í byrjun næsta árs sem þú átt erfitt með að botna í, en þú átt eftir að læra mikið á samskiptum ykkar. Slepptu þér aðeins út í óvissuna og árið á eftir að verða mjög viðburðaríkt, á allan hátt.

x

Orðlaus

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.