Orðlaus - 01.10.2005, Blaðsíða 4
iPÓLfiO áFRfim^
OC-fatalína
Þættirnir The OC sem
sýndir eru á Skjá einum
njóta gífurlegra vin-
sælda bæði hér heima
sem og erlendis. Ekki
nóg með að söguper-
sónurnar eru allar ríkar
og fallegar þá lenda
þær í alls kyns drama
sem fær fólk til að lím-
ast við skjáinn. Nú hafa
forsvarsmenn þáttanna lagt á það ráð að selja sérstaka OC
fatalínu á amazon.com til þess að auka enn á vinsældirnar,
en hægt er að fræðast um tískuna á heimasíðu þáttarins
www.theoconline.com. Nú geta unglingarnir því reynt að
líkjast stjörnunum Marissu, Ryan, Seth, Summer og fleirum.
Metallica Tribute-Band
Heyrst vhefur að
Bjarni gítarleikari
og Bjössi trommu-
leikari úr Mínus
séu búnir að taka
höndum saman
við Smára Tarf og
Adda úr Sólstöfum
en þeir hyggjast
setja saman dúnd-
urMetallica tribjút-
sjóv. Það verður án
efa góð mæting á
slíka tónleika enda ekki slakir hljóðfæraleikrar hér á
ferð og Metallica auðvitað ein vinsælasta hljómsveit
fyrr og síðar. Aldrei hafa jafn margir (slendingar mætt
á tónleika eins og með sveitinni í Egilshöll þar sem færri
komust að en vildu og því bíðum við auðvitað spenntar
eftir þessu.
UNIFEM og Alþjóðleg kvikmyndahátíð
Nú stendir yfir Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík þar
sem einn af sjö kvikmyndaflokkunum er sérstakur mannrétt-
indaflokkur þar sem sýndar eru sex verðlaunamyndir. Af því
tilefni stendur UNIFEM fyrir sérstakri fundardagskrá dagana
4.-7. október þar sem hægt verður að spjalla við leikstjóra og
taka þátt í umræðum um kvikmyndirnar, mannréttindamál
og bága stöðu fólks víðsvegar í heiminum.
Nánari dagskrá má sjá á heimasíðu UNIFEM, www.unifem.
is
Erlendir blaðamenn á Airwaves
Tímaritið Grapevine í samvinnu við aðstandendur lceland
Airwaves og Flugleiði hyggjast standa fyrir daglegri útgáfu
á 24 síðna blaði, Grapevine Airwaves 2005, á meðan á tón-
listarhátíðinni stendur. Það sem færri vita þó er að strákarnir
á blaðinu hyggjast flytja til landsins sex blaðamenn, tvo Ijós-
myndara og aðstoðarmann frá Evrópu og Bandaríkjunum
sem munu vinna við skrif og Ijósmyndun í blöðin við hlið
starfsmanna Grapevine. Um er að ræða fólk sem hefur mikla
reynslu í þessum bransa og munu þau flakka á milli tónleika
og skrifa um íslensku og erlendu sveitirnar. í þessum hópi
eru tónlistarritstjórinn Bart Blasengame og lífsstílsritsjór-
inn Genevieve Roth frá tímaritinu Details í New York, Nick
Catucci, tónlistarritstjóri Village Voice, Katia Kulawick sem
ritstýrir Vogue Homme, Patricia Drati frá Elle i Evrópu og
Ijósmyndararnir Julia Stables og Heidi Hartwig. Jón Trausti
hjá Grapevine segist vonast til þess að útgáfan muni gefa
góða mynd af hátíðinni og auka afþreyingargildi hennar.
Þeireru búniraðsenda prómódiska og plöturtil blaðamann-
anna úti þannig að þeir ættu að vera vel undirbúnir en auk
þess að skrifa í Grapevine Airwaves 2005 munu þau flestöll
einnig fjalla um hátíðina erlendis. Með þessu framtaki mun
hátíðin og hljómsveitirnar sem koma fram því fá mun meiri
athygli fyrir vikið sem er að sjálfsögðu mikið fagnaðarefni
fyrir íslenska tónlistarflóru. Blöðin eru á ensku og verður
þeim dreift frítt á hótel og gistiheimili, kaffihús, búðir, bari,
sjoppur og á alla tónleikastaði.
Rokktóberfest á Gauknum
Allir helstu rokkarar
landsins ætla að hita ær-
lega upp fyrir Airwaves
á Gauknum dagana 10.-
14. október en þá fer
fram hin árlega Rokktó-
berfest á staðnum. Þar
koma fram allar helstu
rokksveitir Islands eins og
Brain Police, Jeff Who?,
Black Star, Jan-Mayen, Dr.
Spock, Bob Justman, og
Pétur Ben og síðan verður
að sjálfsögðu kvöldvaka
Capone þar sem verður án
efa mjög sveitt og hressandi stemmning. Á meðan á öllu
þessu stendur geta tónleikagestir síðan sötrað á mjög
ódýru öli.
Helgi Jónsson - Glóandi
Tónlistarmaðurinn
Helgi Hrafn Jónsson
hefur búið í Austurríki
síðustu sex árin þar
sem hann hefur verið í
tónlistarnámi. I síðasta
mánuði sendi hann
frá sér sína fyrstu sól-
óplötu sem ber heitið
Glóandi og er hún gef-
in út af Material Rec-
ords í Vínarborg. Um
er að ræða einstaklega
vandaða poppplötu þar sem söngrödd Helga nær að
njóta sín í rólegum og tillfinningaþrungnum lögunum
en með honum spila tveir gítarleikarar, bassaleikari og
trommuleikari auk þess sem hann spilar sjálfur á gítar,
píanó og básúnu. Platan kemur væntanlega út á islandi
í október og Helgi stefnir á tónleika hér í kjölfarið enda
hefur hann enn mjög sterka tengingu við land og þjóð.
Tvö lög á plötunni, Glóandi og 1993, eru á íslensku og
það fyrrnefnda er gagnrýni á stóriðju- og virkjanafram-
kvæmdir á islandi þar sem sungið er um eyðimörk á (s-
landi, dimmar námur og sviðið gras. Platan Glóandi er
virkilega vandað verk þar sem öll vinnsla og útsetning
er til fyrirmyndar og Helgi ekki hræddur við að nota
kraftmikla röddina á ólíka vegu og hoppa úr rólegum
ballöðum yfir í hressandi poppslagara. Það er virkilega
þess virði að bæta Glóandi í plötusafnið og fylgjast með
framhaldinu.
Mátaðu sjálf á netinu
Það er ekki öllum sem
finnst gaman að þræða
mátunarklefa í verslunum
enda getur verið ótrúlega
þreytandi að rífa sig í og
úr fötunum til þess eins að
ganga út með tómar hend-
ur. Á vefsíðunni www.
watchmechange.com sem
fatakeðjan GAP er búin að
setja upp getur þú prófað
alls kyns fatnað og séð hvort liturinn og sniðið henti þér.
Það er enn reyndar svolítill byrjendabragur á þessu en hægt
er að breyta á sér hárinu, andliti, nefi, augn- og húðlit og
velja vaxtarlag, þyngd og aldur. Eftir að fötin hafa verið val-
in tekur módeiið sig til og strippar fyrir áhorfandann með
einhverjum afbökuðum eróbikkmúvum og fer í fötn sem þú
velur. Það eitt og sér er alveg óborganlega fyndið.
í græjunum
Heiða Eiríks
-tónlistarkona sem einnig er með útvarpsþátt á Rás 2 og skrifar í Blaðið
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Ég er búin að vera að hlusta á nýju plötuna með The Dandy Warhols, sem
heitir Odditorium. Hún er glettilega góð, og vinnurtöluvert á. Hef lítið fylgst
með þeirra ferli svo þetta er nýtt og ferskt fyrir mér. Svo er nýja platan sem
Hermigerfill var að senda frá sér, Sleepwork, alveg meiriháttar stuðplata. En
yfirleitt þarf ég eitthvað rólegt, allavega í strætó á morgnanna, til að slaka á
fyrir daginn. Þá er ég búin að vera að hlusta á gamla plötu með hljómsveitinni
Low, sem heitir Things We Lost in the Fire. Ég uppgötvaði Low á síðasta
ári, og finnst eiginlega allt sem ég hef heyrt með þeim gott. Nýjasta
platan þeirra sem heitir The Great Destroyer er besta plata sem ég
hef heyrt í áraraðir.
Hvaða plötu ertu að bíða eftir?
Ég er ekki enn búin að heyra nýju Gorillaz-plötuna, þarf að bæta úr því. Svo er
ég spennt fyrir nýrri Missy Elliott-plötu. í íslensku deildinni er ég alveg rosalega
spennt fyrir nýrri plötu með pönksveitinni Æla, en ég veit ekki hvenær hún kem-
ur út. Vonandi sem fyrst, því þar er á ferð ein skemmtilegasta hljómsveit ársins.
Svo er náttúrulega hvílíkt diskaflóð á leiðinni með jólunum, og maður bara
reynir að sörfa það og jafnvel heyra eitthvað nýtt. Ég er soddan alæta á
tónlist, að ég ætti örugglega að finna margt fyrir minn smekk.
4