Orðlaus - 01.10.2005, Blaðsíða 10
10
Nú eru ekki nema tæpar þrjár vikur f stærstu tónlistarveislu ársins, lceiand Airwaves, og menn og konur eflaust farin að iða í skinninu með
miðann vel varðveittann í veskinu. (Þeir sem enn hafa ekki tryggt sé miða ættu að drífa sig í Skífuna eða á Midi.is því í fyrra varð uppselt.) Það
er úr gríðarlega miklu að velja eins og vanalega en hátíðin hefur þó aldrei verið jafn glæsileg og í ár. Um 130 tónlistarmenn af öllum stærðum og
gerðum fylla miðborgina frá 19.-23. október og er því eins gott að skipuleggja sig vel og þjálfa sig í að spretta á milli staða. Til þess að hjálpa til við valið athug-
aði Orðlaus hvað nokkrir af þeim tónlistarmönnum sem koma fram á hátíðinni eru spenntastir fyrir að sjá þetta árið.
Kimono
(Alex MacNeil, Kjartan Bragi
Bjarnason, Halldór Örn Ragnars-
son og Gylfi Blöndal.)
Kimonoliðar heiðra hátíðargesti
með nærveru sinni nú fjórða árið
í röð og fljúga alla leið frá Þýska-
landi til þess að spila á hátíðinni.
Þeir sendu frá sér aðra breiðskífu
sína í sumar, Arctic Death Ship,
sem hefur fengið frábæra dóma
en fyrir tveimur árum kom út plat-
an Mineur-aggressif. Tónlistin hef-
ur þróast tölvuvert á þeim tíma
og er efnið orðið mun fjörugra á
annarri plötunni þó að drungaleg-
ur tónninn sé enn í bakgrunnin-
um. Athyglisvert verður að fylgjast
með sveitinni spila Airwaves og
ætti enginn að láta sig vanta á tón-
leika sem verða þeir síðustu hér á
landi um ókomna tíð. „Við verðum
að spila mikið úti í Berlín áður en
við komum á Airwaves en það er
engri loku fyrir það skotið að við
komum með eitthvað nýtt efni"
segir Gylfi. „Spenntastur er ég fyr-
ir að sjá Fiery Furnaces, Zutons,
Ghostigital, I Adapt, Mammút og
Skakkamanage."
Hermigervill
(Sveinbjörn Thorarensen)
Hip hop-raftónlistarmaðurinn
Hermigervill sendi frá sér sína
aðra breiðskífu, Sleepwork, nú í
september. Þar hljóðblandar hann
saman allt frá fönki og diskói upp í
elektróník, hiphopog rokkog púsl-
ar því saman á ótrúlegan hátt svo
útkoman verður hvert frábært lag-
iðáfæturöðru. Hann er að koma í
annað sinn fram á Airwaves og eru
tónleikar hans eitthvað sem eng-
inn ætti að missa af þar sem það
er hreint frábær stemmning sem
myndast við það eitt að fylgjast
með honum einum á sviðinu með
hljóðfæri, hljóðnema, sampler og
plötuspilara og síðan lofar hann að
sjálfsögðu endalausu stuði. „Ég er
mjög spenntur fyrir þessari hátíð"
segir Sveinbjörn. „Gus Gus standa
alltaf fyrir sínu og svo ætla ég að
reyna að komast á Trabant. Þessar
tvær sveitir eru toppurinn."
Lára
(Lára Rúnarsdóttir)
Tónlistarkonan Lára Rúnarsdótt-
ir gaf út plötuna Standing Still
árið 2003 og er nú að vinna að
sinni annarri breiðskífu með hjálp
bræðranna Barkar og Daða Birg-
issona. Yfirleitt er Lára ein með
gítarinn og míkrófóninn á tón-
leikum og skapar alltaf rólega og
þægilega stemmningu sem leggst
vel í tónleikagesti en á Airwaves
mun heil hljómsveit, sem saman-
stendur ef þeim Daða og Berki,
Pétri Sigurðssyni og Kidda fyrr-
um trommara Hjálma, spila með
henni. „Ég hlakka til að sjá Juliette
and the Licks og Babyshambies og
svo að sjálfsögðu heilan helling af
íslensku böndunum" segir Lára.
„Síðan koma hingað Þjóðverjar
til að taka upp tónleikana með
mér, Without Gravity og Leaves á
hátíðinni, en þeir eru að vinna að leikana og skyggnast inn í okkar
heimildarmynd um okkur og ætla heim."
að koma hingað til að hlusta á tón-
EFTIRMINNILEGAST
A AIRWAVES!
„Það er alltaf gaman að spila enda er þetta alveg
snilldar hátíð. Eftirminnilegast er að hafa fengið
plötusamning við Smekkleysu eftir síðustu hátið."
(Finni - Dr. Spock)
„Eftirminnilegast hingað til er klárlega þegar
The Rapture spiluðu á Gauknum 2002. Það voru
með bestu tónleikum sem ég hef séð." (Atli Bolla-
son - Nortón)
„Ghostigital var alveg "mindblowing" í fyrra. Síð-
an er mjög eftirminnilegt þegar ég var bainn af
fimm dyravörðum fyrir utan Sólon í fyrra. Ég er
ennþá bitur yfir því." (Gylfi Blöndal - Kimono)
„Það er ótrúlega eftirminnilegt að hafa misst af
The Rapture spila á Gauknum. Það er hálf ógleym-
anlegt og í raun ófyrirgefanlegt. Annars var alltaf
gaman að fara i Höllina þó að ég sé mjög ánægð-
ur með þetta nýja fyrirkomulag. Það er viss sjarmi
að hafa stór nöfn spila á Nasa og Gauknum." (Elli
- Jeff Who?)
„Eftirminnilegast var að horfa á Mínus spila fyrir
tómri Laugardalshöll en það var um það leyti sem
Jesus Christ Bobby var að koma út. Þetta var al-
veg „awsome, ég var einn í salnum og Mínus hafa
aldrei verið betri en á þeim tónleikum. Síðan vour
Shins magnaðir í fyrra." (Haukur - Reykjavík!)
„Ég fór í fyrsta sinn á hátíðina í fyrra. Ég fékk
heljarinnar gat á hausinn þegar ég stökk niður
einhvern stiga á Nasa eftir að hafa fagnað góðu
giggi á Gauknum fyrr um kvöldið. Ég fór á slysó
þangað í lögreglufylgd og var saumaður saman.
Síðan fór ég bara beint niður á Nasa aftur. Ég
vona eiginlega að ég fái bara aftur gat á hausinn
núna, þetta var eitthvað sem ég gleymi ekki."
(Atli - Hölt Hóra)
„I fyrra fannst mér Four Tet mjög áhugaverðir og
síðanstendur Mugison alltaf uppúr." (Lára Rúnars-
dóttir)
„Þegar Fat Boy Slim henti handklæðinu til mín á
tónleikunum í Laugardalshöllinni 2002. Ég greip
það ásamt tveimur öðrum spíttuðum gaurum
og út brutust mikil slagsmál en ég varð að láta í
minni pokann. Ég hef þó snert sveitt handklæðið
hans." (Hermigervill)
„Ætli það standi ekki uppúr þegar Klink var að
spila á Airwaves 2002 því á sama tíma fengum við
diskinn okkar 666°N í hendurnar. Siðan er auðvit-
að alltaf brjálað þegar Mínus er að spila." (Guðni
- Dr. Mizta & Mr. Handsome)