Orðlaus - 01.10.2005, Qupperneq 18
Diskógeðveikin sem byrjaði á
áttunda áratugnum teygðist
yfir á þann níunda en breyt-
ingarnar voru hraðar og mikil
framþróun var í gangi í tísku-
heiminum. Áhrifin komu úr
ýmsum áttum en einkennandi
fyrir áratuginn var glamúr,
gleði og græðgi. Ronald Reag-
an var konungurinn á meðan
Thatcher var drottningin hin-
um megin Atlantshafsins og
almenningur hélt áfram að
setja kvikmynda-, sjónvarps-
og rokkstjörnur á stall og líkja
eftir klæðaburði þeirra með
hárlakkið í annarri og greið-
una f hinni.
Almenningur sogaðist inní sápu-
óperurnar Dallas og Dynasty og
fylgdist með ofurtöffurunum í
Miami Vice krúsa um í fínum jakka-
fötunum. Ungdómurinn trylltist
yfir MTV sem fór í loftið árið 1981
og sat límt við skjáinn og horfði
á stjörnur eins og Duran Duran,
Whitney Huston og Madonnu í
stofunni í nýjustu fötunum með
flottustu hárgreiðslurnar. Sjón-
varpið hafði að sjálfsögðu mikil
áhrif á tíksuvitundina á níunda ára-
tugnum sem einkenndist af miklu
óhófi á öllum sviðum. Allt var
stórt, ýkt og flott. Partýin, líkams-
ræktaráráttan, spandexbuxurnar
og axlarpúðarnir. Fólk vildi eign-
ast alla skapaða hluti og láta líta
út fyrir að það væri ríkt hvort sem
bankareikningurinn sagði til um
það eða ekki. Eytt var í alls kyns
glyngur, föt og aukahluti. Konurn-
ar settu risavaxna eyrarlokka í eyr-
un, gengu í glansandi sokkabux-
um, með legghlífar, plastarmbönd
og grifflur og dressið var helst
alltaf í einhverjum skærum litum.
Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma
axlarpúðunum sem eru helsta ein-
kenni tímabilsins, en hönnuðirnir
kepptust við að láta konurnar líta
út einsog rúgbýspilara með grannt
mitti og breiðar axlir.
Æpandi litagleðin fór fram úr því
sem góðu hófi gegnir þar sem öll-
um regnbogans litum var blandað
saman og hárið túberað og spreyj-
að með hárlakki, og átti þetta við
um bæði kynin.
Fyrirsætur og ofurkonur
Fyrirmyndirnar voru jafn ólíkar og
þær voru margar. Stelpurnar litu
upp til Madonnu í netasokkabux-
unum, ungir sem aldnir klæddu
sig í hlýraboli, þröngar buxur með
legghlífar um ökklana eftir að hafa
séð kvikmyndina The Flashdance
og strákarnir litu upp til poppara
á borð við George Michael, David
Bowie, Duran Duran og Michael
Jackson. Ofurfyrirsæturnar Cindy
Crawford, Naomi Campbell, He-
lena Christensen ýttu konunum
í ræktina þar sem þær allar vildu
vera háar, grannar og fallegar.
Stærsta fyrirmyndin sem náði að
heilla alla heimsbyggðina var þó
Díana prinsessa. Hún var alltaf
smart, í flottum kjólum og drökt-
um með hatta i stíl.
Lífsgæðakapphlaupið var á þess-
um tíma að fara með heimsþyggð-
ina og upparnir kepptust um að
vera fínni og flottari en næsti
maður og sýndu það með dýrum
Armani jakkafötum yfir stutterma-
bolinn og flottum drögtum að
þeir væru ríkir og á framabraut.
Talað var um ofurkonuna sem kom
sér áfram í vinnunni, fór í ræktina
fyrir kvöldmat og stundaði síðan
skemmtanalífið í púffkjólum hönn-
uðum af Christian Lacroix. Meira
að segja Barbí gekk I bissnessdrakt
með skjalatösku í hendinni en átti
síðan glamúrgalla til skiptanna.
Breikarar og ný-
rómantíkusar
Á níunda áratugnum varð breik-
menningin risavaxin og breikarar
dreifðust frá Bronx í New York um
allan heim. Þeir klæddu sig í striga-
skó og nælongalla, dönsuðu á göt-
um borganna og gengu um stræt-
in í Converse- eða Adidasskóm
með gettóblastera á öxlinni.
Á næturklúbbum London spratt
síðan upp sena sem kallast ný-
rómantík en henni tilheyrði fólk
sem var að leita nýrra leiða í
klæðaburði. Helstu hönnuðirnir
voru Vivienne Westwood með
sjóræningjalínuna sem sló I gegn,
Stevie Stewart og David Holah.
Þau notuðu gæðaefni í hönnun
sína á skyrtum, jökkum, pilsum og
buxum sem öll voru með ævintýra-
legu sniði og munstri enda vildu
nýrómantíkusarnir vera áberandi
glamúrus og flottir þegar þeir
fóru á fínu klúbbana til að sýna sig
og sjá aðra.
Um leið og þessi litríki áratug-
gleyma honum og grafa allar sann-
anir um hann undir grænni torfu.
En tískan fer í hringi og eins og
flestir vita átti 80s eftir að koma
sterkt inn aftur.