Orðlaus - 01.10.2005, Blaðsíða 26
S: Ég er ekki að tala um svoleiðis, ég er bara
að meina textana og svona... mérfinnst það
skemmtilegt..."
M: [syngur Donnu Mess lag]: „Fock fock
fock fock fock..."
B: „Peaches var ákveðin fyrirmynd þegar
við fórum af stað..."
„...þá á maður bara að nota það"
-Talandi um fyrirmyndir, hverjar eru ykkar?
H: „Bara rokkhljómsveitir sem mér þykja
góðar, Smashing Pumpkins, Radiohead og
sú bylgja öll t.d.. Ég nenni ekki að telja upp
alla tónlistarmenn sem ég hlusta á, en metn-
aðarfull tónlist og textagerð höfðar sterkt
til mín og þá geri ég ekki upp á milli kynja.
Að vísu var kvenbassaleikari í SP, en ég held
hinsvegar að það séu ekki neinar konur í
þeim böndum sem ég hlusta mest á."
M: „Ég hef verið að hlusta núna ógeðslega
mikið á hljómsveit sem heitir Smoosh. Það
eru tvær litlar 10 og 11 ára systur sem búa í
Seattle og gáfu út disk sem heitir „She likes
electric", auðvitaö með einhverri hjálp, en
þær sömdu allt dótið sjálfar. Platan er geð-
veik, þar eru meira að segja aggressíf lög
þar sem söngkonan er öskrandi. Þær eru
bara sætastar, ég fæ ekki leið á þeim."
B: „Sætar? Já einmitt, sætar..."
M: „Ég segi þetta nú líka um stráka. Þegar
ég segi sætur þá tala ég um manneskjur, en
ekki hvernig þær líta út. En fyrirmyndir, eru
það ekki bara vinir manns?"
B: „Það er rosa oft vinir manns og örugg-
lega mest þeirra áhrif sem komu mér af
stað. Fyrsta lagið sem ég samdi var annars
undir áhrifum frá Peaches, en hún er samt
ekki fyrirmynd og ég lít ekki upp til hennar.
Le tigre eru miklar fyrirmyndir núna. Rosal-
egar."
S: „Ég er undir áhrifum frá hinu og þessu.
Hlusta á svo margt. PJ Harvey er algjört æði
og Björk líka. Með Björku, það er ekki bara
að hún sé kona eða einusinni íslendingur,
það er einhvernveginn svo margt í tónlist-
inni hennar. Hún sýndi, mér allavega, að þú
þarft ekkert að vera Steve Vai til að spila á
gítar. Ef maður getur fengið hljóðfæri til
að hljóma fallega, þá á maður bara að nota
það. Um leið og ég fattaði þetta yfirsteig
ég þessa hræðslu við að spila tónlist og fór
bara af stað."
- Eins og með pönkrokk. Fyndið að það
þurfi að árétta þessi skilaboð á nánast hverj-
um áratug.
S: „Þetta snýst um annað, pönkið átti ekk-
ert að hljóma fallega. En núorðið þarf mað-
ur varla að kunna á hljóðfæri til að vera tón-
listarmaður og gera fallega tónlist."
B: „Hvað ætli valdi því að stelpur fari
svona oft út í pönk? Brúðarbandið og Viður-
styggð, til dæmis."
M: „Það var það eina sem við gátum spil-
að. Við tókum ekki einusinni koverlög þegar
við byrjuðum, því við vissum ekki hvort við
gætum pikkað þau upp! í alvörunni! En við
gætum það alveg núna! Ég er að segja þér,
við gætum það alveg núna! En það er samt
miklu skemmtilegra að búa til."
H: „Þetta er svo einfalt, maður semur lögin
sín, getur spilað þau og síðan á maður þau á
disk. Af hverju ætti maður að vera taka lög
eftir aðra?"
Víbrador í fermingargjöf
Annar umgangur er pantaður og talinu í
kjölfarið vikið að ástæðunum fyrir því að
þessar tónlistarkonur ákváðu að stofna
hljómsveitir og hvatana þar að baki. Þær
eru jafnvel fleiri en þær sjálfar, allt frá því
að vanta eitthvað skemmtilegt að gera á
þriðjudögum og um leið auka fjölda kvenna
í rokktónlist (Brúðarbandið) í að vera leið til
að losna undan leiðindum og svala athygl-
issýki (Viðurstyggð). Og engar sérstakar.
Af hverju byrjar einhver í hljómsveit? Til að
rokka bara, er það ekki? Dónanöfn á kyn-
færum kvenna og afhelgun píkunnar koma
einnig til tals (M: „Við vinkonurnar tókum
á sínum tíma mjög meðvitaða ákvörðun um
að segja PÍKA! við hvert tækifæri, píkapíka-
píkapík..."), sem og klámfengin hip-hop
og popp-myndbönd og 11 ára stelpur í gé-
strengjum sem afleiðing þar af.
S: „Mér fannst þetta bara fyndið fyrst, en
þegar ég sá eitthvað 50 Cent myndbandið
fékk ég eiginlega alveg nóg og mér blöskr-
aði, ekki síst þegar ég fór að verða vör við
áhrifin sem þetta hefur á unga krakka. Gé-
strengir í jólapökkum lítilla stelpna eru bara
of mikið."
-Eru þetta einkenni á kúgun kvenna sér-
staklega, eða bara þjóðfélagi sem er heltek-
ið af kynlífi?
B: „Þetta er einkenni á því hvernig kvenlík-
aminn er notaður sem táknmynd kynlífs og
settur í kynferðislegt samhengi..."
-Þetta er geðveikt lag! [Head over heels
- Tears For Fearsj
B: „Fyrirgefðu, herra blaðamaður! En ég
var bara reyna segja að kvenlíkaminn er
álitinn miklu kynferðislegri, konan á að
vera tælari og rosa sexjúal, en á samt ein-
hvernvegin ekki að hafa gaman af kynlífi.
Öll þessi krem sem verið er að markaðssetja
og annarskonar dót sem gefur beint eða
óbeint I skyn að konur þurfi að gera effort
til að njóta kynlífs. Hvernig eigum við að
vera svona miklir tælarar ef við eigum svona
erfitt með að njóta kynlífs? í kynfræðslu er
kennt að 100% stráka frói sér, en bara 30%
stúlkna! Þetta er kennt! Og stelpur upplifa
þannig eigin kynhvöt sem svakalegt tabú,
það er alls ekki hollt."
M: „Mér finnst að stelpur eigi að fá víbra-
dora í fermingargjöf!"
B: „Ja ég veit það ekki alveg..."
-En ekki géstrengi samt?
M: „Ég er að tala um fermingargjöf, ekki
níu ára. Fimmtán! Það eru annars skrýtnir
hlutir í gangi víða, útvarpinu til dæmis. X-
ið var einhverntíman með auglýsingar sem
sögðu: „Ef þú skiptir um stöð, þá ríðum
við systur þinni". Ég fer að grenja þegar ég
heyri svona vitleysu.
B: „X-ið virðist nú sniðið fyrir ansi þröngan
hóp stráka sem eru með... nei ég vil ekki
nota nein orð um það..."
M: „Þeir vildu nú ekki einusinni spila pönk-
bandið okkur, neituðu að skoða það. Pælið
í hvað það er mikið af ógeðslegri músík
þarna!"
[...]
...við héldum mun lengur áfram. Það sem
þessar stúlkur eiga kannski helst sameig-
inlegt, utan rokksins, er að þær eru allar
býsna hressar og hika ekki við að setja fram
ígrundaðar skoðanir á hinu og þessu og
áhugaverðar kenningar. Og geta drukkið
eins og sjóarar. Þú ættir að spjalla við þær
ef þú rekst á þær á götu einhverntíman. Eða
tónleikum.
-hauxotron@hotmail.com
Silla: „ ... Ég hef ekki litið spilamennskuna sem fem-
ínískan gjörning til þessa, en það að fara upp á svið
og ærslast - og vekja þannig jafnvel neikvæða at-
hygli - verður örugglega til þess að ögra þessum
stöðluðu hugmyndum og hrista upp í þeim."