Orðlaus - 01.10.2005, Síða 30
Á einhvern óútskýranlegan hátt hafa hlutirnir þróast þannig hér á
landi að engin deitmenning er til staðar (deit=stefnumót). Vestanhafs,
í Ameríkunni, eru mjög skýrar reglur um stefnumót sem allir fylgja
samviskusamlega enda þykir ekkert annað eðlilegt. Strákur sér sæta
stelpu, strákur býður sætri stelpu í bíó. Ef það var gaman býður strákur
stelpu aftur á deit, þá jafnvel út að borða. í þriðja sinn sem strákur og
stelpa hittast má loksins eitthvað fara að gerast en helst ekki samt fyrr
en mörgum mörgum stefnumótum seinna.
Elísabet Gunnlaugsdóttir
16. ára
Hver er ritstjóri Morgunblaðsins?
Ekki hugmynd.
Hvaða embætti er Davið Oddsson að fara að
taka við?
Ekki hugmynd heldur.
Hver sveik Jesú?
Æ'i, ég veit það ekki.
Hvað heitir höfuðborg Wales?
Veit það ekki.
Hvað heitir sonur Britney Spears?
Veistu, ég hef ekki hugmynd heldur.
Sunneva Völundardóttir
20. ára
Hver er ritstjóri Morgunblaðsins?
Það er Styrmir Gunnarsson.
Hvaða embætti er Davíð Oddsson að fara að
taka við?
Seðlabankastjóra.
Hver sveik Jesú?
Júdas.
Hvað heitir höfuðborg Wales?
Bíddu nú við, ég veit það ekki.
Hvað heitir sonur Britney Spears?
Ég hef ekki hugmynd.
Finnbjörn Finnbjörnsson
18. ára
Hver er ritstjóri Morgunblaðsins?
Ég veit það ekki.
Hvaða embætti er Davið Oddsson að fara að
taka við?
Bankastjóra held ég, KB banka.
Hver sveik Jesú?
Ambraham.
Hvað heitir höfuðborg Wales?
Veit það ekki.
Hvað heitir sonur Britney Spears?
Ég á að vita þetta, hann heitir eitthvað Kólumb-
ía, nafnið á einhverri borg.
„Heim til mín eða þín?"
íslenska leiðin er meira í þá áttina að fara
á tjúttið, finna kjút píu eða svalan gaur,
daðra, fara í sleik, spyrja hinnar ódauðlegu
spurningar "heim til mín eða þín?". Þegar
það hefur verið útkljáð með tilliti til fjar-
lægðar frá skemmtistað, foreldraviðurvist
eða meðleigjenda er haldið beinustu leið á
skeiðvöllinn þar sem aðilar kynnast hvorum
öðrum náið það sem eftir lifir nætur. Ef aðil-
ar eru það er að segja í ástandi til. Stundum
verða kynnin sem upphaflega áttu að vera
náin afar stutt sökum ofurölvunar. En það
breytir litlu - því það sem þú manst ekki
gerðist ekki - er mottó sem fólk á kjötmark-
aðnum þarf oftar en ekki að grípa til á ör-
þrifastundu.
Ef kynnin hins vegar hafa verið góð og
fullnægjandi fyrir báða aðila gerist það iðu-
lega að skipst er á símanúmerum - hefjast
þá sms sendingar með daðurslegum undir-
tóni -sms er einmitt eitt besta hjálpartækið
i tilhugalífinu sem völ er á nú í seinni tíð.
Vandræðaleg símtöl til foreldrahúsa heyra
nú sögunni til - húrra fyrir GSM símum!
Jæja, ef allt gengur upp og aðilar eru að
fíla sms tækni hvers annars - því þótt ótrú-
legt megi virðast þá hafa sambönd verið
kæfð í fæðingu vegna slangurs, undarlegrar
orðanotkunar eða málfarsfötlunar annars
aðilans - þá eru kynnin endurnýjuð. Þarna
fara stefnumótin að gerast, í þveröfugri röð
við það sem gerist í Ameríkunni.
Á þennan hátt hafa fjölmörg farsæl sam-
bönd hafist og jafnvel endað með hjóna-
bandi og barneignum.
íslenska menning-
in og einkamál.is
Fólk virðist skiptast í tvær andstæðar fylk-
ingar þegar hin amerísku stefnumót eru
rædd. Önnur fylkingin sér svona menningu
í hyllingum, vildi óska þess að íslendingar
gætu í eitt skiptið fyrir öll vanið sig af þess-
um hræðilega barbarisma og lært að haga
sér eins og siðað fólk. Hin fylkingin skilur
ekkert í þvi hvers vegna þessi stefnumóta-
menning er í hávegum höfð, hvaða kjaftæði
þetta er og af hverju við getum ekki bara
haldið áfram að stunda iðju okkar sem við
erum svo þekkt fyrir í friði. Því að apa eitt-
hvað upp eftir Kananum þegar við höfum
það svo ágætt hérna, allir sem vilja fá sitt án
nokkurra vandkvæða.
Með tilkomu stefnumótasíðna eins og
einkamál.is héldu margir að þessi skyndi-
kynnamenning á íslandi myndi líða undir
lok og núna færu Islendingar loksins að fara
á almennileg stefnumót, það er að segja
þeir sem að voru á þeirri bylgjulengd. En
nei, viti menn, þessi vefur fór úr böndunum
og þó að eitthvað eimi líklega eftir af stef nu-
mótum þá snýst vefurinn að mestu leyti um
þjóðaríþróttokkarlslendinga-kynlíf.Grein-
arhöfundur gerði sér það að leik ekki alls
fyrir löngu að skrá sig á einkamál.is. Það var
aðallega til gamans gert en þó með þeim
Dóra Takefusa,
framkvæmdastjóri
Forever entertainment
Deitmenning þrífst því miður ekki á Islandi vegna þess
að hér þekkja allir alla og allir að fylgjast með öllum. Ef
maður og kona fara út að borða saman til að kynnast lít-
illega má bóka að þau rekist allavega á tvo eða þrjá sem
þau þekkja og í kjölfarið verður það á allra vörum að þau
séu saman. Að fara á stefnumót er nánast opinberun á
sambandi. Fólk má nú varla sjást tala saman og þá er búið
að trúlofa það á forsíðum blaða.