Orðlaus - 01.10.2005, Síða 31
fyrirvara að kannski leyndist hinn eini sanni
fyrir framan annan tölvuskjá annars staðar
í bænum.
Beið með óþreyju eftir spennandi boðum á
stefnumót, sá með stjörnur í augum fyrir sér
stefnumót eins og við höfum verið mötuð á
frá Bandaríkjunum, en raunin var allt önnur
en sú. Skilaboð eins og: „Ég er pottþétt sá
rétti fyrir þig, er með 20 cm drjóla og hann
getur þjónað þér eins og þú vilt" eða: „Ég
er nú reyndar í sambandi en er að leita mér
að tilbreytingu, fæ ekki nóg heima hjá mér.
Ég bið þó um að þú haldir 100% trúnað".
Versta dæmi var þó án efa: "Mig langar í
kynlíf með þér. $$$"... Flestir skilja líklega
hvað það manngrey var að meina. Svona
gerast þá kaupin á eyrinni.
Breytir Bachelorinn
barbarismanum?
Um þessar mundir er að hefjast enn ein nýj-
.. <
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona
Það er svolítið erfitt að kommenta á eitthvað sem ekki er til. Ef
það er deitmenning á Islandi hefur hún altavega farið framhjá
mér. Mér þætti gaman að geta boðið einhverjum kinnroðalaust
á stefnumót ef mér finnst hann spennandi án þess að það þurfi
endilega að þýða nokkurn skapaðan hlut.
Magnús Steinar Magnússon
17. ára
Hver er ritstjóri Morgunblaðsins?
Veit það ekki.
Hvaða embætti er Davíð Oddsson að fara
að taka við?
Það man ég ekki.
Hver sveik Jesú?
Júdas.
Rakel Vífilsdóttir
17. ára
Hver er ritstjóri Morgunblaðsins?
Ég veit það ekki.
Hvaða embætti er Davið Oddsson að fara
að taka við?
Seðlabankastjóri.
sárt ennið og eru fullvissar um að hann hafi
verið hin eina sanna ást í lífi þeirra - eru líka
sannfærðar um að hann muni svo sannar-
lega sjá eftir því þegar fram líða stundir að
hafa ekki valið þær.
Hér á landi má þó ekki búast við því að hlut-
irnir verði alveg svona dramatískir þar sem
við íslendingar erum þekktir fyrir að vera
algerir harðnaglar - allavega eru tárakirtl-
ar okkar ekki alveg eins virkir og hjá vinum
okkar Könunum.
Það verður þó virkilega spennandi að sjá
hvort íslenski bachelorinn muni breyta
hefðum okkar íslendinga í fágaðri útgáfu
- margir hafa lýst því yfir að þættirnir munu
kollvarpa íslensku tilhugalífi og færa það
á hærra plan. í Ameríku voru þessir þættir
aðeins viðbót við hina gríðarlegu flóru raun-
Það verður spennandi að sjá hvernig ís-
lenski piparsveininn mun leggjast í landann
og hvort viðskipti hjá blómasölum, bíóhús-
um og veitingastöðum mun taka kipp þegar
sýningar komast vel á veg.
Segjum sem svo að þær 25 stúlkur sem
keppa um hylli piparsveinsins verði svo heill-
aðar af þessari nýju deitmenningu að þær
bjóði hver um sig tveimur karlmönnum á
stefnumót þegar þættirnir eru búnir. Karl-
mennirnir 50 bjóða síðan tveimur öðrum
konum á stefnumót. Margföldunaráhrifin
verða slík að fyrr en varir verða allir farnir
að deita alla og ísland veröur komið á fullt i
deitmenningu að hætti Kanans!
Katrín Rut Bessadóttir
Hver sveik Jesú?
Júdas.
Hvað heitir höfuðborg Wales?
Ég veit það ekki.
Hvað heitir sonur Britney Spears?
Elvis... nei Presley eitthvað.
SVÖR:
ungin í íslensku sjónvarpi - af amerískri fyr-
irmynd - íslenski bachelorinn. Þeir sem hafa
fylgst með þeim ameríska vita hvernig þátt-
urinn gengur fyrir sig. Á þriðja tug kvenna
keppist um hylli eins manns sem margir telja
afar heppinn. í lok hvers þáttar gefur hinn
heppni nokkrum konum rós og fá þær þá að
halda áfram að reyna að greiða leið sína að
hjarta piparsveinsins. Hinar sitja eftir með
veruleikaþátta þar ytra en þættirnir munu
jafnvel hafa meiri tilgang hér á landi. Heim-
ur sem okkur hefur hingað til verið svo gott
sem luktur mun opnast upp á gátt.
Kannski átta íslendingar sig loks á því
hversu gríðarlega spennandi það er að
deita - sem það er vissulega og hver hefur
ekki gott af smá spennu og fiðrildum í mag-
ann?
Hvað heitir höfuðborg Wales?
Það veit ég ekki.
Hvað heitir sonur Britney Spears?
Ég veit það ekki.
Valtýr Björn Valtýsson
íþróttafréttamaður
Ég er kannski ekki besti maðurinn til að velta þessu fyrir
mér en það sem ég hef kynnst er að það er mikið frjáls-
ræði hérá íslandi í þessum málum miðað við í Bandaríkjun-
um þar sem hlutirnir eru ákveðnari og í mun fastari skorð-
um. Hér á landi virðist vera aðalmálið að fara á bar eða
slíkan stað, detta íða og reyna að kynnast hinu kyninu
blindfull eða fullur. Maður væri alveg til að þessir hlutir
væru öðruvisi hér á landi en þó ekki eins og í Bandaríkjun-
um, einhversstaðar þarna mitt á milli.
Hver er ritstjóri Morgunblaðsins?
Styrmir Gunnarsson.
Hvaða embætti er Davið Oddsson að fara
að taka við?
Bankastjóra Seðlabankans.
Hver sveik Jesú?
Júdas.
Hvað heitir höfuðborg Wales?
Cardiff.
Hvað heitir sonur Britney Spears?
Sean Preston.