Orðlaus - 01.12.2005, Blaðsíða 36
komast hjá því
að mæta hákörl-
síðan af
Texti: Agnar Burgess
HIÐ FULLKOMNA FRI
Flug og bíll er "so five years ago". Hver nennir svosem að flatmaga á ein-
hverri oftroðinni spænskri strönd með öðrum bleiknefjum þegar íslend-
ingar hafa ekki séð aðra eins efnahagsuppsveiflu. Það er kominn tími til
að gefa skít í meðalmennskuna og fara að hegða sér eins og kóngar, að
minnsta kosti áður en fasteignaverð fellur, tekur krónuna með sér og allt
fer til fjandans.
Byrjum á einkaflugi...
Þegar maður fer í frí er alveg lágmark að
geta slakað á. Það er lítil afslöppun í því að
hanga í biðröðum á hverjum flugvellinum á
fætur öðrum. Sumir hafa verið svo sniðugir
að sitja á Saga Class og fá þannig framfyrir í
röð og álíka lúxus. Það er samt mun snjallara
að slá á þráðinn til Eilat limousine og panta
eitt stykki Gulfstream V einkaþotu (370 þús-
und kr/klst). Hún kemur síðan fullbúin og
sækir mann á Reykjavíkurflugvöllinn svo
maður sleppur líka við að keyra Reykjanes-
brautina.
Fyrsta stopp er Saks verslunin á Sth Av-
enue í New York. Þar verður hægt
að kaupa merkjavöru fyrir öll
tækifæri svo maður líti ör-
ugglega vel út í fríinu.
...þaðan í ævin-
týrasund með
hákörlum og
veiðiferð í Alaska
Þegar allir eru klæddir í
Gucci og D&G frá toppi til
táar er komið að æv
intýraparti frísins.
Flestir reyna að
um í sólböðum
áSpánarströnd-
um en í Suður-
Afríku borgar
fólk fyrir það.
Hjá Unreal Dive
í Höfðaborg er
maður heppinn ef
maður sér hvítháf
synda
litlar 20
þúsund krónur
er þér gerður sá greiði
að koma þér fyrir í litlu
stálbúri með þungan
súrefniskútábakinuáð-
ur en þú ert látinn síga
ofan í það sem heima-
menn kalla „súpermark-
að hákarlanna". Ef þú ert
heppin/n láta hvítháfarnir
sér nægja að éta selina í
kringum þig.
Með blóðbragðið í
munninum er brun-
að til Alaska (gott að
hafa einkaþotu) þar
sem skeggjaðir skógar-
höggsmenn með hagla-
byssurtaka á móti manni.
Seahook Charters taka
tæpar 650 þúsund krónur
fyrir að leyfa manni að fara með
í veiðiferð um landsvæðið. Þetta er þó
ekkert amatör rjúpu- eða gæsarugl heldur
á að veiða bjarndýr. Ekki gleyma að ef
björninn hleypur að þér er best
að leggjast niður og þykjast
sofa. Það, eða taka í gikk-
á
Nú fyrst er samt
komið að afs-
löppuninni. Á
Fiji eyjum er lítil
eyja sem kallast
Turtle Island. Hún
er í einkaeign og
geta áhugasamir leigt
sér kofa á ströndinni í
stað hefðbundins hót-
elherbergis. Fyrir þá sem
hins vegar vilja almennilegt frí
er auðvitað engin spurning um að
leigja alla eyjuna (16 milljónir króna
fyrir sjö daga, skattar innifaldir). Þá
hefur maður eyjuna algjörlega fyrir
sig og sína og jafnvel þeir sem tóku
börnin með í ferðina fá barnfóstru
(eina fyrir hvert barn) sem sér um allar
þarfir barnsins.
....fljúgum það-
an til t
tungslins
Eftir vikudvöl í sól
og sumaryl er kjör-
ið að fara í smá
útsýnisferð. Fyrst
maður er farinn að
fara vel með sig er
kjörið að redda sér al-
mennilegu útsýni. Frá
tunglinu er hægt að sjá
Kínamúrinn í heild sinni en
þangað er hægt að komast með
Space Adventures fyrirtækinu (Ferð til
tunglsins 6,4 milljarðar króna á mann). Ef
áhugi er fyrir hendi er hægt að koma við í
Alþjóðlegu geimstöðinni. Space Adventures
er fyrsta fyrirtækið í heiminum til að opna
geiminn fyrir ferðamönnum og hefur þegar
sent fjóra menn út fyrir lofthjúp jarðar. Hin-
ar nýju tunglferðir eru hins vegar nýjar af
nálinni. Þær eru samvinna Space Adventur-
es og rússnesku geimvísindastofnunarinnar
en þaðan munu eldflaugarnar koma (hafið
þið séð lödu?).
...og endað á risa-
partýi í Las Vegas
Til að hnýta endahnútinn á frábært frí er
kjörið að koma við í partýborg heimsins, Las
Vegas, og klára klinkið sem eftir er. Þar er
hægtaðfá ElvisHoundDogSpeci-
al tilboð á giftingum (23
þúsund krónur) þegar
minibarinn er tómur
á hótelherberginu.
Innifalið er þrjú
lög sem kóngurinn
sjálfur syngur, sex
rósa blómvöndur,
Ijósmyndir frá at-
höfninni, eðalvagn
til og frá hótelinu og
tvö Elvis sólgleraugu.
SKRYTNUSTU JOLAGJAFIRNAR
Hver er besta jólagjöf sem þú
hefur fengið?
Skemmtilegasta jólagjöf sem ég man eftir
var þegar ég bjó úti i London, þá var ég búin
að vera heima um jólin og átti kærasta úti.
Þannig að þegar ég kom aftur þá héldum
við jól fyrir okkur þar. Hann sótti mig á
flugvöllinn og við keyrðum heim og þá lét
hann mig loka augunum og leiddi mig inn
til okkar og var þá búinn að fylla stofuna af
logandi kertum. Svo kom hann með stóran
svartan poka fullan af litlum og stórum
pökkum og lét mig draga einn í einu til að
opna. Það var mjög skemmtileg gjöf.
Hver er skrýtnasta jólagjöfsem þú
hefur fengið?
Ég man reyndar ekki eftir að hafa fengið
neinar skrýtnar jólagjafir... á svo smekklega
fjölskyldu og vini! En óvenjulegasta gjöfin
sem ég hef fengið er örugglega þegar
mamma mín gaf mér og systur minni öskjur
með öllum steinunum sem væru góðir fyrir
okkar stjörnumerki. Það var frábær gjöf og
kvöldið fór mestmegnis í að lesa sér til um
alla steinana.
Hver er versta jólagjöf sem þú
hefur gefið?
Engin! Vonandi.. ég gef bara góðar gjafir!;)
Bjarni Hall,
í Jeff Who?
Hver er besta jólagjöfsem þú hefur
fengið?
Þegar öll fjölskyldan mín gaf mér
rafmagnsgitar. Ástæðan fyrir því var
líklegast sú að Addi bróðir hefur verið
orðinn þreyttur á að lána mér sinn og platað
fjölskylduna í þessa gjöf. Ég var allavega
mjög glaður.
Hver er skrýtnasta jólagjöf sem þú
hefur fengið?
Skrýtnasta gjöfin sem ég hef fengið er
þegar Ágúst vinur minn gaf mér bókina
"Gay eye for the straight guy". Allavega
bókin þar sem samkynhneigðir menn gefa
öðrum köllum góð ráð hvað útlit varðar. Svo
sagði hann mér líka að ég lyktaði illa, ég
væri stirðlæs með stórt og forljótt nef.
Hver er versta jólagjöf sem þú
hefur gefið?
Það er örugglega þegar ég fór að kaupa
sængurver í jólagjöf handa Kötu systur
og Gíó manninum hennar. Ég keypti voða
fín silki sængurver handa Kötu en þar sem
mestur peningurinn fór í það, þá varð Gíó
að láta sér nægja sængurver með mynd af
Paddington.