Bændablaðið - 18.12.2007, Síða 10
Bændablaðið | Þriðjudagur 18. desember 200710
Þúfa er fyrirtæki sem býður upp
á heildarlausnir í minjagripasölu
fyrir söfn og sýningartengda
staði og fyrirtæki. Í pökkunum
sem fyrirtækið framleiðir eru
sérvaldir og sérhannaðir munir,
með tilliti til starfsemi, staðhátta,
landsvæðis og annarra óska kaup-
anda.
Að fyrirtækinu standa mæðg
urnar Ásta Þórisdóttir á Hólmavík
og Lilja Sigrún Jónsdóttir á Fiski
nesi við Drangsnes. Ásta og Lilja
Sigrún eru báðar útskrifaðar úr
Myndlista og handíðaskólanum,
Ásta úr grafíkdeild en Lilja Sigrún
úr skúlptúrdeild. Þær eru auk þess
báðar kennaramenntaðar og hafa
starfað lengi við kennslu. Lilja
Sigrún fór á eftirlaun um síðustu
áramót en Ásta er ennþá í fullu
starfi í kennslu. Þær segjast mikið
hafa unnið saman í gegnum tíðina
og starfræktu meðal annars brúðu
leikhúsið Dúkkukerruna af og til í
nokkur ár. „Leikritin voru samin í
gegnum síma og síðan hittumst við
í skólafríum og smíðuðum brúður
og leikmuni. Síðan var farið í leik
ferðir og sýnt víða,“ rifja þær upp.
Starfsemi Þúfu hófst í kringum
síðustu áramót eftir að þær mæðgur
höfðu sótt Brautargengisnámskeið
á vegum Impru. Hugmyndin sem
þær unnu með á því námskeiði var
að vísu önnur en þróunarvinnan og
gerð viðskiptaáætlunar hefur samt
sem áður nýst þeim vel í starfsemi
Þúfu. Þegar hafa verið hannaðar
og framleiddar vörulínur fyrir tvo
aðila, Sauðfjársetur á Ströndum og
Ósvör við Bolungarvík. Vörurnar
sem Ósvör hefur í sölu fást einn
ig hjá Náttúrustofu Vestfjarða.
Vörurnar eru meðal annars unnar
úr ull, leir og hvaltönn. Ásta og
Lilja Sigrún eru ánægðar með við
tökurnar eftir að hafa haft vörur
sínar í sölu eitt sumar. Þær segja
stefnuna vera þá að hver vörulína
verði aðeins til sölu hjá viðkom
andi safni eða sýningu en geta þó
hugsað sér að síðar meir setji þær
upp netverslun, þar sem margir af
söluaðilunum hafa einungis opið
yfir sumarið.
Úr vörulínu Sauðfjárseturs á
Ströndum segja þær að svokall
aðir Lambalúllar hafi verið vinsæl
asta varan í sumar. Tuskudýrið
Lambalúlli er lamb með höfuð úr
þæfðri ull. Engir tveir lúllar eru
eins né bera sama nafn. Nafnið er
á plastmerki í eyra Lambalúllans
ásamt bæjarnafninu Þúfu. Nafnið
er einnig að finna í nafnavísu
sem Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir,
íslenskukennari á Hólmavík, orti.
Þær segja að góð sala á þessari
vöru hafi m.a. kennt þeim það að
kaupandinn sé ekki endilega sá sem
nýtur vörunnar, og stefna að því að
hafa a.m.k. eina vöru sem höfðar til
barna í hverri vörulínu. Reynt er að
hafa vörulínuna breiða, m.a. hvað
varðar verð og hráefni. Hver vöru
lína inniheldur tíu vörur sem eru
allar sérhannaðar og handunnar af
þeim mæðgum. Leirvörurnar eru að
hluta fjöldaframleiddar í sérhönn
uðum mótum sem þær eru steyptar
í en síðan handmálaðar og glerjað
ar. Stefnt er að því að bæta tveim
ur vörulínum við framleiðsluna á
ári hverju. Ásta og Lilja Sigrún sjá
fyrir sér mikla möguleika í fram
tíð Þúfu og segja að framleiðslu af
þessu tagi hafi tvímælalaust vant
að.
„Sérstaðan liggur í að bjóða
upp á heildstæðan pakka sem gefur
viðskiptavininum kost á að taka
þátt í vöruþróuninni og sparar auk
þess vinnu við að leita að mis
munandi vörum sem henta þema
og staðháttum, á mörgum stöðum.
Hugmyndaskortur háir okkur ekki,“
segja þær mæðgur að lokum. „Það
er frekar að okkur skorti tíma til að
framkvæma.“ kse
Þúfa – heildarlausnir
í minjagripasölu
Mæðgurnar Ásta Þórisdóttir og Lilja
Sigrún Jónsdóttir hlutu viðurkenningu í
Vaxtarsprotaverkefni Impru og Framleiðnisjóðs
Gestabók úr tré klædd grásleppu-
hvelju.
Mæðgurnar Ásta og Lilja Sigrún
nokkur sýnishorn af handverki
sínu. Í efstu hillunni má sjá hina vin-
sælu Lambalúlla.
Þessi fjöll eru úr leir en á myndinni
til hægri eru hrútspungar í þurrk-
un.
Nú um áramótin er gert ráð fyrir
að til verði ný stofnun sem nefnd
verður Matvælastofnun sam-
kvæmt tillögu sem liggur fyrir
Alþingi. Innan hennar sameinast
Landbúnaðarstofnun, mat-
vælasvið Umhverfisstofnunar
og matvælasvið Fiskistofu.
Jón Gíslason, forstjóri
Landbúnaðarstofnunar, mun
veita Matvælastofnuninni for-
stöðu. Hann var spurður hvað
ynnist við þessa sameiningu.
,,Það er margt sem vinnst með
þessari sameiningu. Það er ekki
síst varðandi löggjöfina en við
erum að taka upp nýja löggjöf Evr
ópusambandsins um matvæli og
matvælaeftirlit. Þetta er sú grunn
löggjöf sem Evrópulöndin fara
eftir. Löggjöfin verður undir einu
ráðuneyti, það er hinu sameinaða
ráðuneyti landbúnaðar og sjáv
arútvegs. Hluti af matvælamálum
heyrir nú undir umhverfisráðu
neytið en eftir áramótin hefur það
ekkert með málaflokkinn að gera.
Varðandi framkvæmdina gerist
það sama að allt matvælaeftirlit
ið á vegum ríkisins verður í einni
stofnun í staðinn fyrir þrjár stofn
anir eins og nú er. Þar með er mun
minni hætta á einhverri skörun í
eftirliti milli aðila og við samnýt
um þekkinguna miklu betur. Auk
þess mun ný stofnun fara með
yfirumsjón með matvælaeftirliti
sveitarfélaganna, en það hlutverk
fer Umhverfisstofnun með í dag.
Það er verið að sameina stofnanir
sem sinna matvælaeftirliti um alla
Evrópu,“ segir Jón Gíslason og er
það mjög góð og æskileg þróun.
Búfé sem alið er upp til
matvælaframleiðslu skilgreint
sem matvæli
Spurður hvort hin nýja matvæla
stofnun verði staðsett á Selfossi
segist Jón ekki hafa fengið það
endanlega staðfest en bendir á
að landbúnaðar og sjávarút
vegsráðherra hafi sagt í blaða
viðtali að hann byggði þetta á
Landbúnaðarstofnun á Selfossi og
því eru allar líkur á að aðalstöðv
arnar verði þar.
Jón bendir á að Landbúnaðar
stofnun sé einnig með eftirlit
með fóðri, áburði og plöntuheil
brigði, svo dæmi séu tekin. Þeir
dýralæknar sem sinna opinberu
eftirliti, til að mynda með mjólk
urframleiðslu á bæjunum, tilheyra
Matvælastofnun. Þeir sinna einnig
eftirliti í sláturhúsunum og að hluta
til í kjötvinnslum. Samkvæmt
þeirri löggjöf sem tekin verður
upp um áramótin er búfé sem alið
er upp til matvælaframleiðslu skil
greint sem matvæli. Í raun er verið
að horfa til allrar fæðukeðjunnar,
alveg frá upphafi til enda.
Nú starfa 54 hjá Landbúnaðar
stofnun en 21 bætist við þegar
sameiningin á sér stað. Jón sagði
að það væru alltaf einhverjir í
tímabundnum störfum. Ársverk
hjá Landbúnaðarstofnun eru í dag
um 60 og hjá Matvælastofnun
verða ársverk því rúmlega 80.
Stofnunin hefur einnig verksamn
inga við Bændasamtök Íslands
og Veiðimálastofnun sem sam
svara nokkrum ársverkum. Hann
segir að þessar þrjár stofnanir sem
eiga að sameinast séu nú að vinna
að tillögum um innra skipulag
Matvælastofnunar og sú vinna sé á
lokastigi. Þá er verið að ákveða hvar
umdæmisskrifstofur verða og einnig
er gert ráð fyrir sérstakri skrifstofu
fyrir inn og útflutningsmál.
,,Þetta er mjög spennandi verk
efni sem við erum að vinna að, sem
og starfsemi Matvælastofnunnar
þegar hún hefst,“ sagði Jón Gísla
son. S.dór
Jón Gíslason, forstjóri Landbúnaðarstofnunar
Hin nýja Matvælastofnun
hefur störf um áramótin
Jón Gíslason verður forstjóri hinn-
ar nýju Matvælastofnunar.
Nýtt spil – Veiðimann
Út er komið nýtt íslenskt spil sem byggir á einu ástsælasta spili lands
manna, Veiðimann. Spilið kemur frá sömu mönnum og stóðu á bakvið
Hrútaspilið sívinsæla. Myndir af 19 fiskum, teiknuðum af Jóni Baldri
Hlíðberg, prýða spilið ásamt 57 fiskauppskriftum. Í Veiðimann safnar
maður fisktorfum, lærir nöfn fiskanna og veit alltaf hvað á að hafa í mat
inn. Hér er í raun um að ræða venjuleg spil, hjarta, tígull spaði, lauf með
öllum fyrrgreindum upplýsingum á.
Veiðimann er í raun uppskriftaspilabók. Heimasíða Veiðimanns er
www.veidimann.is
Það hlýtur að vera heppilegt að taka í spil fyrir matinn, í það minnsta fyrir
kokka sem vantar hugmyndir.