Bændablaðið - 18.12.2007, Side 16
Bændablaðið | Þriðjudagur 18. desember 20071
Gleðileg jól.
Óskum bændum og búaliði
hagsældar á komandi ári
Dúnhreinsunin
Digranesvegi 70
Gleðileg jól, óskum
bændum og búaliði
hagsældar á
komandi ári
Gleðileg jól
Samband garðyrkjubænda
_____________
Landssamband kartöflubænda
Félag garðplöntuframleiðenda
Félag grænmetisframleiðenda
Félag blómaframleiðenda
Kartöfluverksmiðja Þykkvabæjar hf.
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs
Gleðileg jól,
gott og farsælt komandi ár!
Þökkum viðskiptin á árinu
Himinn sf.
Æðardúnshreinsunin Skarði
Gleðileg jól, gott og
farsælt komandi ár.
Hagþjónusta landbúnaðarins
Gleðileg jól,
óskum bændum og búaliði
hagsældar á komandi ári.
Vélaval, Varmahlíð
Gleðileg jól,
óskum bændum og búaliði
hagsældar á komandi ári.
Framleiðnisjóður
landbúnaðarins
Gleðileg jól,
gott og farsælt komandi ár!
Samband íslenskra loðdýrabænda
,,Við byrjuðum að gefa fólki að
smakka sneið af hangilæri strax
og við byrjuðum með Jólagarðinn
fyrir tæpum tólf árum.
Hangikjötið hefur notið vaxandi
vinsælda hjá gestum okkar. Fólk
pantar hjá okkur hangilæri allt
árið en þó mest á þessum tíma. Ég
býst við að það fari svona fjögur
til fimm hundruð læri frá okkur
núna í desember,” sagði Benedikt
Grétarsson, eigandi Jólagarðsins
í Eyjafjarðarsveit, á dögunum.
Það vakti athygli tíðindamanns
blaðsins þegar hann kom ásamt
fleira fólki i heimsókn í Jólagarðinn
nú í haust þegar Benedikt sneiddi
niður hrátt hangiket í gríð og erg
og bauð gestunum að smakka.
Gestirnir lofuðu kjötið í hástert en
Benedikt var spurður nánar út í
málið.
,,Það er Kjarnafæði á Akureyri
sem sér um að reykja kjötið og í
upphafi var ákveðið að kalla þetta
Húskarlahangikjöt. Það er held
ur meira reykt en venjulegt kjöt
og það eru notuð frekar smærri
lambalæri í þetta. Gjarna læri sem
eru 1,52 kg að þyngd; þá er búið
að taka rófubeinið burt og skera
alla fitu af. Við erum búin að þróa
þetta svona áfram þennan tíma og
ég veit um marga sem eru farnir
að nota þetta sem snakk eftir vinnu
eða álegg á brauð. Sjálfum finnst
mér engin jólastemning nema það
sé hangikjöt og ég tala nú ekki um
hvað þetta gefur góðan ilm í húsið,”
sagði Benedikt.
Benedikt rekur Jólagarðinn
ásamt konu sinni, Ragnheiði Hreið
arsdóttur. Hann segir að þessi kynn
ing þeirra á hangikjöti hafi vakið
athygli; þannig veitti Búnaðarsam
band Eyjafjarðar þeim viðurkenn
ingu fyrir nokkrum árum vegna
kynningar á þessari rammíslensku
vöru. ÖÞ
Húskarlahangiketið sífellt vinsælla
Benedikt mundar hnífinn á hangikjötslærið sem hangir niður úr loftinu.
Mynd ÖÞ
Jól í Álfhóli
Síðustu helgina í nóvember og
fyrstu helgina í desember var
árlegur jólamarkaður haldinn í
Gallerí Álfhóli á Bjarteyjarsandi.
Sjónvarpskonan góðkunna, Edda
Andrésdóttir, opnaði markaðinn
laugardaginn 24. nóvember þar
sem hún las upp úr bók sinni
„Í öðru landi – Saga úr lífinu“.
Hún ræddi við gesti og rifjaði
upp minningar úr Hvalfirðinum
en faðir hennar, Andrés, var
verkstjóri í hvalstöðinni í mörg
sumur og þar starfaði móðir
hennar Svana einnig um árabil.
Fleiri góðir gestir heiðruðu
Álfhól með nærveru sinni; þver
flaututríóið Patrycja, Sigríður og
Ásdís spiluðu fyrir gesti hugljúf
jólalög og tvíburasysturnar Hjördís
Tinna og Ingibjörg Birta mættu
með harmóníku og fiðlu og spiluðu
saman. Boðið var upp á ekta heitt
súkkulaði, kaffi og nýbakað góð
gæti svo gestir komust óneitanlega
í hátíðarskap á jólamarkaðnum.
ehg/ah
Á efri myndinni les Edda upp úr
bók sinni en á þeirri neðri leika
tvíburasysturnar Hjördís Tinna og
Ingibjörg Birta á fiðlu og harm-
óniku.
Vonast er til að hægt verði að taka reiðhöll Hesta-
mannafélagsins Léttis á Akureyri í notkun í febrú-
ar á næsta ári. Bæjarráð samþykkti í liðinni viku
að leggja fram aukið fé til byggingarinnar til að
koma í veg fyrir að framkvæmdir stöðvist.
Ásta Ásmundsdóttir, formaður félagsins, segir að
bærinn leggi fram aukið fjármagn gegn því að félagið
beri ábyrgð á að koma höllinni í notkun, en til að svo
geti orðið þarf það að leggja fram um 13 milljónir
króna til viðbótar 30 milljónum frá bænum.
„Já, við vonumst til þess að geta lagt fram þessa
penginga sem á vantar,“ segir Ásta. Hún nefnir að
félagsmenn þurfi nú að leggjast á eitt til að svo geti
orðið, en m.a. er horft til þess að Léttismenn komi að
verkinu með sjálfboðavinnu við frágang og annað.
„Það er auðvitað frábært að þurfa ekki að stöðva
framkvæmdir núna. Menn hafa séð að eina vitið var
að halda áfram og koma reiðhöllinni í gagnið,“ segir
Ásta, en verðbólga og fleiri þættir hafa sett strik í
reikninginni og gert það að verkum að kostnaður við
framkvæmdir er hærri en ráð var fyrir gert.
Frábært að þurfa ekki að stöðva framkvæmdir