Bændablaðið - 18.12.2007, Qupperneq 17
Bændablaðið | Þriðjudagur 18. desember 20071
Fr
u
m
VERKIN TALA
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • velfang@velfang.is
Hágæða haugsugur
og mykjudælur
frá Redrock
Haugsugur
4.800-18.000 lítra
Mykjudælur frá
1,82 til 3,0 m.
Til afgreiðslu
nú þegar
Ákveðið hefur verið að reisa
atvinnuhúsnæði á Hólmsheiði,
rétt austan við borgina, og til
þess að fá lóðir undir þessi hús
þarf að ryðja skóg sem þar er
og plantað hefur verið út í sum-
arvinnu unglinga í gegnum árin.
Dagur B. Eggertsson borg
arstjóri sagði að eitthvað af skóg
inum væri hægt að flytja, sumt
fengi að standa en hluta hans
yrði að fella og væru það einkum
barrtré sem mjög erfitt væri að
flytja. Nú er það í skoðun hvort
fallegustu lundirnir sem þarna
eru geti ekki staðið óhreyfðir
áfram. Borgarstjóri sagði að allt
væri þetta unnið í samráði við
Skógræktarfélag Reykjavíkur sem
hefði sent inn óskir og ábending
ar varðandi skóginn á svæðinu.
Nærgætni nauðsynleg
Dagur sagði að það hefðu verið
börn og unglingar sem plöntuðu
út þeim skógi sem þarna væri.
Þess vegna væri enn erfiðara en
ella að þurfa að færa til eða fella
hluta af þessum skógi því þeir
sem plöntuðu honum bæru eðli
lega til hans tilfinningar. Mikla
nærgætni þyrfti í það verk. Hann
benti á að þarna væri líka mikil
víðátta sem hægt væri að setja
aukinn kraft í að rækta.
Nú er það svo að ef talað er
um að byggja eða reisa eitthvað
stórt og mikið er alltaf bent á
Hólmsheiðina, rétt eins og hún
taki endalaust við. Nefna má í
þessu sambandi nýjan flugvöll í
stað Vatnsmýrarflugvallarins og
nýtt fangelsi. Og nú er það svæði
undir atvinnuhúsnæði. Dagur var
spurður hvort Hólmsheiðin tæki
endalaust við?
Mikil eftirspurn eftir lóðum
undir atvinnuhúsnæði
Hann sagði að Hólmsheiðin gerði
það að vísu ekki en um væri að
ræða 150 hektara auk þess svæðis
sem menn hefðu talað um undir
flugvöll. Til samanburðar má
nefna að Vatnsmýrin er 150 hekt
arar með Háskólasvæðinu og
Landspítalasvæðinu þannig að
hér er um allstórt landsvæði að
ræða.
Dagur segir að mjög mikil
eftirspurn sé eftir lóðum undir
atvinnuhúsnæði og þarna á
Hólmsheiðinni er gert ráð fyrir að
næsta atvinnuhúsnæðissvæði rísi.
Hafist verði handa við uppbygg
inguna á næsta ári.
Hjónin Ólafur Sigurjónsson og
Lilja Guðbjartsdóttir stofnuðu
nýverið fyrirtækið Flögur ehf.
þar sem þau framleiða svokall-
aðar pappaflögur sem koma í
stað hins hefðbundna spóns.
Pappaflögurnar eru hugsaðar
sem undirburður fyrir hesta og
hænur á kjúklingabúum og hafa
marga kosti umfram spón.
„Með þessari framleiðslu stund
um við endurvinnslu og það er
jákvæðasti þátturinn í þessu ferli.
En það sem pappaflögurnar hafa til
dæmis fram yfir spóninn er að þetta
er fjórum sinnum rakadrægara
efni, það eru engin aukaefni í því,
það er rykfrítt, það klessist ekki
saman, það eyðir lykt og er ódýrara
í þokkabót,“ útskýrir Ólafur.
40% ódýrara efni
Fyrirtækið fór formlega af stað
í byrjun desember og er til húsa
í Hafnarfirði. Þau hjónin höfðu
aldrei komið nálægt neinu slíku
fyrr, en þar sem Ólafur var eitt sinn
virkur hestamaður og hafði starfað
í BYKO við sölu á trjákurli og öðru
var þessi hugmynd ekki ný af nál
inni hjá honum.
„Þetta var búið að vera hugmynd
lengi hjá mér en síðan fór ég á nám
skeið hjá Iðntæknistofnun um síð
ustu áramót þar sem þetta fór form
lega af stað og síðan þróaðist þetta
áfram. Kjúklingabúin eru byrjuð að
sýna þessu áhuga, enda er þetta um
40% ódýrara efni en hefðbundinn
spónn svo þetta lofar góðu,“ segir
Ólafur sem flytur jafnframt inn
spónaköggla.
Vélin sem þau nota til verks
ins er þónokkuð afkastamikil og
getur framleitt rúmlega 120 poka
á klukkustund sem vega um 2530
kíló hver. Þau Ólafur og Lilja lentu
þó í því í byrjun að fá vél til verks
ins sem dugði þeim skammt.
„Við gerðum tilraun í sumar
með íslenska vél, svokallaða
Júpítersvél, sem virkaði ekki fyrir
okkur. Þannig að við leituðum út
fyrir landsteinana og fundum vél
sem hentar okkar framleiðslu en
þetta er vel þekkt fyrirbæri erlend
is; að kurla niður pappa til notkunar
sem undirburð,“ útskýrir Ólafur.
Þeir sem hafa áhuga á pappa
flögunum geta sett sig í samband
við Ólaf í síma 8431140 eða sent
tölvupóst á netfangið flogur@sim-
net.is.
Umhverfisvænar og rykfrí-
ar pappaflögur í undirburð
Ólafur
Sigurjónsson
og Lilja
Guðbjartsdóttir
fóru af stað með
fyrirtæki sitt,
Flögur ehf., í byrj-
un desember þar
sem þau framleiða
pappaflögur í und-
irburð.
sími 530 1700 / www.rp.is
Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla
og þökkum viðskiptin á árinu.
Vélin sem þau fengu erlendis frá í verkið hefur þann góða eiginleika að
hún sker pappaflögurnar niður í svipaðar stærðir.
Ólafur rótar í pokanum og sýnir ljósmyndara sýnishorn af pappaflögun-
um.
Hólmsheiði:
Fella þarf skóg vegna lóða
undir atvinnuhúsnæði