Bændablaðið - 18.12.2007, Page 23
Bændablaðið | Þriðjudagur 18. desember 20073
Umhverfisstofnun og JPV útgáfa
hafa samið um útgáfu bókarinnar
Veiðar á villtum fuglum og spen-
dýrum eftir Einar Guðmann, sér-
fræðing hjá Umhverfisstofnun.
Bókin er samin sem kennslubók
fyrir verðandi skotveiðimenn
sem sitja undirbúningsnámskeið
fyrir hæfnispróf sem gefur þeim
réttindi til að sækja um veiðikort
hjá Umhverfisstofnun.
Með samningnum verður bókin
fáanleg á almennum markaði en
fram að þessu hafa verðandi veiði
menn eingöngu fengið hana í hend
ur og löngu ljóst að þörfin fyrir bók
af þessu tagi nær langt út fyrir raðir
þeirra.
Í samningnum felst að JPV mun
sjá Umhverfisstofnun fyrir nægi
legum fjölda eintaka árlega til að
mæta þörfinni vegna skotveiðinám
skeiða en að öðru leyti er útgáfa og
dreifing bókarinnar í höndum JPV.
Hér er um veglega bók að ræða,
ríkulega myndskreytta, þar sem
öllu er lýtur að skotveiðum á Íslandi
eru gerð ítarleg skil. Fjallað er um
veiðiaðferðir, veiðitímabil, tegund
ir veiðibráðar og leyfilegar gerðir
skotvopna og siðfræði skotveiða en
öllu þessu er ætlað að fræða núver
andi og verðandi skotveiðimenn
svo umgengni um íslenska náttúru
og veiðistofna hennar verði með
sem bestum hætti.
Á myndinni eru Jóhann Páll
Valdimarsson, forstjóri JPV útgáfu,
Ellý K. Guðmundsdóttir, forstjóri
Umhverfisstofnunar, og Einar Guð
mann, höfundur bókarinnar.
Fyrir skömmu var því fagnað
á Hvammstanga að ný bók um
Skáld-Rósu er komin út. Höf-
undur bókarinnar er séra Gísli
H. Kolbeins. Bókin fjallar um lífs-
hlaup Skáld-Rósu eða Vatnsenda-
Rósu eins og hún var oft nefnd.
Það er fyrir tilstilli Kvennabands-
ins í Vestur-Húnavatnssýslu og
séra Gísla að ráðist var í úgáfu
bókarinnar. Kvennabandið er
samtök kvenfélaga í Húnaþingi
vestra. Það fékk fjárstyrk frá
Sparisjóði Húnaþings og Stranda
sem réði baggamuninn um að
hrinda útgáfunni í framkvæmd.
Rósa Guðmundsdóttir var fædd
í Hörgárdal árið 1795. Árið 1817
fluttist hún í Húnavatnssýsluna
og átti heima þar til ársins 1841.
Lengst bjó hún á bænum Vatnsenda
í Þverárhreppi og var oftast kennd
við þann bæ. Hún þótti afar glæsi
leg kona, stundaði ljósmóðurstörf
og átti mjög létt með að yrkja. Urðu
margar vísur hennar landsþekktar
og hafa lifað með þjóðinni fram á
þennan dag. En í einkalífi hennar
skiptust á skin og skúrir og það varð
tilefni margvíslegra sögusagna.
Rósa andaðist árið 1855 og var jarð
sett á FremraNúpi í Miðfirði. Það
er fyrir tilstilli kvenna í sýslunni að
leiði hennar hefur varðveist. Árið
1965 stóðu konur fyrir að reistur
var myndarlegur minnisvarði um
Rósu í kirkjugarðinum á Fremra
Núpi.
Þá var séra Gísli Kolbeins ein
mitt sóknarprestur á Melstað. Flutti
hann minningarræðu um Rósu
við þetta tækifæri. Eftir þetta seg
ist Gísli hafa farið að kynna sér
betur ýmislegt varðandi lífshlaup
VatnsendaRósu og afrakstur þess
kemur nú fyrir alþjóð í bókinni.
Það er bókaútgáfan Salka sem
gefur bókina út. ÖÞ
Bók um Skáld-Rósu komin út
Séra Gísli Kolbeins afhendir Jónínu Jóhannesdóttur formanni Kvenna-
bandsins fyrsta eintakið af bókinni. Ljósm. ÖÞ
Vegleg bók um skotveiði á Íslandi
Leitað að heitu vatni
Friðfinnur K. Daníelsson var
á dögunum í Grímsey með
bor sinn, Mána, en tilgang
urinn er leit að heitu vatni.
Grímseyjarhreppur leitaði til
Friðfinns, sem starfað hefur
við boranir frá árinu 1976 um
land allt og raunar í útlönd
um líka. Hann á og rekur fyr
irtækin Alvar ehf., sem sér um
boranir, og Varmavélar sem
veita úrlausnir varðandi orku.
Grímseyingar hafa hitað húsa
kynni með olíu og rafmagni
og er mikið í húfi að heitt vatn
finnist í eynni til húshitunar.
Friðfinnur trúir því að nægilega
heitt vatn finnist, en það geti
hugsanlega verið sjóblandað.
Nauðsynlegt þótti nú í lið
inni viku að gera hlé á hita
vatnsborun í Grímsey, á rúm
lega 150 metra dýpi. Ástæðan
er sú að jarðlög eru óhemju lek,
þau eru mjög opin á köflum
og mikið vatn, aðallega sjór í
þessu tilviki, fossar inn í bor
holuna. Ákveðið hefur verið að
þétta holuna eftir áramót áður
en hægt er að bora dýpra.
Fr
u
m
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • velfang@velfang.is
VERKIN TALA
Hugheilar jóla– og nýárskveðjur
með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.
www.bbl.is