Bændablaðið - 18.12.2007, Qupperneq 29
Bændablaðið | Þriðjudagur 18. desember 2007
Íslendingar eru mikil jólabörn. Við
byrjum yfirleitt snemma að huga
að jólaskreytingum, borðum smá
kökur og förum í jólahlaðborð allan
desember, auk þess að senda mik
inn fjölda jólakorta. Í okkar huga
eru jólin fjölskylduhátíð, tækifæri
til njóta samverunnar með börnum
okkar og ættingjum.
Þegar ég var við nám og störf
í Svíþjóð komst ég ekki heim síð
asta árið vegna mikilla anna í nám
inu og þá voru góð ráð dýr. Ég sá
fram á jól án fjölskyldunnar, án
hangikjöts, án Ora baunanna og án
jólaölsins. En allt fór á besta veg.
Íslensk fjölskylda bauð mér að vera
hjá þeim yfir jólin og áramótunum
var fagnað með sænskum vinum.
Hangikjötið og laufabrauðið skilaði
sér til Svíþjóðar og ég uppgötvaði
að sænska maltölið er mjög líkt því
íslenska. Eiginlega bara alveg eins.
Að sjálfsögðu var einnig boðið
upp á sænska jólaskinku, jólagraut
og Lucia bollurnar (saffranbullar),
sem hafa síðan verið sjálfsagður
hluti af jólahaldinu eftir að ég sneri
heim.
Jól á Íslandi
En hvað með útlendingana sem
dveljast á Íslandi yfir jólin? Hvern
ig upplifa þeir íslensk jól? Maya
frá Þýskalandi sagði: „Maturinn er
ekki eins stór hluti af Weihnachten
eða jólunum heima, eins og hann
virðist vera hér. Sumir baka
kannski Stollen, en mér finnst það
ekkert sérstaklega gott.“ Stúfur og
bræður hans þykja soldið spes og
skórinn í glugganum þarfnast smá
skýringar, sérstaklega fjöldi gjaf
anna. „Við erum bara með einn
eiginlegan jólasvein heima, Sankti
Nikulás og þann 6. desember er St.
Nikulásarmessa. Hann dreifir gjöf
um til þeirra sem hafa verið góðir
þennan dag, en ekki þrettán sinnum
til jóla. Og við eigum ekkert sem
líkist Grýlu, Leppalúða og jólakett
inum,“ sagði Pawel frá Póllandi.
Kæsta skatan þykir hreinlega
ógeðsleg og deilir þar fyrsta sæti
með hákarlinum yfir ógeðfelldan ís
lenskan mat.
Nýjar jólahefðir?
„Heldurðu að starfsmaðurinn vilji
kannski ekki bara fara heim yfir
jólin,“ spurði bóndi að norðan
fyrir nokkru. Við finnum stundum
fyrir því að fólki finnst aukið álag
að vera með starfsmann hjá sér
yfir jólin, og vill gefa honum frí.
„Best væri að spyrja hann sjálfan.
Yfirleitt leggjum við áherslu á að
starfsmaður sem býr hjá fjölskyldu
fái tækifæri til að taka þátt í jóla
undirbúningnum. Það er nefnilega
svo stór hluti af upplifuninni af því
að búa og starfa á Íslandi að kynn
ast íslenskum jólum með íslenskri
fjölskyldu,“ svaraði ég.
Það er hægt að gera t.d. með
því að fá viðkomandi til að taka
þátt í jólabakstrinum, setja upp jóla
skrautið, og bæta jafnvel einhverju
frá heimalandi viðkomandi á jóla
matseðilinn.
Kannski ekki endilega á aðfanga
dag sjálfan, en af hverju ekki bjóða
upp á sænskan eða franskan jólamat
á annan í jólum?
Minningar frá Íslandi
Algengt er að pakkar berist að
heiman með bæði gjöfum og mat
sem minna á heimahagana. Til
dæmis á ég enn litla jólatréð sem
barst í jólapakka frá ömmu minni
og móðursystur til að skreyta her
bergið mitt í Stokkhólmi. Í hvert
skipti sem ég set það á sinn heið
ursstað á heimili mínu fyrir jólin
hugsa ég til Svíþjóðar og allra vina
minna sem ég eignaðist þar.
Með því að deila heimili sínu og
jólahefðum með erlendum starfs
manni, erum við að búa til nýjar
minningar og hefðir sem eiga eftir
að vera mikilvægur þáttur af þeirra
jólum um ókomna tíð.
Minningarnar um íslensku jólin
þeirra.
Eygló Harðardóttir
Ráðningaþjónustunni Nínukoti
eyglo@ninukot.is – www.ninukot.is
Erlendir starfsmenn í sveit
Jól fjarri heimahögum
ÞÓR HF | REYKJAVÍK : Ármúla 11 | Sími 568-1500 | AKUREYRI: Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is
5,8 lítra 5 strokka 125 ha Kubota dieselmótor
Vökvaskiptur gírkassi 24/24, með skriðgír
með 8 kúplingsfríum milligírum.
Einstaklega lipur vél - ytra framhjól snýst á meiri
hraða ef beygjuhorn er meir en 35°
Fullkomið rafstýrt beisli og öflugt vökvakerfi.
Rúmgott ökumannshús með loftkælingu (A/C)
Kubota M125X - flaggskipið frá KUBOTA
Hefurðu kynnt þér ótvíræða yfirburði
Kubota M125X dráttarvélarinnar?
Allt þetta og fjölmargt fleira gera Kubota M125X að
einstaklega hentugri vél fyrir íslenskan landbúnað.
Hafið samband við sölumenn okkar og fræðist nánar
um japönsku Kubota M125 dráttarvélarnar
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
12 - 24V “booster”
Frábært verð.
Start- og
hleðslutæki
Eftirlit RSK með
iðgjaldagreiðslum
í lífeyrissjóði.
Innheimta LSB
Eftirliti Ríkisskattstjóra með iðgjaldagreiðslum í lífeyris
sjóði vegna ársins 2006 skv. 6. gr. laga nr. 129/1997 um
skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða,
sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr.12/1999 um Lífeyrissjóð bænda,
lauk í byrjun desember.
Lífeyrissjóður bænda mun innheimta vangreidd iðgjöld skv.
beiðni RSK með greiðsluseðlum nú í desember.
Aðrir lífeyrissjóðir eru einnig að innheimta vangreidd
iðgjöld um þessar mundir. Bændur sem fá greiðsluseðla frá
öðrum lífeyrissjóðum vegna iðgjalda sem þeir hefðu átt að
greiða til Lífeyrissjóðs bænda eru beðnir að hafa tafarlaust
samband við iðgjaldafulltrúa sjóðsins til þess að unnt verði
að leiðrétta innheimtuna.
LSB hvetur þá sjóðfélaga sína sem fá senda greiðsluseðla
frá sjóðnum að gera skil fyrir eindaga.
Lífeyrissjóður bænda
Vinnustöðvar starfsmanna
Umhverfisstofnunar eru víða
um land þótt aðalstöðvarnar séu
í Reykjavík með flesta starfs-
menn. Starfsmenn eru t.a.m. á
Egilsstöðum, í þjóðgörðunum
í Skaftafelli, Jökulsárgljúfrum
og Snæfellsnesi, auk land-
varða á friðlýstum svæðum
víða um land. Á næsta ári
munu bætast við starfsmenn á
Ísafirði og í Heimaey og er því
ljóst að fjölgun starfsmanna
Umhverfisstofnunar á sér stað
á landsbyggðinni en ekki í
Reykjavík.
Þetta kemur fram í pistli á vef
Umhverfisstofnunar, í kjölfar
umræðu um þær breytingar sem
gerðar hafa verið á skipulagi
stofnunarinnar og hafa m.a. í för
með sér að veiðisvið hennar, sem
var á Akureyri, verður lagt niður
og verður deild innan náttúru og
dýraverndarsviðs stofnunarinnar.
Mikil viðbrögð hafa orðið við
þessum fyrirhuguðu breyting
um sem taka gildi um áramót og
ýmsir ályktað gegn því að starf
seminni fyrir norðan verði breytt
með þessum hætti.
„Eðlilega hefur orðið nokk
ur umræða um þessar breytingar
enda hafa þær í för með sér til
færslur einstakra starfsmanna á
milli sviða en ekki verða breyt
ingar á starfsstöðvum þeirra.
Með þessu gefst einnig tækifæri
til að víkka út starfssvið ákveð
inna starfseininga og má nefna
að á Akureyrarskrifstofu stofn
unarinnar, sem til þessa hefur
eingöngu verið skipuð starfs
mönnum veiðistjórnunarsviðs,
gefst nú tækifæri til að staðsetja
starfsmenn annarra sviða og þar
með uppfylla þær væntingar að
skrifstofan verði svæðisskrif
stofa Umhverfisstofnunar allrar
en ekki einungis eins tiltekins
sviðs,“ segir á vef stofnunarinnar.
Varnir ehf.
Allur búnaður til meindýravarna í verslun okkar Varnir.is
Límbakkar, Safnkassar, Minkagildur, vinnufatnaður,
Kuldagallar, Peysur, ofl.
Eyði meindýrum, s.s. skordýrum, silfurskottum, músum og
rottum. Hægt er að greiða í versluninni, með bankainnleggi
eða með kreditkorti á öruggann hátt.
Magnús Svavarsson meindýraeyðir
Sími 4612517 og 8982517
eða á netfanginu: www.Varnir.is
Fjölgun starfsmanna líka á landsbyggðinni