Bændablaðið - 18.12.2007, Qupperneq 33
Bændablaðið | Þriðjudagur 18. desember 200733
Áhættumat í ferðaiðnaði
Borið hefur á kröfum um gerð
skriflegs áhættumats frá erlendum
ferðaskrifstofum í hinum ýmsum
geirum ferðamála sem selja ferðir
hingað til lands eins og t.d. vegna
hestaferða, skotveiða, flúðasiglinga
og fleira. Þessi gerð af áhættumati
fellur ekki undir vinnuverndarlög
in og er ekki krafist samkvæmt
íslenskum lögum. Aðferðafræðin
er hinsvegar sú sama og þess
vegna enn ríkari ástæða að kynna
sér aðferð Vinnueftirlitsins.
Tilkynning slysa
Að lokum vill ég minna bændur
á skráningu slysa, en samkvæmt
lögum nr. 46/1980 skal atvinnu
rekandi án ástæðulausrar tafar
tilkynna Vinnueftirlitinu um öll
slys þar sem starfsmaður verð
ur óvinnufær í a.m.k. einn dag
auk slysdagsins. Því miður er allt
of algengt að atvinnurekendur
og starfsfólk ekki viti af þessari
skráningaskyldu eða einfaldlega
sleppi því að tilkynna slysin. Talið
er að einungis fjórðungur allra
tilkynningaskyldra slysa berist
Vinnueftirlitinu. Slysaskráningin
hefur fyrst og fremst forvarn
argildi fyrir vinnumarkaðinn.
Vinnueftirlitið fær þarna mik
ilvægar upplýsingar um mögulegar
hættur út á vinnustöðunum og
getur brugðist við með breytt
um áherslum í eftirlitinu, átaks
verkefnum og fræðslu. Eyðublöð
og leiðbeiningar um tilkynningu
vinnuslysa til Vinnueftirlitsins er
að finna á heimsíðu stofnunarinnar
www.vinnueftirlit.is
Samvinnuverkefni
Gerð skriflegs áhættumats er nýtt
hér á landi og hvet ég ykkur bænd
ur til að taka vel á móti eftirlits
mönnum okkar þegar þeir koma í
heimsókn. Saman klárum við þetta
verkefni eins og öll önnur. Það er
um að gera að mikla þetta ekki fyrir
sér. Aðgerðin er tiltölulega einföld
en árangursrík. Áhættumatið hefur
skilað góðum árangri í Evrópu og á
án vafa eftir að gera slíkt hið sama
hérlendis. Til að undirstrika mik
ilvægi áhættumats þá má nefna
að Evrópska vinnuverndarstofn
unin í Bilbao á Spáni hefur ákveð
ið að áhættumat (risk assessment)
fyrir vinnustaði verði þema næstu
tveggja vinnuverndarvika sem
haldin eru í október árlega.
Að lokum vill ég minna á að
Vinnueftirlitið verður með fræðslu
og upplýsingar á vormánuðum á
fræðslu eða búnaðarþingi.
Loðdýrabúið Ásgerði 2 í Hruna-
mannahreppi fagnar 20 ára af-
mæli sínu um þessar mundir en
starfsemin hófst 10. desember
1987 með kaupum á 300 læðum.
Nú er búið með 2800 læður og
hefur verið að ná gríðarlega
góðum árangri, m.a. hvað varðar
frjósemi og feldgæði. Fóðurþörf
búsins er um 600 tonn á ári.
Eftir að uppbyggingu á loðdýra
húsum og aðstöðu lauk, sem eru
samtals um 6000 fermetrar, var
farið í að vélvæða fóðurgerð og
skinnaverkun búsins og er það nú
mjög vel tækjum búið; til dæmis
eru notaðir róbótar sem hafa tekið
yfir mestu handavinnuna og erf
iðið. Magnús Hlynur Hreiðarsson
heimsótti loðdýrabúið í Ásgerði
í tilefni af 20 ára afmælinu og tók
meðfylgjandi myndir.
Fjölskyldan í Ásgerði: Hjónin Sig-
urður Jónsson og Guðrún Guð-
mundsdóttir ásamt syni sínum Þor-
birni sem er yfir búinu. Eiginkona
hans, Jóna Guðmundsdóttir, er
einnig eigandi.
Loðdýrabúið Ásgerði fagnar 20 ára afmæli:
Byrjaði með 300 læður en þær eru orðnar 2800
Skinnin frá Ásgerði eru boðin upp
fimm sinnum á ári á uppboðsmörk-
uðum í Kaupmannahöfn og Hels-
inki. Búið hefur fengið mjög gott
verð fyrir skinn sín á síðustu árum.
Þorbjörn með eitt dýrið á búinu.
Loðdýrabúið í Ásgerði hefur unnið til fjölda verðlauna, meðal annars fyrir
bestu skinnin og frjósemina.