Bændablaðið - 18.12.2007, Síða 35
Bændablaðið | Þriðjudagur 18. desember 20073
Vinna við upptöku NorFor fóð-
urmatskerfisins fyrir mjólk-
urkýr er nú hafin hér á landi,
en undirbúningur hefur staðið
um nokkra hríð. Eins og lesend-
ur Bændablaðsins væntanlega
þekkja, er NorFor afrakstur
norræns þróunarverkefnis sem
hófst árið 2002 eru þátttökulönd-
in Danmörk, Ísland Noregur og
Svíþjóð.
Í samstarfslöndunum hófst inn
leiðing fóðurmatskerfisins í fyrra,
eða haustið og veturinn 2006/2007.
Eins og við má búast, þegar verið er
að taka í notkun nýja hluti, þá tekur
það ávallt nokkurn tíma. Sú hefur
orðið raunin þar, að útbreiðsla
eða hagnýting kerfisins gerist ekki
alveg eins hratt og bjartsýnustu
vonir stóðu til. Ekki svo að skilja
að upp hafi komið erfiðleikar eða
hnökrar í notkun kerfisins heldur
miklu fremur að það tekur bæði
ráðgjafana og bændur meiri tíma
og vinnu að tileinka sér nýja hluti,
nýja þekkingu og ná færni í notkun
fóðurmatskerfisins.
Hvernig ætlum við að fara að ?
Við ætlum að draga lærdóm af
reynslu hinna Norðurlandanna og
fara hægt en skipulega í að inn
leiða og prófa kerfið hér á landi.
Þess vegna höfum við valið að feta
okkur þá leið í byrjun, að búnaðar
samböndin eða ráðgjafarstöðvar
þeirra, velja fáein kúabú, samtals
22 bú hvert á sínu svæði, sem naut
griparæktarráðunautar munu vinna
sérstaklega með að fóðuráætl
anagerð í vetur og um leið prófun
á nýja fóðurmatskerfinu við okkar
aðstæður.
Efnagreiningar – upplýsingar um
fóðrið
Forsenda fóðurráðgjafar og fóð
uráætlnagerðar samkvæmt nýja
kerfinu eru upplýsingar um fóðr
ið, – um fóðurgildið. Í NorFor
kerfinu er gert ráð fyrir víðtækari
efnagreiningu á fóðri en í eldra
eða núverandi fóðurmatskerfini; –
FEm, AAT/PBV. Þar er einkum um
að ræða kolvetnahluta fóðursins,
– annars vegar frumuveggjarkol
vetnin (NDF) og hins vegar sykr
ur og sterkju. Einnig eru nokkrir
fóðurþættir reiknaðir út á grund
velli upplýsinga um heysýnin, s.s.
sláttutíma, þroskastig og grasteg
und, – sem og á grundvelli greindra
fóðurþátta.
Þróun efnagreiningarþjónustu
á gróffóðursýnum hér á landi, til
samræmi við þarfir NorFor, er ekki
að fullu lokið, en vonir standa til
að sú starfsemi verði fulbúin næsta
vor.
Sú leið var því valin nú, að
senda heysýni frá kúabúunum 22
til greiningar í Noregi. Alls voru
92 heysýni greind hjá fyrirtækinu
AnalyCen í Noregi. Niðurstöður
greininganna má sjá í nýju NorFor
fóðurtöflunni sem er öllum að
gengileg á veraldarvefnum. Slóðin
er; www.norfor.info
NorFor – fóðurtaflan - íslenski
hlutinn; www.norfor.info
NorFor fóðurtaflan hefur nú verið
aðgengileg á veraldarvefnum um
eins árs skeið, en hún var opnuð í
september 2006. Fóðurtaflan er
þungamiðja NorFor fóðurmatskerf
isins. Hún er sameiginleg fyrir öll
aðildarlöndin og er sérstaklega gerð
til að þjóna kerfinu. Taflan inni
heldur alla greiningarþætti hverrar
fóðurtegundar sem kerfið þarf á að
halda. Smám saman verða þar til
upplýsingar um fleiri fóðurtegund
ir og þar mun safnast saman mikil
þekking.
Til viðbótar áðurnefndum hey
sýnaniðurstöðum frá ,,frumherj
unum” eru nú komnar inn í íslenska
hluta fóðurtöflunnar greiningar
fjögurra sýna af rúlluheyi, með
mismunandi þurrefnisinnihaldi,
svo og niðurstöður fyrir bygg,
maís, sojamjöl, fiskimjöl, loðnu
mjöl og kolmunnamjöl. Ennfremur
eru í töflunni ,,reiknuð” gildi fyrir
algengustu tegundir kjarnfóðurs
fyrir mjólkurkýr sem eru á markaði
hér. Reiknuðu gildin eru byggð á
tegundasamsetningu hverrar kjarn
fóðurblöndu fyrir sig.
Hugbúnaður til
fóðuráætlanagerðar
NorFor fóðurmatskerfið er marg
þætt og öflugt. Þessvegna þarf öfl
ugan hugbúnað til þess að „keyra“
kerfið og vinna fóðuráætlanir.
Stærstur hluti allra útreikninga fer
fram í öflugum sameiginlegum
hugbúnaði sem vistaður er og keyr
ir á sérstökum vefþjóni sem stað
settur er í Skejby í Danmörku.
Hin aðildarlönd NorFór hafa
þróað sérstök staðbundin hugbún
aðartól til fóðuráætlanagerðar, sem
öll tengjast hinum sameiginlega
vefþjóni, – fóðurtöflunni og reikni
kerfinu. Hvað okkur varðar höfum
við nú valið þá leið að semja tíma
bundið (a.m.k. í vetur) við Norð
menn um afnot af þeirra áætlana
gerðarverkfæri. Það er þróað af
leiðbeiningaþjónustu norskra kúa
bænda TINE Norske Meierier og
heitir TINE OptiFor. Til viðbótar
hefðbundinni fóðuráætlanagerð
getur kerfið „bestað“ fóðurskammt,
þ. e. fundið hagkvæmasta fóð
urskammt út frá gefnum forsendum
m. t. t. efnainnihalds og kostnaðar.
Ráðunautanámskeið
Til þess að kenna okkur notk
un TINE OptiFor til fóðuráætl
anagerðar kom Harald Volden
aðalhöfundur NorFor kerfisins og
einn af hönnuðum norska hugbún
aðarins hingað til lands og stóð
fyrir 3ja daga þjálfun og nám
skeiði fyrir ráðunauta fyrstu dag
ana í desember. Á námskeiðinu
var farið nokkuð ítarlega í gegnum
flesta þætti fóðuráætlnagerðar fyrir
mjólkurkýr með þessum hugbún
aði. Nú stefnum við að því; – að
ráðunautarnir hver á sínu svæði
vinni fóðuráætlanir fyrir hina ,,út
völdu” kúabændur og fylgi þeim
áætlunum eftir með reglubundnum
heimsóknum í vetur.
Eftir veturinn og þennan reynslu
tíma ættu að liggja fyrir haldgóðar
upplýsingar um hvernig til hefur
tekist, hversu vel áætlanir og raun
veruleiki passa saman og hversu
vel nýja NorFor – fóðurmatskerfið
áætlar t. d. fóðurát, afurðir, sam
setningu afurða og ýmsa fleiri
þætti. Kúabændurnir verða eins
konar frumkvöðlar en um leið til
raunadýr / tilraunabú og sú reynsla
sem við heyjum í vetur verður hag
nýtt til að varða og ákveða skipulag
í áframhaldandi innleiðingu kerifs
ins í framtíðnni.
Af hverju að velja norska
hugbúnaðinn TINE OptiFor?
Norðmenn hafa sýnt okkur skiln
ing og verið mjög jákvæðir gagn
vart því að veita okkur tímabund
ið aðgengi að sínu áætlanagerð
arverkfæri til reynslu í vetur. Þess
skal getið að ekki hefur verið tekin
endanleg ákvörðun um hvað hug
búnað við komum til með að nota
til lengri framtíðar.
Hugbúnaður til fóðuráætl
anagerðar og skýrsluhaldskerfi í
nautgriparækt eru nátengdir hlut
ir, sem þurfa að geta „talað“ og
unnið saman. Það skiptir því máli
og vegur talsvert í því vali, – að
Bændasamtökin hafa nú ákveðið
að þróa nýtt skýrsluhaldskerfi fyrir
nautgriparæktina. Í því sambandi
höfum við einnig ákveðið að leita
samstarfs við Norðmenn. Við
ætlum að byggja skýrsluhaldsþró
unina á þeirra fyrirmyndum og
einnig að hagnýta okkur úr þeirra
kerfi það af því sem við teljum
henta okkar aðstæðum.
Fóðurmatskerfið
Hér verður ekki farið nánar í eðli
og virkni fóðurmatskerfisins. Þeim
sem vilja kynna sér það er bent á
6 greinar á nautgriparæktarvef BÍ
undir efnisflokknum; – fóður og
fóðrun. Slóðin er; www.bondi.
is/nautgriparaekt/fodurogfodrun.
Einnig má benda á að greinarnar
hafa birst í FREY. GGuðm.
Gleðileg jól
Óskum bændum og búaliði hagsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Sendum viðskiptavinum okkar bestu jóla- og
nýárskveðjur með þökk fyrir viðskiptina á
árinu sem er að líða.
Samtök selabænda
Gleðileg jól, gott og
farsælt komandi ár.
Gleðileg jól,
gott og farsælt komandi ár!
Svínaræktarfélag Íslands
Gleðileg jól,
gott og farsælt komandi ár!
Landssamtök sláturleyfishafa
Gleðileg jól,
óskum bændum og búaliði
hagsældar á komandi ári.
Félag eggjaframleiðenda
Gleðileg jól,
gott og farsælt komandi ár!
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
Fasteignamiðstöðin
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Þökkum samskiptin á árinu
Lífeyrissjóður bænda
Innleiðing NorFor á Íslandi
Skjámynd af upphafssíðu TINE OptiFor
Þátttakendur glíma við Norfor-kerfið á námskeiði í veiðihúsinu við Grímsá.