Bændablaðið - 18.12.2007, Síða 38
Bændablaðið | Þriðjudagur 18. desember 20073
Jólakrossgáta
Bókstafirnir í tölusettu reitunum mynda heiti á eyrnamarki.
Sendið þetta orð sem lausn á krossgátunni til Bændablaðsins. Í pósti:
Bændablaðið – lausn á krossgátu, Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Tölvupóstur: bbl@bondi.is (setjið í subject: Krossgáta)
Verðlaun verða veitt fyrir rétta lausn. Dregið verður úr réttum lausnum sem borist hafa fyrir 1. janúar 2008.
Vikuna 26.-30. nóvember var
þemavika í Laugagerðisskóla á
Snæfellsnesi. Verkefnin tengdust
flestöll búfjárrækt á svæðinu fyrr
og nú. Er óhætt að segja að mörg
frábær verkefni hafi litið dagsins
ljós eftir mikla vinnu og yfirlegu.
Nemendur hjálpuðust að við að
búa til rétt og allir þæfðu litla
kind sem fór svo í bekkjardilk-
inn. Menn æfðu sig í að marka
og fundu bæjarnúmer, komið var
með ull og hún aðskiliðní þel og
tog. Þær Inga á Kaldárbakka og
Sesselja í Haukatungu komu og
kenndu nemendum að kemba og
svo var spunnið. Yngri nemendur
lituðu kindur í öllum mögulegum
litaafbrigðum.
Ekki fékk nautgriparæktin minni
umfjöllun. Þar voru mismun
andi fjósgerðum gerð góð skil og
síðan teiknuð upp nýtísku fjós með
róbótum og að sjálfsögðu allt í rétt
um hlutföllum svo að nú geta menn
bara komið og fengið flottar teikn
ingar fyrir lítið. Kýr voru litaðar
og svo var komið með spenvolga
nýmjólk og hún skilin í gamalli
skilvindu. Nemendur smökkuðu
rjómafroðu og drukku undanrennu
en því miður tókst ekki alveg að
strokka smjör. Allir nemendur mál
uðu svo sinn bút á stóru kúnni,
henni Ljómalind.
Einnig var fjallað um notkun
hestsins fyrr og nú, nýtísku hesthús
teiknuð, stærð hrossakynja borin
saman og svo fundu nemendur sinn
uppáhaldshestalit og lituðu hesta
myndir.
Í viðbót við þetta fundu nemend
ur ljóð um þessi húsdýr og skrifuðu
niður og æfðu sig svo að semja
setningar með hinum vandbeygðu
orðum ær og kýr.
Allir, jafnt kennarar sem nem
endur, voru sammála um að þetta
hefði tekist vel og verið rosalega
gaman.
Sjá fleiri myndir á heimasíðu
skólans www.laugagerdisskoli.is
Þemavika í Laugagerðisskóla