Bændablaðið - 23.09.2008, Qupperneq 11

Bændablaðið - 23.09.2008, Qupperneq 11
11 Bændablaðið | þriðjudagur 23. september 2008 Vatnsdælur SPD 9500 Dæla - fyrir óhreint vatn Hentugar á heimilið, í garðinn, sumarhúsið eða bátinn Neysluvatnsdælur, brunndælur, borholudælur SCD 12000 Dæla - fyrir ferskvatn. Stillanlegur vatnshæðarnemi. S tillanlegur vatnshæ ðarnem i GP 60 Garðdæla fyrir aukinn þrýsting BPP 4500 Dæla með þrýstikút og þrýstijafnara SPP 60 Inox Ryðfrí og öflug borholu- og brunndæla SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS kr. 747.000 án vsk. kr. 632.500 án vsk. Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur samþykkt að koma á fót sjálfseignarstofnun, Kötlusetri, í samstarfi við þá aðila sem á því kunna að hafa áhuga. Meginmarkmið Kötluseturs verður að stunda rannsóknir á eldstöðinni Kötlu og áhrifum Kötlugosa á mannlíf og nátt- úrufar. Kötlusetri verður einnig ætlað hlutverk á sviði land- og ferðamálafræða sem og menn- ingarmála. Tillagan var sam- þykkt með öllum greiddum atkvæðum. Sveitarstjóra var síðan falið að undirbúa stofnun Kötluseturs með vinnuhópi sem sveitarstjórn tilnefnir. Sveinn Pálsson sveitarstjóri sagði í samtali við Bændablaðið að málið væri á byrjunarstigi og hefði aðeins fyrsta skrefið til að reisa setrið verið tekið. Að þessu hefði verið unnið í nokkurn tíma til þess að stilla fókusinn, eins og hann orðaði það. Nafnið Kötlusetur hefði verið ákveðið og vonast til að fljótlega verði hægt að koma af stað einhverri starfsemi, eins og rannsóknum á Kötlugosi og afleiðingum þess á mjög breiðu sviði. Fræðimannasetur „Hér eru jarðvísindamenn mjög oft á ferðinni við rannsóknir, dag- inn út og daginn inn, liggur mér við að segja. Við erum að vonast til að eitthvað af þeirri starfsemi geti verið hér eftir að aðstöðu hefur verið komið upp fyrir fræðimenn. Eins geta hér farið fram rannsóknir á öðrum eldfjöllum, þótt við köllum setrið eftir Kötlu,“ segir Sveinn og bætir við að enn sem komið er sé það bara sveitarfélagið sem standi að þessu. Hins vegar sé unnið að því að fá fleiri aðila til að koma að verkinu, þótt ekkert sé fast í hendi með það. Sveinn segist vonast til að Háskólafélag Suðurlands, sem er nýstofnað félag, komi að þessu enda hafi það lýst yfir áhuga á að vera með í Kötlusetri. Rætt hafi verið við fleiri aðila en ekkert verið ákveðið enn sem komið er. S.dór Stofna á Kötlusetur í Mýrdalshreppi Hreinræktaður og ættbók- arfærður íslenskur rakki vill komast á gott framtíð- arheimili. Sjaldgæfur að lit, silfurgrár og hvítur, snögg feldgerð og tvíspora. Bólu- settur og örmerktur, dugleg- ur hvolpur. Verð hóflegt fyrir áhugasama. Uppl. í s: 846 0895, Stefanía www.bbl.is

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.