Bændablaðið - 23.09.2008, Síða 12

Bændablaðið - 23.09.2008, Síða 12
12 Bændablaðið | þriðjudagur 23. september 2008 „Jarðepli í íslenskri menningu í 250 ár“ var yfirskrift Haustþings sem AkureyrarAkademían stóð fyrir nýlega. Þar voru kartöflur í öndvegi og fjallað um þær frá ýmsum hliðum. Tilefnið var ærið; Sameinuðu þjóðirnar tileinkuðu árið 2008 kartöflunni, 250 ár eru liðin frá því kartöflur voru fyrst ræktaðar á Íslandi og 200 ár eru nú liðin frá því ræktun kartaflna hófst á Akureyri. Meðal fyrirlesara á þinginu var Hildur Hákonardóttir, myndlistar- og garðyrkjukona. Fyrirlestur henn- ar bar heitið „Saga kartöflunnar í alþjóðlegu samhengi: Hvernig kartöflurnar bárust milli landa og heimsálfa“. Hildur er höfundur bókarinnar Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar. Hildur hefur ferðast allt frá Suður- Ameríku til Eyrarbakka og kynnt sér hvernig fólk þróaði ræktunar- aðferðir. Í bókinni er að finna upp- skriftir, almennar upplýsingar og lifandi lýsingar af fólki sem mótaði Íslandssöguna. Meðal þess sem Hildur kom inn á í máli sínu voru tengsl kart- öflu og myndlistar, en ljóst væri að kartaflan félli ekki að fegurð- arskyni Evrópubúa og hefði því ekki í miklum mæli komið við sögu í myndlistinni. Benti hún á að kart- öflur hefðu ekkert form, þær væru litlar og ljótar og því væru litríkari ávextir á borð við epli og appels- ínur líklegri til að prýða málverk- in. Kartöflur hefðu því ekki ratað inn á málverk meistaranna. Raunar tók svo Van Gogh jarðeplin upp á sína arma, en hann leitaðist við að komast að rótum samfélagsins og þá kom fólkið sem ræktaði kart- öflurnar til sögunnar. Kartöflugarðurinn næstverð- mætasta eign dánarbúsins Björn Teitsson sagnfræðingur og Jóhann Thorarensen garðyrkjufræð- ingur fjölluðu í sínum fyrirlestri um kartöfluræktun í Búðargili á Akureyri, sem og almennt á Íslandi á 19. öld. Fram kom að ræktun kartaflna hófst á Bessastöðum árið 1758 en breiddist síðan hægt út um landið. Þannig liðu 50 ár þar til til- raunir hófust með ræktun kartaflna í Eyjafirði, en m.a. töfðu móðuharð- indi fyrir. Sá sem fyrstur reyndi fyrir sér með kartöflurækt var Hans William Lever, en hann fékk versl- unarlóð hjá Stefáni Þórarinssyni amtmanni, sem átti Stóra-Eyrar- land, bú norðan Búðarlækjar, og hóf Lever ræktun í brekku ofan gilsins. Til er teiknuð mynd eftir þýska ferðalanga sem sýnir kart- öflugarð Levers. Við andlát hans var garðurinn næstverðmætasta eign dánarbúsins, en Vilhelmína dóttir hans átti garðinn með honum. Sú er hvað frægust fyrir að hafa fyrst kvenna kosið í sveitarstjórn- arkosningum hér á landi, árið 1863 á Akureyri. Lever var duglegur að láta Norðlendinga fá útsæði og hvatti þá óspart til að rækta kartöflur, m.a. gaf hann úr bækling árið 1810 sem fylgdu leiðbeiningar um hvernig best væri að bera sig að. Bæklingurinn, sem er í litlu broti, 32 blaðsíður, er til í Davíðshúsi á Akureyri og á Landsbókasafni Meðal þess sem Lever ráðleggur mönnum er að neyta ekki jarðepl- anna fyrr en 1-2 mánuðum eftir að þau eru tekin upp, en getur þess jafnframt að þau séu heldur ekki óholl ný. Best telur hann fara á því að setja kartöflur niður í sendna jörð, á þurrum stað og sólríkum, í hléi fyrir norðanátt. Fram kom í erindi Björns og Jóhanns að uppskera á fyrstu árum kartöfluræktunar fór eftir tíðarfari; í harðæri áranna 1865-85 var hún fremur lítil, en eftir árið 1893 var árleg uppskera landsmanna ævin- lega yfir 11 þúsund tunnur. Um það leyti voru landsmenn farnir að rækta meira af kartöflum en rófum og þóttu nokkur tíðindi. Akureyringar tóku vel við sér og fetuðu í fótspor Levers. Ekki leið á löngu þar til íbúar voru farnir að stunda umfangs- mikla kartöflurækt í brekkunni ofan Innbæjarins, en þar var nánast sam- felldur kartöflugarður. Tæknivæðing hefur leyst handaflið af hólmi Bergvin Jóhannsson bóndi og Sig- ríður dóttir hans, verkefnisstjóri kartöfluárs, fjölluðu um stórræktun kartaflna og þróunina síðustu hálfa öld út frá sjónarhóli eyfirsks bónda. Nefndi Bergvin m.a. að ekki hefðu orðið miklar framfarir fyrstu árin hvað véla- og tækjakost varðaði, en ekki var óalgengt í eina tíð að hann hefði um 50 konur frá Akureyri í vinnu við kartöfluupptöku á haust- in. Eftir að tæknivæðing náði til kartöfluræktar hafa vélar tekið við og þær afkasta nú á við 15 til 20 manns í handupptöku. Nú þarf ekki nema 5-6 manns til að taka upp úr görðum á Áshóli, þar sem Bergvin býr og stundar umfangsmikla kart- öflurækt. Hin síðari ár hafa framfarir verið miklar hvað varðar tækni og afköst hafa aukist að sama skapi. Eins sagði Bergvin gæði kartaflna hafi aukist til mikilla muna. Stofnræktun kartaflna hefði tekið stakkaskiptum og búið að þurrka út alla sjúkdóma. „Við höfum náð að hreinsa þá alla og erum ánægðir með þann árang- ur,“ sagði Bergvin. Nánast öll rækt- un útsæðis fyrir landið allt fer fram í Eyjafirði og Hornafirði. Neytendasamtökin börðust fyrir betri kartöflum „Baráttan fyrir betri kartöflum“ var heitið á fyrirlestri Brynhildar Pétursdóttur hjá Neytendasam- tökunum, en hún rifjaði upp bar- áttu neytenda fyrir betri kartöflum í áranna rás. Grænmetisverslun landbúnaðarins, sem stofnuð var 1956, hafði einokun á innflutningi á kartöflum til landsins og hófst í kjölfarið mikil umræða um gæði, flokkun, geymslu, flutning og sjúkdóma í kartöflum. Neytendur vildu fá svör við því hvar kart- öflurnar skemmdust, því þær þóttu á þessum tíma langt í frá boðleg- ar. Í upphafi sjötta áratugarins vöktu Neytendasamtökin athygli á því að rangar upplýsingar voru gefnar um vigtun kartaflna, en mælst var til þess af þeirra hálfu, þegar Grænmetisverslunin hóf að pakka kartöflum, að pokarn- ir yrðu gegnsæir. Þá kom fram í máli Brynhildar að á miðjum upp- skerutíma hafi Grænmetisverslunin sett á markað kartöflur sem voru í 1. flokki, en þær verið óhreinar, rakar, linar, stungnar, hýðið flagn- að af og kartöflurnar greinilega sýktar. Var málið litið alvarleg- um augum og áfram hélt barátta Neytendasamtakanna fyrir betri kartöflum. Ýmislegt gekk þó á í áranna rás og af og til var kvartað yfir t.d. mati á kartöflum, flutningi þeirra og meðferð. Það var svo árið 1983 sem Eiður Guðnason lagði fram frumvarp á Alþingi um aukið frelsi í kart- öfluviðskiptum. Lagði hann líka til að innflutningur yrði takmarkaður þegar innlend framleiðsla kæmi á markað, en svipaðar kröfur höfðu Neytendasamtökin gert áður. Þá beindu menn líka sjónum að kart- öfluræktinni innanlands og benti Brynhildur í því sambandi á leiðara í Morgunblaðinu frá þessum tíma, með yfirskriftinni „Kartöflueinokun brennur á bændum sjálfum“. Í leið- aranum var spurt hvaða áhrif það hefði á íslenska kartöfluframleiðslu að stöðugt væru á boðstólum meira og minna skemmdar kartöflur. Vitanlega þau, svaraði höfundur, að fólk leitaði annarra matvæla í stað þeirra skemmdu; það veldi hrís- grjón eða brauð með mat sínum fremur en kartöflur. „Þetta breyt- ir neysluvenjum og það er ekki til góðs fyrir íslenska kartöflufram- leiðslu,“ segir í leiðaranum. Vorið 1984 voru fluttar inn óætar kartöflur frá Finnlandi og þá sagði Brynhildur að þolinmæði neytenda hefði verið á þrotum. Neytendasamtökin stóðu fyrir undir- skriftasöfnun og á einni helgi söfn- uðust um 20 þúsund undirskriftir. Einokun Grænmetisverslunarinnar var aflétt í kjölfarið. Afskiptum Neytendasamtakanna af kartöflum var þó ekki lokið. Árið 1986 mót- mæltu þau harðlega þegar Alþingi heimilaði landbúnaðarráðherra að leggja allt að 200% toll eða jöfn- unargjald á kartöflur. Tollurinn sem lagður var á innfluttar kart- öflur á þessum tíma var að jafnaði um 50%. Árið 1988 var tollurinn hækkaður í 190% og þá kærðu nokkrir innflytjendur ákvörðunina, en málið endaði fyrir Hæstarétti. Í lok erindis síns benti Brynhild- ur á að einna helst væri nú kvartað yfir grænum kartöflum í verslunum og hefðu samtökin sent bréf til allra verslana um það hvernig best væri að geyma kartöflur. Þá benti hún á að bændur væru ósáttir við smásala og teldu sig fá of lítið fyrir uppskeruna, en örugglega væri sá möguleiki fyrir hendi að selja meira beint til neytenda. MÞÞ Jarðepli í íslenskri menningu í 250 ár til umfjöllunar á Haustþingi AkureyrarAkademíunnar Barátta fyrir betri kartöflum hefur skilað sér í auknum gæðum Bergvin Jóhannsson og Kristín Þóra Kjartansdóttir, eflaust að ræða um góðar uppskeruhorfur kartaflna á þessu hausti. Gestir hlýða á fróðleg erindi um ýmsar hliðar kartöflunnar. Ýmislegt var gert á kartöfluþinginu annað en að hlusta á erindi. Þessi unga stúlka sýndi stóra kartöfluhnullunga og gestum gafst færi á að skoða fjölmörg afbrigði af kartöflum en mesta athygli vöktu svartar kartöflur frá pistlahöfundi Bændablaðsins, Helga Þórssyni í Kristnesi í Eyjafirði. Fáir höfðu bragðað jarðepli af því tagi. Vinnu við að setja saman heild- arsögu íslensks landbúnaðar miðar vel, en eins og greint var frá í Bændablaðinu á sínum tíma stendur til að sagan komi út í fjórum bindum á næsta ári, eða í síðasta lagi 2010. Árni Daníel Júlíusson er ritstjóri og annar aðalhöfundur þessa verks og segir hann að verkinu miði vel, en að nú sé leitað að útgef- anda að ritinu. „Ég er búinn að ljúka við að skrifa fyrsta bindið en það nær fram til 1800. Nú er ég að vinna í öðru bindinu og vonast til að klára það í vetur. Þriðja og fjórða bindið eru verk Jónasar heitins Jónssonar sem hann var að mestu leyti búinn með áður en hann féll frá í fyrra. Hans hluti eru búgreinarnar, þróun þeirra og tæknivæðing, og það eina sem hann átti eftir var að skrifa kaflann um hlunnindin, en hann var raunar búinn að skrifa heilmik- ið um það efni á öðrum vettvangi. Helgi Skúli Kjartansson hefur nú tekið að sér að ljúka verki Jónasar í samráði við fjölskyldu hans. Minn hluti er fyrst og fremst félagssagan og hún nær raun- ar töluvert aftur fyrir landnám Íslands því ég lýsi því samfélagi sem bændur landnámsaldar komu úr og hvernig það hafði þróast. Síðan lýsi ég hvernig landbún- aður þróaðist hér á landi og ber hann saman við það sem gerðist í nágrannalöndum okkar. Nú er ég að lesa mér til um fé- lagssögu 19. og 20. aldar en sagan á að ná fram til útgáfudags, ef svo má segja. Þessa stundina ligg ég í æviminningum og ævisögum bænda sem út hafa komið og er meðal annars að velta fyrir mér þeim tímamótum sem urðu í sveit- um landsins þegar konur misstu völdin yfir framleiðslunni. Þær höfðu frá upphafi vega séð um úrvinnslu afurða og framleiðslu matvæla. En á árunum 1920-50 færist þessi framleiðsla út af býl- unum í verksmiðjur í þorpum og bæjum. Rafvæðing sveitanna gerði endanlega útslagið þegar mjalta- vélarnar tóku af þeim hefðbundið verkefni sitt sem voru mjaltirnar. En vissulega hafði þessi þróun í för með sér að það dró úr stritinu, verkin urðu auðveldari,“ sagði Árni Daníel. Það má því segja að nú sjái fyrir endann á því verki sem heildarsaga íslensks landbúnaðar er. Það er vonum seinna, því það hlýtur að teljast sérkennilegt að ekki skuli vera löngu búið að skrifa sögu atvinnugreinar sem hefur haldið lífinu í þjóðinni um aldaraðir. –ÞH Landbúnaðarsagan langt komin Þrjú bindi af fjórum langt komin og það fjórða verður skrifað í vetur. Fyrirhugað að ritið komi út á næsta ári, ef leitin að útgefanda ber árangur Árni Daníel Júlíusson sagnfræð- ingur og ritstjóri.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.