Bændablaðið - 23.09.2008, Qupperneq 13

Bændablaðið - 23.09.2008, Qupperneq 13
13 Bændablaðið | þriðjudagur 23. september 2008 Haustið er tími afraksturs og uppskeru. Haustið er tími meyj- armerkisins. Haustið er tvímán- uður. Náttúran er í óðaönn að taka til. Hún dregur blaðgræn- una úr blöðunum og í ljós kemur að sum þeirra eru í eðli sínu skærgul og önnur rauð. Hún ýtir undir fræin að ljúka nú verkinu og þeytir síðustu krónublöðum blómanna út í buskann, rekur á eftir berjum og könglum og dreg- ur safann úr stönglum og stofn- um. Allt skal hníga aftur í skaut jarðarinnar. Þar skal það bíða endurkomunnar, ljóssins, vorsins og birtunnar. Svo segir í gömlu nornakvæði ensku: „Drottinn óf heiminn með því að skjóta skyttu sinni gegnum vef náttúrunnar … þar vorum við sköpuð – ofin í iðrum jarðar.“ Þannig fylgir Hildur Hákonar- dóttir veflistarkona og ræktandi nýrri bók sinni úr garði, fallegri bók sem ber heitið Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar. Þar segir hún sögu kartöflunnar og ræktunar hennar hér á landi, allt frá því hinn sænskþýski barón, Fredrik Wilhelm Hastfer, uppskar þennan ágæta ávöxt í fyrsta sinn hér á landi fyrir réttum 250 árum. Hildur rekur síðan ræktunarsögu kartöflunnar og segir frá fólkinu víða um land sem spreytti sig á að rækta hana. Nær sú saga allt til nútímans þar sem reistir eru því- líkir pottar austur í Þykkvabæ að hægt væri að sjóða kartöflur ofan í alla landsmenn, auk þess sem þar er einnig hægt að steikja franskar og búa til flögur. Hún veltir fyrir sér þeim afbrigðum sem ræktuð hafa verið hér á landi og klykkir út með uppskriftum og leiðbeiningum um matreiðslu hefðbundinna kartöflu- rétta frá ýmsum löndum. Nafnið Blálandsdrottningin á sér þá skýringu, að því er segir á bók- arkápu, að hún er eitt af mörgum afbrigðum sem verið hafa í öndvegi á borðum landsmanna alla tuttug- ustu öldina en er talið hafa bor- ist hingað með frönskum skútum. „Nafn bókarinnar vísar þó einnig til hinnar hugrökku og hjartastóru söguhetju sem varð fyrst kvenna á Íslandi til að hafa tekjur af kart- öflurækt,“ segir þar einnig. Bókin Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar er 272 bls. að stærð, prýdd fjölda skemmtilegra mynda og fallega umbrotin. Salka gefur út. –ÞH Bókarfregn Blálandsdrottning Hildar Hákonardóttur komin út Brúarskáli í Hrútafirði heyrir sögunni til Hungraðir vegfarendur um Þjóðveg 1, hringveg milli Reykjavíkur og Akureyrar, fá ekki lengur keypt kaffi og kleinur í söluskálanum Brú í Hrútafirði. Búið er að jafna skálann við jörðu. Greiðasala hefur verið í Brú í 54 ár og þar hefur margur ferðalangurinn áð um tíðina. Áður en hafist var handa við að rífa skálann voru innanstokksmunir teknir niður, sem og eldsneytistankar og fleira. Um árabil var veitingaskálinn að Brú stærsti vinnustaðurinn í Bæjarhreppi, en Kaupfélag Hrútfirðinga rak hann lengi. Síðastliðin ár hefur hann verið í eigu Olíufélagsins sem varð svo N1. Í fyrra eignaðist það félag svo að auki Staðarskála, sem er skammt undan. Félagið er nú að reisa nýjan söluskála og þjónustumiðstöð við vegamót nýja vegarins um Hrútafjarðarbotn og tekur hann við hlutverki skálanna beggja, Brúar og Staðarskála. Umferð verður væntanlega hleypt á nýja veginn í þessari viku, ef vatnsveður hamlar ekki vegtengingum frekar en orðið er. Þá verða nokkur tímamót í samgöngusögunni þegar síðasta einbreiða brúin á leiðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur verður aflögð. Höfundurinn, Hildur Hákonardóttir.Kápusíða Blálandsdrottningarinnar. Hér með er auglýst þriðja sinni eftir umsóknum um styrki til frumbýlinga í sauðfjárrækt skv. ákvæðum núgildandi sauðfjársamnings. Reglur um úthlutun og umsóknareyðublöð er að finna á www.bondi.is en skila ber umsóknum fyrir 1. nóvember næstkomandi. Reglur eru óbreyttar frá síðustu úthlutun en verða endurskoðaðar fyrir úthlutun 2009. Sækja má um vegna bústofnskaupa frá og með 1. janúar 2007 til 1. nóvember 2008.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.