Bændablaðið - 23.09.2008, Page 22

Bændablaðið - 23.09.2008, Page 22
19 Bændablaðið | þriðjudagur 23. september 2008 Rötun og GPS Haldið í samstarfi við Björgunarskóla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Kennari: Sigurður Ólafur Sigurðsson, yfirleiðbeinandi Björgunarskólans í ferðamennsku og rötun. Tími: 3. okt. kl. 9:00-17:00 á Reykjum, Ölfusi Verð: kr. 15.900 Pottaplöntuskreytingar Kennari: Berglind Ragna Erlingsdóttir blómaskreytir og deildarstjóri Blómavals á Selfossi. Tími: 7. okt. kl. 9:00-16:00 á Reykjum í Ölfusi Verð: kr. 18.900 Forntraktorar – meira en járn og stál! Haldið í samstarfi við Landbúnaðarsafn Íslands. Kennarar: Bjarni Guðmundsson prófessor við LbhÍ og verkefnisstjóri. Landbúnaðarsafns Íslands, Jóhannes Ellertsson vélvirki og kennari við LbhÍ, Haukur Júlíusson frkvstj. o.fl. Tími: 11. okt. kl. 10:00-17:00 á Hvanneyri Verð: kr. 9.900 Lífrænum aukaafurðum breytt í verðmæti Kennari: Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur (MSc) og framkvæmdastjóri UMÍS ehf. Environice í Borgarnesi. Tími: 14. okt. kl. 10:30-15:00 á Hvanneyri Verð: kr. 8.500 Tamning fjárhunda I Boðið verður upp á þrjú námskeið. Kennari: Gunnar Einarsson bóndi á Daðastöðum. Tími: I: 15. okt. kl. 10:00-18:00 og 16. okt. kl. 09:00-17:00 á Hesti í Borgarf. II: 17. okt. kl. 10:00-18:00 og 18. okt. kl. 09:00-17:00 í Árnessýslu III: 20. okt. kl. 10:00-18:00 og 21. okt. kl 09:00-17:00 í Eyjafirði. Verð: kr. 28.900 fyrir hvern þátttakanda Tamning fjárhunda II Boðið verður upp á tvö námskeið Kennari: Gunnar Einarsson bóndi á Daðastöðum. Tími: I: 19. okt. kl. 9:00-17:00 í Árnessýslu II: 22. okt. kl 9:00-17:00 í Eyjafirði Verð: kr. 18.500 fyrir hvern þátttakanda Kjötskurður og nýting afurða – Lambaskrokkar Kennari: Örlygur Ásgeirsson fagstjóri kjötiðnar við MK Tími: 18. okt. kl. 10:00-16:00 á Hvanneyri Verð: kr. 15.500 Súrmatur - Undirbúningur fyrir þorrann! Kennari: Örlygur Ásgeirsson fagstjóri kjötiðnar við MK Tími: 19. okt. kl. 10:00-16:00 á Hvanneyri Verð: kr. 10.500 Fóðrun og uppeldi kvígna Kennarar: Grétar Hrafn Harðarson lektor við LbhÍ og Jóhannes Sveinbjörnsson dósent LbhÍ Tími: 22.okt. kl. 10:00-16:00 á Hvanneyri. Verð: kr. 15.500 Grunnnámskeið í blómaskreytingum Kennari: Guðrún Brynja Bárðardóttir brautarstjóri blómaskreytingabrautar LbhÍ Tími: 25. - 26. okt. kl. 09:00-16:00 á Reykjum, Ölfusi Verð: kr. 25.900 Hagkvæm fóðrun nautgripa til kjötframleiðslu Kennari: Þóroddur Sveinsson, Landbúnaðarháskóla Íslands Tími: 28.okt. kl.10:30-15:00 á Möðruvöllum Verð: kr. 13.500 www.lbhi.is Allar nánari upplýsingar má finna á www.lbhi.is/namskeid Skráning fer fram á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 Námskeið fyrir þig! Um sextíu manns mættu á op- inn dag Strandagaldurs og Nátt- úrustofu Vestfjarða á Stráka- tanga í Hveravík við Steingríms- fjörð á Ströndum á dögunum. Þar fór fram kynning á 17. aldar hvalveiðistöðinni sem rannsökuð hefur verið þar frá árinu 2004. Í ljós hafa komið mikil mann- virki sem tengjast hvalbræðslu erlendra manna. Engar heim- ildir er að finna um bræðsluna í skráðri sögu 17. aldar á Íslandi og ljóst má vera að starfsemi hennar hefur verið haldið leyndri gagn- vart æðstu yfirvöldum á sínum tíma og síðan fallið í gleymsk- unnar dá. Hefur starfsemin væntanlega ekki farið framhjá neinum á sínum tíma, þar sem henni fylgdi umferð skipa og svartur reykur frá bræðsl- unni. Hvallýsi lýsti upp borgir Evrópu langt fram á 20. öld. Ragnar Edvardsson fornleifafræðingur telur margar þjóðir hafa komið að hvalveiðistöðinni, en rústirnar eru frá 17. öld sem fyrr segir. Meðal þess sem hefur fundist á staðnum er stór bræðsluofn. Að honum liggja rampar sem notaðir voru til að draga hvalspikið að og frá ofninum. Við hlið hans er bygg- ing þar sem verkamenn héldu til, ásamt smiðju. Þar er meðal ann- ars að finna eldstæði hlaðið úr múrsteinum. Einnig hefur fund- ist aðstaða beykis, þar sem tunnur voru smíðaðar og þar er að finna múrsteinsgólf og hringlaga hleðslu, sem hefur verið notuð til að stilla tunnustöfunum upp meðan tunn- urnar voru settar saman. Af lausa- munum sem fundist hafa á staðnum má nefna gríðarlegt magn brota úr krítarpípum, sem hafa verið vel nýttar og vel tuggnar. Þessar minjar hafa bæði íslenskt og evrópskt minjagildi og telur Ragnar að þetta sé einhver merk- asti fornleifafundur á landinu, um sé að ræða eitthvað algjörlega ein- stakt. Engar minjar um hvalveiðar erlendra manna hafi áður fundist hér á landi. Staðurinn hafi ekki síst alþjóðlegt minjagildi sem hluti af iðnaðarsögu Evrópu. Upphafið að uppgreftrinum má rekja til áhuga Magnúsar Rafnssonar sagnfræðings á Jóni lærða og áhuga Ragnars sjálfs á sjávarminjum. Ragnar segir Magnús hafa leitt sig á staðinn og fljótlega hafi áhugi hans vaknað, þó hann hafi ekki átt von á neinu þessu líku. „Maður er orðinn svo vanur að grafa upp íslenskar minjar og svo loksins þegar maður fór að grafa upp eitthvað annað, þá vissi maður ekki hverju maður mátti eiga von á.“ Saman stofnuðu þeir Ragnar og Magnús verkefni um þetta og hafa unnið að því síðan fyrir Strandagaldur og Náttúrustofu Vestfjarða. Rúsínan í pylsuendanum á þess- um opna degi var þegar Ragnar greindi frá því að mannabein hefðu nýlega fundist á staðnum. Talið er líklegt að þar sé kominn grafreitur. Grafreitir hafa fundist við hval- veiðistöðvar í öðrum löndum, enda hefur vinnan við bræðsluna verið hættuleg. Þó er alveg eftir að rann- saka beinin nánar. Ragnar fór að skoða staðinn sem beinin fundust á eftir að hann dreymdi ítrekað mannabein. Við könnunarskurð komu beinin svo í ljós um 200 metra frá rústum bræðslunnar og verða þau eitt af því sem rannsakað verður við áframhaldandi uppgröft næsta sumar. Til stendur að halda áfram rann- sóknum á hvalveiðum erlendra manna við Ísland og vinnslustöðv- unum. Því verða skoðaðar aðrar stöðvar, og verður grafið víðar norðar á Ströndum. Þá er markmið- ið að leita skýringa á hvers vegna vinnslan fór eins leynilega fram og raun bar vitni, en hennar er ekki getið í heimildum. kse Leynileg „stóriðja“ á 17. öld Lengst til vinstri er Ragnar Edvardsson, minjavörður Vestfjarða. Næst til vinstri má sjá hluta af aðstöðu beykisins, hringurinn var notaður til að stilla upp tunnustöf- unum þegar tunnurnar voru settar saman. Á litlu myndinni til hægri sjást brot úr krítarpípum en þau fundust í tugatali á svæðinu. Rústir bræðsluofnsins þar sem hvallýsið var brætt. Gestir skoða uppgröftinn á Strákatanga á opnum degi, Magnús Rafnsson segir viðstöddum frá uppgreftrinum.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.