Bændablaðið - 23.09.2008, Page 24

Bændablaðið - 23.09.2008, Page 24
21 Bændablaðið | þriðjudagur 23. september 2008 Skógræktarfélag Neskaupstaðar fagnaði 60 ára afmæli nýlega. Afmælishátíðin fór fram í Hjalla- skógi og þótti hún takast vel, enda viðraði vel til útisamkomuhalds. Fjöldi manns lagði leið sína í skóginn af þessu tilefni. Undirritaður var samningur milli Skógræktarfélagsins og Nesskóla, sem felur í sér að skólanum er úthlutað lundi í skóginum sem skól- inn má nota og útfæra eftir eigin höfði til hvers konar útikennslu. Er það von stjórnar félagsins að þetta efli áhuga og vitund nemenda um umhverfi sitt og náttúru og verði skemmtileg og góð viðbót við öfl- ugt skólastarf í Nesskóla. Tólf stofnfélagar voru heiðr- aðir við þetta tækifæri, en þar af eru fjórir ennþá í félaginu. Stefán Þorleifsson mælti fyrir hönd þeirra stofnfélaga sem voru heiðraðir og kom fram í máli hans, að líklega hafi bjartsýnustu menn ekki séð fyrir þann mikla árangur sem starf félagsins hefur borið sl. sextíu ár. Starfið, sem hófst með gróð- ursetningu nokkurra plantna af birki og víði um miðja síðustu öld, er nú hvað mest áberandi í Hjallaskógi, sem er mikið not- aður útivistarskógur við bæjardyr Neskaupstaðar. Félaginu bárust margar góðar gjafir og kveðjur í tilefni dagsins og margir lögðust á eitt um að gera þessa veislu eins skemmtilega og raun bar vitni. Skógræktarfélag Neskaupstaðar 60 ára Nesskóli fær lund til afnota Dagana 1. og 2. september s.l. var haldin samnorrænn fundur á Nesjavöllum. Markmið fundarins var að ræða stöðu NorFor – fóður- matskerfisins í aðildarlöndunum, Svíþjóð, Danmörk, Noregi og Íslandi og að marka vinnu kom- andi vetrar. Fundinn sátu sextán einstaklingar frá öllum aðild- arlöndunum, fimm frá Svíþjóð, fjórir frá Danmörk, fimm frá Noregi og tveir frá Íslandi. Staðan í dag Svíþjóð, Danmörk og Noregur hafa útbúið hvert sitt verkfærið til þess að vinna fóðuráætlanir fyrir mjólk- urkýr byggðar á NorFor – kerfinu, en Ísland kemur til með að nota Norsku útgáfuna Tine Optifôr. Árið 2007 og það sem af er 2008 hafa ráðunautar þessara landa verið að prufa sig áfram í gerð fóðuráætlana byggðum á NorFor. Í Noregi hafa bændur nú þegar einnig aðgang að kerfinu til þess að útbúa fóðuráætl- anir sjálfir. Samkvæmt upplýsingum frá tölvudeild NorFor hefur notkun kerfisins aukist verulega, en hins- vegar er erfitt að sjá hversu margar fóðuráætlanir komast í notkun út í fjósi. En meginmarkmiðið í upp- hafi er að gera ráðunautana örugga í notkun kerfisins, það hefur gengið vel í flestum löndunum en sú vinna er mislangt komin. Hér á landi hafa þegar verið gerðar nokkrar fóðuráætlanir byggðar á nýja fóð- urmatskerfinu og hafa þær reynst vel og hlutaðeigandi bændur verið ánægðir með útkomuna. Á komandi vetri verða unnar fleiri áætlanir á Ísland og hafa ráðunautar búnaðar- sambandanna valið um það bil 50 bæi vítt og breitt um landið til þess að taka þátt í þessu verkefni. Framhaldið Fram kom á fundinum að fulltrúar allra landanna voru sammála um mikilvægi þess að halda námskeið og fundi til þess að styðja við bakið á þeim sem koma til með að vinna með nýja fóðurmatskerfið. Hérna er um nýtt verkfæri að ræða sem byggir á nýrri þekkingu, nýjum aðferðum við fóðurmat og ef það á að nýtast sem best úti í fjósum land- anna er mikilvægt að koma þess- ari nýju þekkingu til ráðunauta og bænda á skilvirkan hátt. Í upphafi er þessari þekkingu og færni komið til ráðunauta landanna, því þeir eru mikilvægur tengiliður við bænd- urna. Þá er einnig og ekki síður mikilvægt að kynna fyrir bændum mögulegan ávinning þeirra af því að nota fóðuráætlanir byggðar á NorFor því notkun kerfisins bygg- ir á því að bændur tileinki sér þetta nýja verkfæri. Einn veigamesti kostur nýja fóðurmatskerfisins er, að með því er unnt að velja þá fóð- ursamsetningu sem er hagkvæmust, – kostar minnst en uppfyllir um leið þarfir kúnna á hverjum tíma. Nú í vetur verður í öllum aðild- arlöndunum boðið upp á námskeið og þjálfun fyrir ráðunauta til þess að styrkja færni þeirra í notkun kerfisins, eins verða haldnir fundir fyrir bændur þar sem þeim er kynnt uppbygging kerfisins og mögulegir ávinningar við notkun þess. Núna þegar fóðurmatskerfið fyrir mjólkurkýr er komið af stað í öllum löndunum er komið að því að kynna nýjan hluta þess, sem er ,,NorFor ungdýr“. Þessum hluta er ætlað að vinna fóðuráætlanir fyrir kálfa. Þarna er hægt að velja hvort um sé að ræða kvígukálf alinn upp sem verðandi mjólkurkýr eða naut- kálf sem ala á til kjötframleiðslu. Þessi hluti er vel á veg kominn og verður tekinn í notkun á komandi vetri, fyrst í Noregi. Þróunarhópur NorFor mun halda sínu mikilvæga starfi áfram þar sem nýjar rannsóknir eru framkvæmdar og sú þekking sem fæst af því hag- nýtt til að bæta kerfið. Einnig vinn- ur þessi hópur hörðum höndum við lagfæringar á þeim hnökrum sem notendur benda á eftir því sem reynsla fæst í notkun kerfisins. Heimasíða NorFor, http://www. norfor.info er í smíðum en þar getur fólk nálgast upplýsingar um NorFor og tengst inn á heimasíður hvers lands fyrir sig og fundið greinar um kerfið á sínu móðurmáli. Berglind Ósk Óðinsdóttir NorFor fundur á Nesja völl um 1. og 2. september 2008 Maria Åkerland Svíþjóð, Harald Volden Noregi og Nicolai Nielsen Danmörku. Það fór ágætlega um fundargesti í aðstöðunni á Nesjavöllum. Eftir fundinn fór hluti hópsins á Þingvelli og að Geysi áður en flogið var heim. Veðrið lék við fundargesti báða dagana og því voru kaffipásurnar teknar úti við í sól og blíðu. Á morgun, 24. september, verður alþjóðlegi mjólkurdagurinn hald- inn hátíðlegur í níunda sinn. Í tilefni dagsins býður Mjólkursamsalan öllum grunnskólabörnum lands- ins upp á mjólk í skólunum og má reikna með að þar verði drukknir 12.000 lítrar af mjólk. Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur víða um heim en það er Matvælastofnun Sameinuðu þjóð- anna sem hvetur til að haldið sé upp á daginn. Á Íslandi er haldið upp á hann undir kjörorðunum „Holl mjólk og heilbrigðir krakk- ar“. Með deginum vill íslenskur mjólkuriðnaður vekja athygli barna, foreldra og starfsfólks skólanna á mikilvægi mjólkur í fæði barnanna. Mjólkurneysla barna og ungl- inga hefur dregist verulega saman víða um heim á síðustu árum, þar á meðal hér á landi. Hart er sótt að mjólkinni og mikið drukkið af alls kyns söfum og gosdrykkjum. Mjólk er mjög próteinrík og auk þess mikilvæg uppspretta 11 lífs- nauðsynlegra vítamína og steinefna í fæðunni. Sérstaða mjólkur felst þó fyrst og fremst í því hve góður kalkgjafi hún er, en kalk er mjög mikilvægt fyrir byggingu beina. Vart er hægt að hugsa sér betri og næringarríkari drykk en mjólk til að gefa börnum sínum og ungling- um og full ástæða til að hvetja þau til að auka mjólkurneyslu sína. Samtímis því að skólamjólk- urdagurinn er haldinn hátíðlegur er árlegri teiknisamkeppni hleypt af stokkunum. Öllum nemendum 4. bekkjar er boðið að taka þátt í sam- keppninni. Myndefnið er algjörlega frjálst en æskilegt er að það teng- ist hollustu mjólkurinnar fyrir ungt fólk. Fréttatilkynning frá MS 50 þúsund grunnskólabörnum boðið upp á mjólk

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.