Bændablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 23
23Bændablaðið | fimmtudagur 20. apríl 2011BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 20. APRÍL 2011 Nokkur ráð á sauðburði Sauðburðurinn ætti ekki að koma sauðfjáreigendum á óvart. Það er mikilvægt að vera tímanlega með undirbúning. Í Bændablaðinu 15. apríl 201, bls. 22 og 23 voru ágætar greinar eftir dýralæknana Sigurð Sigurðarson og Hákon Hansson. Þessar greinar eru aðgengilegar á heimasíðu Bændablaðsins. Ég mæli eindregið með því að þeir sem koma að sauðburði lesi þessar greinar. Sigurður tíundar þar það sem þarf að vera til fyrir sauðburð og ég sé ekki ástæðu til þess að endurtaka það. Ég vil fyrst og fremst hvetja til þess að menn búi vel í haginn tímanlega fyrir sauðburð. Útbúið góða vinnuaðstöðu með góðu, stóru vinnuborði þar sem aðeins eru þeir hlutir sem þarf við sauðburðinn. Góður vaskur með köldu og heitu vatni og hitaketill og pottur til þess að geta soðið vatn og fæð- ingasnúrur. Tiltæk skal vera fata undir þvottavatn og sótthreinsandi handsápa til að þvo hendur og ytri fæðingarveg áður en vitjað er um. Eigið svo nóg af sleipiefni til að nota við burðarhjálp og munið að sótthreinsa naflastrenginn með joði. Mikilvægt að lömbin fái brodd Lömbin eru viðkvæm fyrstu sólar- hringana og það er mikilvægt að þau fái brodd á fyrstu þrem klukkutím- unum eftir fæðingu, því hann gefur næringu sem heldur uppi líkamshit- anum og mótefni gegn sjúkdómum, m.a. pestarsjúkdómunum lambablóð- sótt og flosnýrnaveiki, sem flestar ær eru bólusettar fyrir. Gott er að tryggja að spenarnir séu hreinir, það minnkar líkur á kólísýkingum, einnig ætti að mjólka eina bunu úr hvorum spena til að tryggja að þeir séu vel opnir og mjólkin óskemmd. Það er mikilvægt að hugað sé að júgrum ánna og þær meðhöndlaðar ef þær hafa fengið júgurbólgu. Fyrir kemur að spenaop særast þannig að spenar lokist. Til þess að opna slíka spena þarf að hafa samband við dýralækni og láta skera í spenann.Það getur hins vegar valdið júgurbólgu, yfirleitt er best að láta ána vera ein- spena. Það dugar ekki að reyna að stinga einhverju upp í spenann, hann lokast alltaf aftur ef það er gert og það endar bara með júgurbólgu. Það er einnig mikilvægt að fylgjast daglega með því hvort lömbin fá nóg að drekka, skoða hvort maginn er fylltur og gefa þeim lömbum sem ekki fá nóg. Handa lömbum sem af ein- hverjum ástæðum komast ekki á spena strax þarf að vera til kindabroddur. Umhverfið er mikilvægt Umhverfi lambanna er mikilvægt. Legusvæði þeirra þarf að vera með þéttu gólfi, vera þurrt og trekklaust. Þétt, þurr skán er góðra gjalda verð, en það ætti að setja eitthvað yfir rimla- eða ristagólf, ekki síst ef um járnristar er að ræða. Plötur af ýmsum gerðum eru góðar, hvort sem það eru gúmmímottur, trémottur eða einangr- unarplast. Hálmbæli er mjög gott ef til er góður hálmur. Blanda af spónum og þurrkandi efni, t.d. Staldren, er góð til að henda á gólf milli burða. Burðarhjálp Það ætti að leyfa náttúrunni sjálfri að sjá um burðinn og ekki að grípa inn í ef allt virðist hafa eðlilegan gang. Ef eitthvað er að Vísbendingar um að burðurinn gangi ekki eðlilega: 1. Þrýstingshríðir í meira en 2-3 klst. án þess að belgurinn komi. 2. Það líður meira en hálf klukkustund frá því að belgurinn kemur án að sjáist í fóstrið. 3. Ekki sjást tvær klaufir koma fyrst. 4. Það líður meira en ein klst. í næsta lamb. Hyldirnar losna eðlilega eftir 1–3 klst. Taki það lengri tíma getur það verið vísbending um fleiri lömb. Grundvallaratriði við burðarhjálp Þegar ljóst er að burðurinn mun ekki ganga eðlilega og nauðsynlegt er að grípa inn í og finna út hvað er að, er mikilvægt að fylgja eftirfarandi reglum: Hreinlæti fyrir öllu 1. Áður en hafist er handa er mikilvægt að þvo sér um hendurnar og þvo og ef til vill klippa í kringum fæð- ingarveginn á ánni. Rétt er að velja sápu sem er með lágt pH-gildi. 2. Hanskar eru nauðsynlegir til að hindra að ærin fái smit af höndunum og til að vernda manninn fyrir ofnæmi og mögulegu smiti frá ánni. 3. Þurfi á fæðingarsnúrum að halda er mikilvægt að þær séu hreinar, best er að þær þoli suðu, en annars er gott að þvo þær og geyma í joðlausn. 4. Allan tímann er mikilvægt að gæta þess að ærin kveljist ekki að óþörfu og reyna að vernda fæðingarveginn svo hann særist ekki af klaufum og hornahlaupum lambsins. 5. Mikilvægt er að eiga nóg af sleipiefni, burðarslími og spara það ekki. Burðarslímið er ekki sótthreinsandi svo það þarf að gæta þess að það mengist ekki. 6. Það er mikilvægt að ærin standi þegar verið er að snúa eða rétta fóstrið. Það minnkar hríðirnar og gerir hjálpina auðveldari fyrir bæði móður og mann. Ástæður burðarerfiðleika 1. Þegar lambið ber rangt að koma höfuð eða fætur ekki rétt í burðarveginn þegar burðurinn er kominn af stað. 2. Við vitlausa legu liggur lambið oftast með bakið að fæðingarveginum. Þá er nauð- synlegt að laga leguna. 3. Lambið á að liggja með hrygginn upp og snúi hann út á hlið eða niður þarf að rétta lambið upp. 4. Of stórt lamb er annað hvort vegna þess að lambið er alltof stórt eða ærin óvenju lítil. Hyrndir einlembingshrútar geta verið mjög stórhyrndir, sérstaklega í ám sem bera seint á sauðburði og hafa haft aðgengi að kraftmiklu fóðri. 5. Mikilvægt er að gera sér fljótt grein fyrir því hvort hægt er að draga lambið út eða hvort þarf að fá dýralækni til að gera keisaraskurð. Þegar stórt lamb er dregið út þarf að gera það varlega og draga til hliðar, þ.e. toga til skiptis í sitthvorn fótinn, eins og verið sé að smeygja lambinu út. Við aft- urfótafæðingu er þetta mikil- vægt til þess að koma rifunum heilum upp í mjaðmagrindina. Gott að snúa lambinu á hlið þegar mjaðmirnar fara gegn um mjaðmagrind móðurinnar, þannig rennur það léttar út. 6. Lítil opnun á leghálsi. Ef leghálsinn víkkar ekki út og breytist ekki þótt beðið sé þarf að kalla til dýralækni. 7. Skeiðarsig kemur nokkru fyrir burð. Þegar kemur að burði getur þurft að fjarlægja saum eða stoð svo burðurinn gangi eðlilega. Bólga í skeið getur valdið burðarerfiðleikum. 8. Við legsnurðu stöðvast burðurinn vegna þess að undist hefur upp á legið. Snúningsfellingarnar finn- ast í skeiðarveggnum. Nauðsynlegt er að leita til dýralæknis. 9. Líkamshlutar af tveimur lömbum geta komist í burðar- veginn samtímis. Mikilvægt er að finna hvaða líkamshlutar tilheyra hvoru lambi, ýta öðru lambinu inn og ná hinu svo út. Þungaðar konur og konur með ungabörn á brjósti ættu að forðast að veita ám burðarhjálp, einkum ef vart hefur orðið fósturláts í hjörðinni, en í umhverfi kinda geta leynst bog- frymlar (Toxoplasma gondii) eða lis- teríusýklar. /Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir sauðfjársjúkdóma hjá Mast Eðlilegur burður. Einfaldar leiðbeiningar um algengustu vandamál við burð Tekið saman af Hákoni Hanssyni og Þorsteini Ólafssyni 24 Öflug fjárbú í V-Húnavatnssýslu heimsótt » Sauðfjárræktin Á framfæti eru hné og lagklaufir gagnstæð. Á afturfæti snúa hækill og lagklaufir í sömu átt. Svona á að draga lamb út. Þegar annar fóturinn kemur ekki þarf í þessu tilfelli að fara inn og koma fingri í hnésbótina og rétta úr fætinum. Jafnvel þó að fóturinn liggi beinn aftur með lambinu er oftast best að byrja á að rétta fótinn fram. Hvorugur fóturinn kemur með. Það verður að ná að minnsta kosti öðrum fætinum, helst báðum, annars næst lambið ekki út. Höfuðið stangar í mjaðmagrindina, hér verður að láta ána standa og ýta höfðinu inn og koma spotta aftur fyrir eyrun á lambinu. Höfuðið snýr aftur eða niður. Vera viss um að fæturnir tilheyri sama lambinu og að þeir séu fram- fætur, sjá Mynd 2. Fara inn ofan við lambið og finna höfuðið. Nota mikið burðarslím og reyna að rétta höfuðið. Aldrei toga í neðrikjálkan á lambinu. Afturfætur sjá Mynd 3. Lambið oft stórt, dregið varlega til skiptis í sitthvorn fótinn. Reyna að skaða hvorki lamb né á. Hætta á brotnum rif- beinum. Nota mikið slím. Ekki reyna að snúa lambinu. Dýralæknisaðstoð og keisarskurður oft besta úrræðið. Hér verður að ná hinum fætinum, svona kemst lambið ekki út. Tvö lömb, mikilvægt að vita hvað tilheyrir hvoru lambi. Hafa hærra undir ánni að aftan. Mælt er með því að taka lambið sem kemur aftur á bak fyrst sé það ekki því stærra. 25 Urriðaá » Þóroddsstaðir » Sauðadalsá » 26 Blaðauki 20. apríl 2011

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.