Bændablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 37
37Bændablaðið | fimmtudagur 20. apríl 2011
Nú þegar vorið nálgast eftir svellalagðan vetur
hér Norðanlands hafa fyrirtæki okkar bænda og
hagsmunafélög flest lokið aðalfundum og birt
sínar ársskýrslur sem varða rekstur þeirra og
framtíðarmarkmið.
Það er ánægjuefni að fyrirtæki á borð við MS, sem
er stærsti viðskiptaaðili okkar bænda í mjólkurvinnslu,
skuli sýna verulegan viðsnúning í rekstri sínum á liðnu
ári. Skilar félagið hagnaði í stað taprekstrar sem verið
hefur viðvarandi undanfarin ár. Það er því full þörf
á að þakka stjórn og stjórnendum þessa fyrirtækis
góðan árangur sem auðvitað hefði ekki náðst nema
með mikilli hagræðingarvinnu og aðhaldi í rekstri.
Þessi árangur við að ná settum markmiðum í að lækka
kostnað við framleiðsluna næst þó aldrei fram nema
með einhverjum fórnum í störfum og, þegar lengra
er litið aftur, verulegri fækkun afurðastöðva vítt um
land sem raskað hefur atvinnulífi á þeim stöðum þar
sem þær hafa verið aflagðar. Þetta hefur þó allt miðað
að því að skila sem hæstu verði til okkar bænda og
lágmarka verð til neytenda.
Eitt atriði vil ég nefna sem skiptir miklu máli við
að sameina mjólkurvinnsluna, að í dag njóta allir
bændur, hvar á landinu sem þeir búa, sömu kjara
hvað varðar flutningskostnað á mjólk í afurðastöð
hjá MS. Flutningskostnaður á mjólk í afurðastöð var
orðinn mjög íþyngjandi kostnaður hjá hinum minni
afurðastöðvum með mjög dreifða framleiðslu.
En mjólkurvinnslan er viðkvæm og allt þetta
byggist á því að sala á mjólkurvörum haldist og ytra
umhverfi hennar breytist ekki til muna. Í því sambandi
er mjög brýnt að tryggt verði úrræði í búvörulögum
til að ákvæði laganna um bann við markaðssetningu
mjólkur utan greiðslumarks á innanlandsmarkaði
haldi, enda er það forsenda þess að hægt sé að tryggja
lögboðið lágmarksverð til bænda. Þetta mál strandaði
í þinginu á liðnu sumri og enginn hefur treyst sér til
að taka það upp að nýju og koma því áfram.
Stefnumótun til framtíðar
Á aðalfundi LK sem haldinn var á dögunum var mikil
vinna lögð í að fara yfir drög að stefnumótun fyrir
nautgriparækt til framtíðar í landinu, sem unnin var
af nefnd skipaðri af fulltrúum frá Auðhumlu og LK .
Þessi nefnd hafði það m.a. að markmiði í sinni vinnu
að ná fram hagkvæmari framleiðslu með lækkun á
framleiðslukostnaði og betri rekstri á búunum.
Ég tel að þetta sé ekki eitthvert marklaust plagg
sem menn vinna og sé síðan geymt í möppu uppi
í hillu, heldur eigi menn að geta nýtt sér ýmislegt
úr þessum gögnum til að bæta sinn rekstur, því við
þessa vinnu hefur m.a komið í ljós að mikið skilur á
milli hvernig menn höndla það. En það kemur þó að
því sama eins og með vinnsluna, að ytra umhverfi
greinarinnar verður að vera stöðugt svo menn hafi
trú á því sem þeir eru að gera.
Eitt er það sem veikir þessa trú manna á að hér
verði mjólkurframleiðsla áfram með svipuðu sniði,
en það eru aðildarviðræðurnar við ESB sem löngu er
orðið tímabært að slíta svo menn geti farið að vinna
á eigin forsendum til framtíðar.
Eins og ég sagði í upphafi þessa pistils er vorið
að koma, það finnst mér alltaf einhver besti tíminn í
mínu starfi sem bóndi. Endilega njótum vorsins, hvað
sem öllu öðru líður.
Sveinbjörn Þór Sigurðsson
stjórnarmaður í LK
Raddir kúabænda - naut.is
Hagræðing í mjólkuriðnaði hefur
skilað sér til bænda og neytenda