Bændablaðið - 07.04.2011, Page 1
34
7. tölublað 2011 Fimmtudagur 7. apríl Blað nr. 346 Upplag 22.300
22
Bærinn okkar
Drangshlíðardalur
24
Einungis kostagripir í
Ræktunarbúinu Torfunesi
Bændasamtök Íslands (BÍ)
hafa sent frá sér umsögn um
tillögu til þingsályktunar um
afturköllun umsóknar Íslands að
Evrópusambandinu (ESB). Þar
kemur fram að samtökin
telji að hinar svokölluðu
samningaviðræður séu
komnar á aðlögunarstig
og þegar sé hafin vinna við
að breyta íslenskri löggjöf
til samræmis við reglur
ESB. Afdráttarlaust hafi
komið í ljós á rýnifund-
um í Brussel að undan-
förnu að ekki sé í boði að
Ísland fái varanlega heimild til að
banna innflutning á lifandi búfé og
plöntum frá öðrum löndum ESB.
Þetta kom meðal annars skýrt
í ljós á tvíhliðafundi um dýra- og
plöntuheilbrigði 28. - 31. mars sl.
þar sem fulltrúar ESB lýstu því yfir
án nokkurra tvímæla að Ísland gæti
ekki fengið slíkar undanþágur frá inn-
flutningi plantna og dýra til landsins.
Erna Bjarnadóttir og fleiri starfs-
menn BÍ sátu þennan fund sem
áheyrnarfulltrúar og fylgdust með
honum í beinni útsendingu í utan-
ríkisráðuneytinu.
Að sögn Ernu tók Wolf Meyer yfir-
maður hjá framkvæmdastjórn ESB á
sviði heilbrigðismála (SANCO), til
máls á fundinum og sagði afdráttar-
laust að ekki yrði um neinar slíkar
undanþágur að ræða .
Að sögn Meyers þurfi Íslendingar
að svara hvort þeir ætli að taka upp
reglur ESB. Ef ekki, sé hægt að slíta
viðræðum. Ísland verði að fara að
ESB- reglum.
Fulltrúar ESB á fundinum lögðu
áherslu á að viðskipti Íslands við
önnur lönd innan sambandsins teld-
ust ekki innflutningur. Innflutningur
ætti við um viðskipti við þriðju ríki.
Forsendur umsóknar brostnar
Í meirihlutaáliti utanríkismála-
nefndar Alþingis vegna aðildarum-
sóknarinnar er fjallað um megin-
hagsmuni Íslands.
Þar kemur m.a. fram að búfjár-
stofnar á Íslandi séu afar viðkvæmir
fyrir utanaðkomandi sýkingum.
Þá segir: „Ísland hefur til þessa
samkvæmt EES-samningnum verið
undanþegið viðskiptum með lifandi
dýr. […] Meirihlutinn telur rétt að
kröfu um að þessari undanþágu
verði framhaldið fyrir Ísland verði
haldið uppi í mögulegum aðildarvið-
ræðum.“
Ef litið er til viðbragða fulltrúa
ESB á nefndum fundi er ljóst að slík
kröfugerð mun ekki halda. Þar með
má halda því fram að forsendur fyrir
umsókninni séu brostnar.
Samfylkingarmenn vilja frjálsan
innflutning gæludýra
Fyrir skemmstu lögðu þrír þingmenn
Samfylkingarinnar fram frumvarp til
breytinga á lögum um innflutning dýra
til landsins. Í frumvarpinu
er lagt til að gæludýr þurfi
ekki að setja í sóttkví við
komuna til landsins heldur
þurfi eingöngu að fylgja þeim
heilbrigðis- og upprunavott-
orð, svokölluð dýravega-
bréf. Frumvarp þetta hlýtur
að skoðast í samhengi við
viðræður Íslands og ESB
um undanþágur frá reglum
sambandsins um frjálsan flutning dýra
milli landa og svæða.
Óheftur innflutningur fásinna
Dr. Margrét Guðnadóttir veirufræð-
ingur og fyrrverandi prófessor í
sýklafræði segir frumvarpið fásinnu.
Margrét bendir á að karakúlféð sem
flutt var hingað til lands og bar með sér
tvær tegundir mæðiveiki, garnaveiki
og visnu hefði fengið stimpla frá fín-
ustu stofnunum um heilbrigði þess.
„Eftir að þessar pestir voru greindar
hér kom á daginn að þær voru til staðar
í mildu formi á svæðum þaðan sem
þessi dýr komu. Þar gerðu þær ekki
usla vegna þess að stofninn hafði
við þeim ónæmi. Sjúkdómarnir voru
sem sagt óþekktir þar til þeir urðu að
faraldri hér á landi. Hvernig á að vera
hægt að gefa út heilbrigðisvottorð
vegna sjúkdóma sem eru óþekktir?“
spyr Margrét. Hún segir málið stóral-
varlegt og það verði að stoppa. /fr
Hagræðingarferli í mjólkuriðnaði á Íslandi hófst 1988 hefur skilað umtalverðum sparnaði og lægra verði á mjólk
til neytenda að mati stjórnenda í afurðastöðvum MS. Sjá blaðauka um mjólkuriðnaðinn á bls 15 - 20. Mynd | HKr.
Engar undanþágur í boði
Gengur gegn meginhagsmunum Íslands og forsendur umsóknar því brostnar
Ísland verður að hlíta reglum ESB um óheftan innflutning dýra og plantna:
Hálfíslenskur Dani
með lífrænt kúabú
Þrír stofnfélagar Landssambands kúabænda á 25 ára afmælisárshátíð
samtakanna í Sjallanum á Akureyri 26. mars sl. F.v. Jón Gíslason, Lundi í
Lundarreykjadal, Egill Sigurðsson, Berustöðum, Ásahreppi og Benjamín
Baldursson, Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit. Mynd | MÞÞ
Sjá nánari umfjöllun um aðalfund LK á bls. 26
Landssamband kúabænda 25 ára
„Ef litið er til viðbragða fulltrúa ESB á
nefndum fundi er ljóst að slík kröfugerð mun
ekki halda. Þar með má halda því fram að for-
sendur fyrir umsókninni séu brostnar.“
Bændatorg - Ný upplýsingagátt á vefnum
Bændatorg, upplýsingagátt fyrir
bændur og ráðunauta, er ný vef-
þjónusta frá Bændasamtökunum
sem fer í loftið á morgun föstu-
dag.
Inni á vef samtakanna, www.
bondi.is, geta bændur skráð sig
inn á sitt eigið svæði þar sem þeir
hafa aðgang að margvíslegum upp-
lýsingum úr sínum búrekstri. Með
Bændatorginu þurfa bændur því
eingöngu að nota eitt lykilorð í stað
þess að skrá sig inn í mörg kerfi
eins og verið hefur. Á vefnum geta
bændur og ráðunautar skipst á upp-
lýsingum en stefnt er að því að sam-
skipti þeirra á milli fari í ríkari mæli
í gegnum Bændatorgið þegar fram
líða stundir. Öruggur aðgangur er
tryggður með rafrænu auðkenni en
meðal upplýsinga sem bændur geta
fengið á Bændatorginu eru yfirlit úr
skýrsluhaldskerfum, upplýsingar um
beingreiðslur og grunnupplýsingar
um bú og félagsaðild.
Sjá nánar á bls. 23.
Drög að nýjum jarða- og ábúðarlögum lögð fram
Lögbýli verða ábúðarskyld
Óheimilt verður að eiga fleiri en þrjú lögbýli
Eigendum lögbýla verður skylt
að byggja þau sjálfir eða að leigja
þau hæfum umsækjanda að mati
sveitarstjórna. Því verður ábúðar-
skylda lögbýla innleidd að nýju.
Sömuleiðis mega einstaklingar eða
lögaðilar ekki vera eigendur að
fleiri lögbýlum en þremur, hvorki
að öllu leyti né að hluta. Gildir það
einnig um eignarhluti í félögum. Þá
er tiltekið að eignist einstaklingar
eða lögaðilar fleiri en eitt lögbýli
skuli þau liggja í ákveðinni fjar-
lægð í loftlínu frá íbúðarhúsnæði á
því lögbýli sem viðkomandi eignast
fyrst. Sú fjarlægð hefur enn ekki
verið ákveðin.
Þetta kemur fram í drögum að
frumvarpi til nýrra jarða- og ábúðar-
laga sem Jón Bjarnason sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra hefur
lagt fram til kynningar. Í drögunum
kemur einnig fram að áður en skipu-
lagsáætlanir sveitarfélaga taki gildi
skuli leitað umsagna sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra enda megi
slíkar skipulagsáætlanir ekki ganga
gegn markmiðum laganna um land-
búnaðarnot lands og fæðuöryggi.
Frumvarpsdrögin byggja á niðurstöðu
vinnuhóps sem ráðherra skipaði og
skilaði af sér 1. desember á síðasta ári.
Ef frumvarpið verður samþykkt
verður hægt að beita jarðeigendur
áminningum byggi þeir ekki jarðir
sínar. Bregðist þeir ekki við innan
ákveðins tíma er sveitarstjórnum
heimilt að ráðstafa lögbýlum til leigu
í allt að fimm ár í senn. Einnig verður
ráðherra heimilt að leyfa ábúendum á
jörðum sem skipt hefur verið heimild
til að leysa til sín úrskipta jarðar-
hluta á ný sé ekki rekið þar bú. Til
þess þurfa þó að liggja hagsmunir
sveitarfélags. Náist ekki samkomu-
lag um verð á jarðarhlutanum skal
greiða bætur samkvæmt lögum um
eignarnám.
Frumvarpið hefur verið birt á
heimasíðu ráðuneytisins og sent hags-
munaaðilum til umsagnar. Frestur til
athugasemda og umsagna er til 27.
apríl. /fr
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.