Fréttablaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 26
6 • LÍFIÐ 24. FEBRÚAR 2012 Hvað varð til þess að þið stofnuð- uð fyrirtækið Arca? Vilborg Við stofnuðum Arca í lok ágúst 2009. Kveikjan að öllu saman var kökudiskur á fæti en hann má taka í sundur og er afhentur í flötum pakkningum. Grunnhugmynd Arca er einmitt sú að varan á að vera not- endavæn, stílhrein og fyrirferðar mikil á borði en nett í geymslu. Hafdís Við höfum alveg frá byrj- un haft það markmið að geta lifað af hönnun okkar og eitt af því er að koma vörunni á erlendan markað sem við erum byrjaðar að vinna í. Nú þegar er varan okkar seld í Kaupmanna- höfn, París og London. Þessir sölu- aðilar fundu okkur á internetinu og höfðu samband við okkur á Facebook. Frakkar eru sjúkir í jökulinn og kerta- stjakana. Í Danmörku er eftirspurn eftir vöru úr áli frá okkur og í Bretlandi selj- um við mikið af smávörunni. Hvernig gengur samstarfið? Hafdís Ég er það heppin að vera að vinna með bestu vinkonu minni og samstarfið gengur í alla staði mjög vel. Við bætum hvor aðra upp og þegar við tvær komum saman þá er fátt sem stoppar okkur. Vilborg Við Hafdís erum það heppnar að eiga skap saman ásamt því að vera bestu vinkonur sem auð- veldar vinnu okkar töluvert en gaman er að nefna það að langflestar hug- myndir hafa litið dagsins ljós yfir kaffibolla og hlátrasköllum án nokk- urrar fyrirhafnar. Sameiginleg ástríða okkar beggja er klárlega að Arca nái þeim hæðum erlendis sem við von- umst til. Við höfum allt frá fyrsta degi litið á þetta sem tækifæri til að skapa okkur atvinnu og tekjulind. Hvernig gengur að vera framakon- ur með stóra fjölskyldu? Vilborg Það er heilmikil vinna að reka fyrirtæki og sjá um heimili samhliða því. Ég bý samt að reynslu foreldra minna en þau hafa verið í rekstri frá því ég man eftir mér. Þegar mikið er um að vera og lítill tími sem gefst fyrir strákana mína finn ég best hve mikilvægt er að skipuleggja mig vel. Án þess væri ég ekki þar sem ég er í dag, ég fer aldrei út án þess að hafa með mér dagbók og paratabs. Hafdís Það gengur vel ef allir hjálpast að. Birta, elsta dóttir mín, er ofsalega dugleg að hjálpa mér með að passa litlu systkini sín. Ég gæti þetta ekki án hennar en óneitan- lega er oft erfitt að samræma þetta allt saman, sérstaklega á álagstím- um eins og t.d. um jólin. Þá erum við að vinna frá morgni til kvölds og ég hef lítinn tíma í hluti eins og að elda kvöldmat og læra með krökkunum. Við borðum t.d. skyndibita fyrir allt árið í desember. En við reynum allt- af a.m.k. að hafa frí á sunnudögum og þar reyni ég að troða vikudagskrá með fjölskyldunni á einn dag. Finnið þið fyrir samviskubiti gagn- vart fjölskyldunni þegar álagið tengt rekstrinum er sem mest? Vilborg Vissulega hef ég samvisku- bit gagnvart strákunum þegar álagið er mikið. Ég held að fjörið sé nú bara rétt að byrja því vinnan hér heima er barnaleikur einn miðað við það sem tekur við erlendis. Þar eru hlutirn- ir ekki eins fljótir að gerast eins og hér. Allt ferlið tekur lengri tíma, meiri kostnaður og enginn tími fyrir mis- tök. Hafdís Ég held að maður búi sér oft til samviskubitið sjálfur, og ég er engin undantekning. Ég fæ sam- viskubit yfir ótrúlegustu smáhlutum og ég er til dæmis langt fram í janú- ar að vinna mig niður í samviskubit- inu frá desembermánuði. Vilborg Við göntumst stundum með það að við ættum að njóta þess núna því óvíst er að við eigum eftir að hafa svo mikinn tíma að ári ef allt gengur samkvæmt áætlun. En fjöl- skyldan var nú meginástæða þess að við stofnuðum Arca. Við þurftum báðar að búa okkur til tekjulind. Til- gangurinn helgar svo meðalið. Í dag horfum við björtum augum til fram- tíðar með það að leiðarljósi að ef allt gengur upp þá sættum við okkur við smá samviskubit en á móti kemur öryggisnetið sem við byggjum upp með afkomu af rekstri sem gengur vel og gerir okkur kleift að leyfa fjöl- skyldunni að njóta á ýmsa vegu. Ég held að við konur séum allt of móttækilegar fyrir tilhugsun- inni um samviskubit gagnvart hinu og þessu fremur en karlmenn al- mennt. Af hverju ættum við ekki að feta í fótspor þeirra og líða jafn vel fyrir vikið þegar vinnutími eykst og tekjur aukast? Við erum nú búnar að berjast fyrir kvenréttindum í mörg ár – njótum afrakstursins í guðanna bænum. FRAMAKONUR Í FYRIRTÆKJAREKSTRI Vilborg Aldís Ragnarsdóttir og Hafdís Heiðarsdóttir stofnuðu hönnunarfyrirtækið Arca árið 2009 eftir að þær hönnuðu kökudisk á fæti sem sló í gegn. Vinkonurnar finna stundum fyrir samviskubiti gagnvart fjölskyldunni þegar álagið er sem mest í rekstr- inum en láta það ekki stoppa sig þegar kemur að útrás en nú þegar er hönnun þeirra seld í París, Kaupmannahöfn og London. VILBORG ALDÍS RAGNARSDÓTTIR ALDUR: 37 ára. MAKI: Gift Ingvari Hilmarssyni. BÖRN: Daníel Þór Ingvarsson 16 ára og Ragnar Freyr Ingvarsson 10 ára. HAFDÍS HEIÐARSDÓTTIR ALDUR: 34 ára. MAKI: Er gift Þórhalli Jóhannssyni. BÖRN: Birta 12 ára, Jökull 7 ára og Yrja 3 ára. Kökudiskur úr plexilgeri sem stöllurnar hönnuðu árið 2009. Kertastjakinn Jökull sem er bæði notað- ur fyrir hákerti og sprittkerti. – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 82 75 0 2/ 12 Vöðva og liða Galdur. Á bólgur og verki. Húð Galdur. Á hvers kyns húðútbrot og kláða. 20% afsláttur Lægra verð í Lyfju Tilboðið gildir út febrúar. Fermingarföt fermingargjafir Nýjar vörur – Nýtt kortatímabil Armbönd, úr og fleiri fylgihlutir á frábæru verði SOHO/MARKET Á FACEBOOKGrensásvegur 8, sími 553 7300 Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.