Fréttablaðið - 09.03.2012, Page 1
ÁFRAM STELPUR! Kvennaframboðið fagnaði 30 ára afmæli sínu í gær, á alþjóðlegum baráttudegi
kvenna. Í tilefni þessa hélt Jafnréttisstofa málþing á Hótel KEA þar sem fjöldi kvenna úr framboðinu kom saman.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011
Föstudagur
skoðun 16
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Lífið
veðrið í dag
9. mars 2012
59. tölublað 12. árgangur
Fullveldismál í
forgrunni
Evrópumálaráðhera
Danmerkur styður aðild
Íslands að ESB.
föstudagsviðtal 12
É g hef gengið á milli húsa, talað við Rifsarana og fengið mjög góð við-brögð,“ segir Kári Viðarsson sem ætlar að fá alla íbúa Rifs á Snæfellsnesi, 165 að tölu, á tónleika í Frystihúsinu á sunnudaginn og slá þannig Íslandsmet í mætingu miðað við höfðatölu. Tón-leikarnir eru þeir fyrstu í húsinu sem er nokkurs konar menningarmiðstöð og Kári hefur nýtt til leikhússýninga síðustu ár.
„Ég fékk þá hugmynd fð
þeir hefjast en fæst þó til að gefa upp að
tónlistin sé fjölskylduvæn. „Þetta verð-
ur ekkert harðkjarnarokk eða breið-holts hipphopp. Bara frábærir lista-menn sem spila ljúfa, einlæga og fallega
tónlist fyrir Rifsara.“ Hvað með aðra en Rifsbúa, mega þeir
koma á tónleikana? „Nei, það er nú ekki
illa meint en öðrum en Rifsurum er ekki
boðið. Ég held hreinlega að þ ð kekki fl
STEFNIR Á ÍSLANDS- MET Í MÆTINGULANDIÐ Leikarinn og leikstjórinn Kári Viðarson stendur fyrir tónleikum í Frysti-
húsinu á Rifi á sunnudaginn. Hann ætlar að fylla salinn með öllum 165 íbúum
bæjarins og gera um það heimildarmyndina 100% mæting.
BJARTSÝNN
Kári Viðarsson er bjart-sýnn á að markmiðið um 100% mætingu Rifsbúa á tónleikana muni nást.MYND/ANTON
UNGT TÓNLISTARFÓLK Nótan – uppskeruhátíð tónlistarskóla fer fram
í þriðja sinn á laugardag og sunnudag en þátt-
takendur eru af öllu landinu | WWW.NOTAN.IS
HUMARSALAT & HVÍTVÍN 2.250 kr.Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó,
sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum
ásamt hvítvínsglasi.
BLÁSKEL & HVÍTVÍN 2.950 kr.Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt hvítvínsglasi.
FERSKT &
FREISTANDISPENNANDI
SJÁVARRÉTTATILBOÐ
9. MARS 2012
LÉT FJARLÆGJA
PIP-PÚÐANA
HARPA EINARS
100% NÁTTÚRULEG
SELMA ÆTLAÐI AÐ
VERÐA LÖGFRÆÐINGUR
SILJA ÚLFARSDÓTTIR
MIÐLAR REYNSLUNNI
SVARTAR Á
FRUMSÝNINGU
26% Gouda ostur
í kílóastykkjum
á tilboði
ms.is
Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 11-16 · www.rumgott.is
YFIR 10.000
EINSTAKLINGAR
hafa nýtt sér legugreininguna frá
okkur og fengið rúm sérsniðið
að þeirra þörfum. Komdu og
prófaðu og við gerum þér tilboð
í heilsurúm sem hentar þér!
HEILBRIGÐISMÁL Hlutfall kvenna í sjúklinga-
hópnum á Vogi hefur hækkað á síðustu árum
og er nú komið upp í 37 prósent. Árið 1980
var það 20 prósent. Áfengisneysla íslenskra
kvenna hefur farið vaxandi á síðasta áratug og
er hlutfall karla og kvenna sem neyta aldrei
áfengis nú orðið nánast jafnt, eða um fimm
prósent.
Í byrjun níunda áratugarins sögðust um 45
prósent kvenna yfir fimmtugt aldrei neyta
áfengis og þriðjungur á aldrinum 30 til 40 ára.
Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, segir
fjölgunina greinilega.
„Það er orðinn minnsti munur á áfengis-
neyslu kvenna og karla á Íslandi af öllum
löndum í heiminum,“ segir hann. „Það drekka
nánast allir á Íslandi í dag, nema þeir sem eru
þurrir.“ Gunnar Smári bendir á að þróunin
hér á landi sé afar ólík sumum öðrum löndum
í heiminum, og tekur þar dæmi um Rússland,
Írland og Miðjarðarhafslöndin, þar sem hlut-
fall kvenna sem aldrei neyta áfengis sé mun
hærra en hér. Varðandi mögulegar ástæður
fyrir þessari þróun veltir Gunnar Smári upp
spurningunni um kynjajafnrétti.
„Konur þurfa að geta gert allt eins og karlar,
þar á meðal drukkið eins og þeir,“ segir hann.
„Það hefði verið betra að fara hina leiðina, þar
sem karlarnir hefðu þurft að læra að drekka
eins og konur.“
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, á
von á því að á næstunni komi inn hópur kvenna
sem enn á eftir að leita sér aðstoðar. „Það er
þróun undanfarinna ára, eins og komið hefur
fram hjá Lýðheilsustöð og í skýrslum okkar.“
Rafn M. Jónsson, verkefnastjóri áfengis- og
vímuvarna hjá landlæknisembættinu, segir
nauðsynlegt að skoða þær ástæður sem liggja
að baki aukinni áfengisneyslu kvenna í sam-
félaginu.
„Konurnar hafa sótt á, það er alveg klárt,“
segir Rafn og bendir á að samkvæmt rannsókn
Lýðheilsustöðvar frá árinu 2004 eykst hlut-
fall kvenna sem neyta áfengis eftir því sem
þær eru betur menntaðar. „Því er öfugt farið
með karla, en það má sjá jákvæð tengsl milli
áfengis neyslu og menntunar kvenna í aldurs-
hópnum 35 til 54 ára. Eftir því sem konur eru
menntaðri, því meira drekka þær.“
Samkvæmt nýlegum könnunum Lýðheilsu-
stöðvar drekka um það bil 95 prósent
þjóðarinnar, hvort sem um er að ræða konur
eða karla. En bindindisfólki hefur hlutfallslega
fækkað hraðar meðal kvenna. - sv
Íslenskar konur búnar að
ná körlunum í drykkjunni
Hlutfall bindindiskvenna á Íslandi hefur lækkað úr 45 prósentum í fimm prósent síðan árið 1975. Lítill
munur er á drykkju kynjanna hér á landi. Hlutfall kvenna á Vogi hefur hækkað mikið á síðustu árum.
Það hefði verið betra að fara
hina leiðina, þar sem karlarnir
hefðu þurft að læra að drekka eins og
konur.
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
FORMAÐUR SÁÁ
ÁFRAM ÉL Í dag verða suðvestan
8-18 m/s, hvassast við S-ströndina.
Él S-og V-lands en skýjað NA-til.
Hiti um frostmark.
VEÐUR 4
2
1
0
0
-2
Sömdu lag saman
Helgi Björnsson og John
Grant hafa nýlokið við að
semja lag.
fólk 34
100 prósent mæting
Kári Viðarsson stendur fyrir
tónleikum á Rifi á sunnudag
með öllum íbúum þorpsins.
Fullkominn leikmaður
Lionel Messi raðar inn
mörkum með Barcelona í
Meistaradeildinni.
sport 30
LANDSDÓMUR Hreiðar Már Sig-
urðsson, fyrrverandi forstjóri
Kaupþings, sagði að sér blöskruðu
eftirás kýringar Seðlabanka-
manna um að þeir hafi séð hrunið
fyrir, þegar hann bar vitni fyrir
Landsdómi í gær. Hreiðar sagði
að stjórnvöld hefðu gert mistök
þegar þau tóku Glitni yfir og að
neyðarlögin hefðu orðið til þess að
Kaupþing féll.
Hann sagði að til hafi staðið að
flytja hluta af starfsemi Kaupþings
úr landi í lok september 2008, og að
lokamarkmiðið hafi verið að flytja
höfuðstöðvar bankans til London.
Vitnisburður Hreiðars Más var
talsvert annar en þeirra embættis-
manna sem hingað til hafa borið
vitni fyrir Landsdómi.
- bj, þsj / sjá síður 8 og 10
Hreiðar Már fyrir Landsdómi:
Segir neyðar-
lögin hafa fellt
Kaupþing
AÞENA, AP Grikkland náði í gær
mikilvægum áfanga í baráttunni
við skuldavanda þegar lána-
drottnar ríkissjóðs í einka-
geirunum samþykktu niðurfærslu
og breytingu skulda.
Einkaaðilar, til dæmis bankar,
lífeyrisjóðir og vogunarsjóðir,
sem áttu samtals 177 milljarða
evra inni hjá gríska ríkinu,
höfðu frest til gærkvöldsins til
að taka sjálfviljugir þátt í skuld-
breytingingunni, sem felur í sér
afskriftir á skuldum, lækkun vaxta
og frestun afborgana. Skulda-
lækkunin er talin munu nema
107 milljörðum evra, að jafngildi
17.700 milljarða íslenskra króna.
Til þess að skuldbreytingin yrði
að veruleika þurftu að minnsta kosti
þrír fjórðu einkaaðilanna að sam-
þykkja niðurfellingu síns hluta og
sú varð raunin þó að ekki hafi legið
fyrir í gærkvöldi hversu marg-
ir neituðu að taka þátt. Þetta hlut-
fall dugar til þess að gríska ríkið
geti skuldbundið þau fyrirtæki til
þátttöku.
Ekki eru þó allir á því að þessi
aðgerð muni duga til, þar á meðal
Peter Bofinger, aðstoðarmaður
Angelu Merkel Þýskalandskanslara.
Hann segir í viðtali við Bloom-
berg fréttastofuna að skuldirnar
verði Grikkjum áfram mjög erfiðar
og næst muni önnur ríki og seðla-
bankar þurfa að fella niður hluta af
skuldum gríska ríkisins.
„Og það þarf að gerast á næstu
tólf mánuðum,“ sagði Bofinger.
- gb, þj
Einkaaðilar samþykkja að færa skuldir niður um 17.700 milljarða króna:
Tóku á sig afskriftir fyrir Grikki
17.700 milljarða ís-
lenskra króna munu
einkaaðilar taka á sig í niður-
færslu grískra skulda