Fréttablaðið - 09.03.2012, Page 6

Fréttablaðið - 09.03.2012, Page 6
9. mars 2012 FÖSTUDAGUR6 Bezposrednie loty do Warszawy, Krakowa, Wilna i Pragi latem 2012 w atrakcyjnej cenie. –zaplanuj je z nami Marta Nasz pracownik mowiacy po polsku i caly dzial obslugi klienta Iceland Express jest zawsze gotowy pomoc. Zapoznaj sie z nasza oferta ! Ármúla 7 | 108 Reykjavík | 5 500 600 | www.icelandexpress.is Cena od W jedna strone z oplatami lotniskowymi i podatkami 25.900 kr. Nadchodza wakacje DÓMSMÁL Viggó Þórir Þórisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Verðbréfaþjónustu Sparisjóðanna (VSP), var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í tveggja ára óskil- orðsbundið fangelsi fyrir tilraun til fjársvika. Hann var sýknaður af ákæru um stórfelld umboðssvik. Málið hefur verið til rann sóknar frá árinu 2007 og sætti Viggó meðal annars farbanni vegna þess í 23 mánuði, lengur en nokkur annar hefur gert á Íslandi. Málið tengist erlendu félagi sem kallast Napis og Viggó var talinn eiga, þótt hann hafi sjálfur fullyrt að það væri í eigu vinar hans. Brot hans var talið felast í útgáfu til- hæfulausrar ábyrgðaryfirlýsingar upp á 200 milljónir Bandaríkjadala. Ef viðskiptafléttan hefði gengið upp hefði Napis hagnast verulega. Saksóknari hafði krafðist fjögurra ára fangelsisdóms yfir Viggó og sagði við meðferð málsins að um alþjóðlega svikamyllu hefði verið að ræða. Niðurstaða héraðsdóms er sú að brotavilji Viggós hafi verið ein- beittur og að um afar háar fjár- hæðir hafi verið að tefla. Til þess beri að líta við ákvörðun refsingar. Þá hafi verknaðurinn leitt til þess að starfsemi VSP fór í þrot. Á hinn bóginn sé til þess að líta að tilraunir Viggós til blekkinga hafi verið mjög veikburða og ósannfærandi í ljósi þess að þær beindust að fagfjárfestum og bankastofnunum. Dráttur málsins þykir rétt- lætanlegur í ljósi þess hversu umfangsmikil rannsóknin var. Afla þurfti gagna víða um heim og taka skýrslur af vitnum í þremur löndum auk þess sem Viggó var ekki að öllu leyti samvinnufús við rannsóknina. - sh Fyrrverandi framkvæmdastjóri VSP fær tveggja ára fangelsisdóm fyrir umfangsmikinn blekkingarleik: Dæmdur í fangelsi fyrir mislukkaða svikamyllu FLÓKIÐ MÁL Héraðsdómur Reykjaness telur drátt málsins réttlætanlegan. VIÐSKIPTI Rúmur helmingur fyrir- tækja sem falla undir ný lög um kynjahlutfall í stjórnum, eða 55 prósent, þarf að bæta við konu eða konum í stjórn. Alls falla 285 fyrir- tæki undir löggjöfina sem tekur gildi í september á næsta ári. Þetta kom fram á fundi sem Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands, Félag kvenna í atvinnurekstri, Kauphöllin, Samtök verslunar- og þjónustu og efnahags- og viðskipta- ráðuneytið stóðu fyrir í gær. Fram kom að alls vantar 192 konur í stjórnir til að jafna kynja- hlutföll þeirra, en á fundinum lagði Félag kvenna í atvinnurekstri fram lista með tengiliðaupplýsingum 190 kvenna sem bjóða fram krafta sína. Í opnunarræðu sinni á fundinum hafði Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sérstaklega orð á þeim tíðindum að Samtök atvinnulífsins hafi tilnefnt 14 stjórnarmenn til setu í stjórnum átta lífeyrissjóða til næstu tveggja ára og að þar af væru 10 konur. Ísland er með fyrstu löndum sem fylgja fordæmi Norðmanna með lagasetningu um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja. Taldi ráð- herra víst að víðtæk sátt yrði um þessa tilhögun. „Í fyrsta lagi er þetta sjálfsagt og eðlilegur hlutur í samfélaginu eins og við viljum hafa það. Um þetta ætti hvorki að þurfa að rökræða né rífast,“ sagði Steingrímur, og benti á að rannsókn- ir sýndu að fyrir tækjum með fjöl- breyttar stjórnir og jöfn kynjahlut- föll farnist betur en öðrum. Í svipaðan streng tók Páll Harðar- son, forstjóri Kauphallarinnar. Hann sagði því auðsvarað hvað hafi orðið verðbréfamarkaði hér að falli: einsleitni og slæmir stjórnar hættir. Helmingur þarf að fjölga konum í stjórn Einsleitar stjórnir stuðluðu að efnahagshruninu hér, að mati forstjóra Kaup- hallarinnar. 190 konur vantar í stjórnir 285 fyrirtækja til þess að uppfylla lög um kynjakvóta sem taka gildi á næsta ári. 45 prósent uppfylla skilyrði. SPJALL FYRIR FUND Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, stinga saman nefjum við upphaf morgunverðarráðstefnu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fjármálafyrirtækið Stefnir, sem er í eigu Arion banka, er fyrsta fyrirtækið til að ljúka formlegu úttektarferli á stjórnarháttum fyrirtækja. Ferlið var sett á laggirnar á fyrri hluta árs 2011 með samstarfssamningi Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands. „Stefnir hf. lauk úttektarferlinu í febrúar á þessu ári, en það var KPMG sem annaðist hlutverk úttektaraðila,“ segir í umfjöllun Viðskiptaráðs, en greint var frá áfanganum á ráðstefnu um góða stjórnarhætti sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í gærmorgun. „Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar stóðst Stefnir hf. úttektarferlið og telst því fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum.“ Stjórnarhættir Stefnis til fyrirmyndar „Þetta varð til þess að margir féllu á sama tíma. Með meiri fyrirhyggju hefðu fjármálafyrirtækin getað staðið af sér fjármálakreppuna.” Lið í því að bæta stjórnarhætti og losna úr viðjum kunningjasam- félagsins sagði Páll vera að auka hlutfall kvenna, og þar með fjöl- breytnina, í stjórnum fyrirtækja. Um leið sagði hann það þó enga tryggingu fyrir velgengni og benti á að kynjahlutföll hafi verið þau sömu í stjórnum fyrirtækjanna sem best komu út úr hruninu og þeirra sem urðu verst úti. „Ég held það væri vel til fundið af fyrirtækjum að láta gera úttekt á sínum stjórnarháttum. En lykil- atriðið er samt vakandi fjárfestar. Fjárfestar sem láta sig stjórnar- hætti fyrirtækja varða,“ sagði Páll. olikr@frettabladid.is „Bara að drífa sig. Ef þú finnur einhver einkenni, ekki hika við að leita til læknis.” Safnaðu mottu og áheitum á www.mottumars.is H :N M ar ka ðs sa m sk ip ti / S ÍA Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12 Sprengisandur kraftmikill þjóðmálaþáttur Ert þú ánægð(ur) með þá tón- listarviðburði sem hafa verið í boði í Hörpu til þessa? JÁ 51,2% NEI 48,8% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú áhyggjur af umsvifum glæpagengja á Íslandi? Segðu þína skoðun inni á Vísi.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.