Fréttablaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 12
9. mars 2012 FÖSTUDAGUR12 Föstudagsviðtaliðföstuda gur Nicolai Wammen, Evrópumálaráðherra Danmerkur ESB snýst um annað og fleira en fjármál og peninga. Sambandið er líka friðar- verkefni og það gildir sérstaklega um stækkun- armál. 525 8000 www.bilaland.is KLETTHÁLSI 11 og EIRHÖFÐA (Bílakjarninn) VIÐ ERUM Á TVEIMUR STÖÐUM: E N N E M M / S ÍA / N M 5 10 0 4 N icolai Wammen hefur verið ein helsta vonar- stjarna danskra jafn- aðar manna síðustu ár. Hann tók sæti á þingi, þrítugur að aldri, árið 2001 og sat þar fram til ársins 2004. Hann var svo kjörinn borgarstjóri í Árósum árið 2005 og gegndi því embætti fram á síðasta haust þegar hann var aftur kjörinn á þing og var skipaður Evrópumálaráðherra í ríkis- stjórn Helle Thorning-Schmidt. Sem slíkur hefur hann gert víðreist enda situr Danmörk í forsæti Evrópu- sambandsins fram í lok júní. Hann var staddur hér á landi í upphafi viku þar sem hann ræddi við forsvars- menn ríkis stjórnarinnar um framgang aðildar viðræðnanna og stöðu mála í Evrópusambandinu. Hvaða þýðingu hefur forystuhlut- verkið fyrir Danmörku og hverju vonist þið til að áorka? Það fer ekki á milli mála að Dan- mörk tekur við forystunni á afar erfiðum tíma í sögu Evrópu. Álfan er nú í sinni dýpstu kreppu frá stríðs- lokum þannig að verkefnið er mikil áskorun, en við Danir erum þraut seigir og munum leggja okkur öll fram. Okkar takmark er að koma Evrópu aftur í gang. Við höfum náð merkum áfanga með sáttmálanum um fjármála- stöðugleika og vonumst til þess að það muni koma í veg fyrir að fyrri mis- tök verði endurtekin. Við höfum þurft að grípa til aðhaldsaðgerða og niður- skurðar sem er afar mikilvægt til að tryggja að Evrópa komist aftur á rétta braut, en skilaboð Danmerkur í for- sæti ESB eru ekki bara niður skurður, heldur verðum við líka að stuðla að vexti og fjölgun starfa. 23 milljónir manna eru nú atvinnulausar í ESB og þar af átta milljónir ungs fólks. Ætlun okkar er að stuðla að vexti frá síðasta ári og við höfum myndað okkur stefnu til framtíðar í þeim málum. Bæði viljum við fjárfesta í vexti, en líka ganga úr skugga um að skynsamlega sé haldið um fjármuni til þess að sem mest fáist með hverri evru. Nú hefur innri markaður ESB verið við lýði í tuttugu ár og við viljum hefja umbætur á því fyrirkomulagi til að minnka skriffinnsku, auka neytenda- vernd og lækka verð og örva með því vöxtinn enn frekar. Nú standa Danir utan við Evru- svæðið, en krónan er tengd evru í gegnum gengis samstarfið ERM II. Myndi það breyta miklu fyrir Dan- mörku að taka skrefið til fulls og taka upp evru? Danir höfnuðu upptöku evrunnar á sínum tíma og stjórnvöld hafa virt þá ákvörðun. Það eru því engin áform um að boða til annarrar þjóðaratkvæða- greiðslu um málið. Við skrifuðum engu að síður undir sáttmálann um fjármálastöðugleika fyrir nokkrum dögum og munum taka þátt í honum að flestu leyti. Við höfum hins vegar valið að taka ekki upp evruna og það virða hin aðildarríkin fullkomlega. Hér á Íslandi eru víða uppi efa- semdir um ESB og ýmis mál sem tengjast ESB-aðild. Sú hefur líka verið raunin í ýmsum hópum í Danmörku, til dæmis varðandi Evrópudómstólinn og fullveldi aðildarríkjanna. Hefur sú umræða breyst á síðustu misserum? Efnahagsvandinn er efst á baugi í umræðu um Evrópumál í dag. Það er, hvernig við getum komið Evrópu upp úr öldudalnum og um leið verndað hagsmuni Danmerkur á þessum við- sjárverðu tímum. Það eru vissulega mörg önnur málefni sem brenna á fólki en ef þú spyrðir fólkið í landinu myndu flestir svara því til að baráttan gegn atvinnuleysi sé þeim efst í huga sem og hvort Evrópa komist af stað á ný. 70% af öllum okkar útflutningi fara til annarra ESB-ríkja og um hálf milljón danskra starfa er beintengd því þannig að þróun mála hefur mikil áhrif á almenning í landinu. Er skynsamlegt, á þessum erfiðu tímum fyrir ESB, að vinna að fjölgun aðildarþjóða í stað þess að þétta raðir núverandi aðildarríkja? Ég er þeirrar skoðunar að við megum ekki vanrækja stækkunar- mál. ESB snýst um annað og fleira en fjármál og peninga. Sambandið er líka friðarverkefni og það gildir sér- staklega um stækkunarmál. Til dæmis hafa ríkin á Vestur-Balkanskaga stefnt að aðild og nú fyrir nokkrum dögum varð Serbía síðasta ríkið sem var formlega tekið í hóp umsækjenda. Það snýst ekki síður um frið en gagn- kvæman efnahagsávinning. Hvað við kemur Íslandi yrðuð þið eitt af þeim ríkjum sem myndu leggja hvað mest af mörkum til sam bandsins. Þið eruð nútímalýðræðisríki með Fullveldismál alltaf í forgrunni Nicolai Wammen, Evrópumálaráðherra Danmerkur, sótti Ísland heim í vikunni. Þorgils Jónsson ræddi við Wammen um forystu- hlutverk Danmerkur í Evrópusambandinu, yfirstandandi efnahagsþrengingar og aðildarviðræður Íslands við ESB. Hann styður aðild Íslands heilshugar en leggur þó mikla áherslu á að þegar allt komi til alls liggi ákvörðun um ESB-aðild hjá íslensku þjóðinni. GAGNKVÆMIR HAGSMUNIR Nicolai Wammen, Evrópumálaráðherra Danmerkur, segir að bæði Ísland og ESB geti haft mikinn ávinning af aðild landins ef til hennar komi. Það sé þó alfarið undir íslensku þjóðinni komið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON öflugt velferðarkerfi auk þess að hafa vel menntað fólk og standa framarlega í þróun og rannsóknum, sérstaklega hvað varðar græna orku. Þið yrðuð svo auðvitað stórveldi í sjávarútvegi ef þið gengjuð í sambandið. Þannig er ég viss um að aðild ykkar væri bæði ESB og Íslandi til hagsbóta. Þar yrðuð þið hluti af fjölskyldu sem er bæði stærsta hagkerfi í heimi og sér til þess að þegar kreppir að þurfi enginn með- limanna að standa einn. Ég vil samt taka það skýrt fram að það er alfarið undir íslensku þjóðinni komið hvort af aðild verði. Það er ykkar ákvörðun og við virðum það. Telur þú að það sé raunhæft mark- mið að ljúka aðildarviðræðum Íslands fyrir alþingiskosningar næsta vor, eins og sumir hafa talað fyrir? Á meðan Danmörk er í forsæti ESB verður lögð mikil áhersla á upp- byggilegar og skjótar umræður milli Íslands og ESB. Það er of snemmt að segja hvenær viðræðunum gæti lokið en við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að þetta gangi hratt fyrir sig. Enn eru mörg erfið málefni óút- kljáð eins og fiskveiðar, landbúnaður og hvalveiðar. Er raunhæft að finna á þeim lausn sem báðir aðilar geta sætt sig við? Öll ný aðildarríki verða að takast á við erfið málefni eins og landbúnað og umhverfismálefni, og í tilfelli Íslands verður sjávarútvegurinn einnig mikil áskorun. Ég er hins vegar von góður um að ef báðir aðilar nálgast mál- efnin á uppbyggilegan hátt sé hægt að finna milliveg sem tryggir hagsmuni beggja. Eitt af stærstu umfjöllunarefnum sem tengjast aðild að ESB, hvort sem er í núverandi aðildarríkjum eða þeim sem eru í umsóknarferli, er spurningin um fullveldi. Hvernig nálgast Danir, sem eru óumdeilanlega lítil þjóð í hinu evrópska samhengi, spurninguna um fullveldi? Danska stjórnarskráin kveður afar skýrt á um fullveldi landsins. Í umræðunni um stöðugleika sáttmálann var því til dæmis velt upp hvort sam- komulagið fæli í sér fullveldisafsal að einhverju leyti. Málið var hins vegar tekið til nánari skoðunar innan stjórnkerfisins og niðurstaðan var sú að Danmörk væri ekki að afsala sér fullveldi með því að samþykkja samninginn. Því þyrfti ekki að leggja samkomulagið fyrir þjóðaratkvæða- greiðslu. Hins vegar er fullveldis spurningin alltaf í forgrunni umræðu í hverju ríki. Aðild að ESB hefur vissulega í för með sér afsal fullveldis að vissu leyti, en þess í stað eru ríki tekin inn í stóra fjölskyldu með öllum þeim ávinningi og skuldbindingum sem því fylgja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.