Fréttablaðið - 09.03.2012, Page 17

Fréttablaðið - 09.03.2012, Page 17
FÖSTUDAGUR 9. mars 2012 17 Á Íslandi er bannað að byggja hagkvæmar íbúðir. Ef ein- hver vill búa í lítilli íbúð þá má það ekki. Ef einhver telur sig ekki hafa þörf fyrir geymslu eða þvottahús þá veit ríkið betur. Það er eins og það gleymist að fólk geti verið ólíkt, og með ólíkar þarfir á mismunandi tímum. Sérhæfingin er stærsti kostur borga. Ég þarf ekki að kunna að smíða eða sauma því ég bý í borg þar sem einhver kann það. Ég þarf ekki að rækta eigin matvöru. Það er til fólk sem passar börn mín á daginn og kennir þeim að lesa. Húrra fyrir sérhæfingunni! Stundum þegar rýnt er í bygg- ingarreglugerðir má fá það á til- finninguna að þeir sem þeim ráða vilji alls ekki að fólk búi í borg. Þess vegna er verið að „bjarga” fólki frá því að búa í litlum íbúð- um, bjarga því frá því að búa nálægt öðrum eða þurfa að fara úr húsi. Kannski býr gott að baki en kröfum um lágmarksstærðir og lúxusútbúnað fylgir kostnað- ur. Að auki er þannig komið í veg fyrir að kostir þéttbýlisins séu nýttir til fulls. Nokkur dæmi úr gildandi reglum: „Hverju íbúðarhúsi skal fylgja leiksvæði barna á lóð.” Í fyrsta lagi eru margir sem hvorki eiga börn né hyggjast eign- ast þau og hafa þar af leiðandi lítið með dekkjarólur í garðinum að gera. En það er annað í þessu. Því fleiri rólóvellir sem rísa, því færri börn verða á hverjum þeirra. Offjárfesting á rólum þýðir þann- ig ekki bara óþarfa kostnað heldur einnig verra mannlíf. „Eldhús skal ekki vera minna en 7 m2. Þó nægir eldhúskrókur í tengslum við stofu í íbúðum 50 m2 eða minni.” Margir menn hafa á löngum tímabilum lífi sínu nákvæmlega ekkert með eldhús að gera. Af hverju má 22 ára gamall gaur ekki sleppa því að hafa eldavél sem hann notar aldrei? Af hverju má hann ekki nota plássið í annað eða sleppa plássinu og nota peninginn í annað? Og hvaða áhrif myndi það hafa ef færri íbúðir hefðu eld- hús? Jú, við fengjum fleiri mat- sölustaði. Þvílík martröð fyrir borgarlífið! „Þvottaherbergi skal fylgja hverri íbúð.” Í fyrsta lagi er ekkert mál að koma þvottavél fyrir á baði eða í eldhúsi. En af hverju er það síðan lífsspursmál að menn þurfi ekki að fara út úr húsi til að þvo föt? Það er fullkomlega rökrétt afstaða að vilja spara plássið og féð sem ella færi í þvottavél og þvo þvott- inn úti í bæ. En nei! Allir þurfa að þvo sjálfir. Þar með er rekstr- argrundvöllur fyrir hvers kyns almenningsþvottahús farinn. „Stærð sérgeymslu skal vera a.m.k. 2,5 m2 fyrir 35 m2 íbúðir eða minni og a.m.k. 6 m2 fyrir íbúðir sem eru 80 m2 eða stærri.” Aftur, ef einhvern langar í geymslu þá er það fínt. En fjög- urra fermetra geymsla kostar um það bil eina milljón króna. Hvers vegna á að skylda fólk til að greiða milljón krónur fyrir draslherbergi? Víða í stórborg- um erlendis eru fyrirtæki sem sérhæfa sig í því að geyma kassa fyrir fólk, sækja þá jafnvel heim og koma þeim aftur til þeirra þegar þeir þurfa á þeim að halda. Markaður fyrir slíkri sérhæfðri þjónustu snarminnkar ef öllum er gert skylt að eiga geymslu. Af nógu öðru er að taka. Hver íbúð verður að hafa eitt herbergi sem er 18 fermetrar að stærð, fjögurra fermetra svalir, gnótt bílastæða. Hús mega ekki standa of nálægt götu eða hvert öðru. Allt þetta eru reglur sem gera myndu borgir eins og New York, París eða Kaupmannahöfn kolólöglegar. Borgir sem milljónir manna hafa samt kosið að búa í. Bjartar stofur, eldhús, svalir, geymslur og þvottahús eru allt fínustu gæði. En lög eiga ekki að skylda fólk til að borga milljónir fyrir rými sem það getur verið án. Það þarf ekki allt að miðast út frá barnafólki á miðjum aldri sem dreymir um að búa í sveit. Fólk er, jú, ólíkt. Af hverju þurfa þá allar íbúðir að vera eins? Allar íbúðir eins Margir menn hafa á löngum tímabilum í lífi sínu nákvæmlega ekkert með eldhús að gera. Pawel Bartoszek stærðfræðingur Í DAG Nafn á plötu Halla og Ladda hér um árið kemur hvað eftir annað upp í hugann sem eins konar stef í sögu þjóðarinnar síðustu ára- tugina, lokastef þöggunarinnar í mörgum af mikilsverðum málum hennar. Sá listi er langur en hér verða aðeins tekin fimm dæmi. Í þætti um Kröflumálið 1978 kom fram að við virkjun jarðvarmans þar hefðu varúðar- og vinnureglur Guðmundar Pálmasonar verið að engu hafðar. Mér fannst þetta merkilegasta „skúbbið“ í þættinum en því miður yfirgnæfði hanaslagur Vilmundar Gylfasonar og Jóns G. Sólnes um önnur atriði allt annað í þættinum og þótti mun fréttnæmara en það stórmál að kolrangt væri farið að við virkjun jarðvarmans á Íslandi. Aldrei tókst að koma því atriði á framfæri, heldur tók við þöggun um það í 30 ár. Spiluð var plata Halla og Ladda: Látum sem ekkert C! Árið 2003, áður en lokaákvörðun um Kárahnjúkavirkjun var tekin, komu fram tveir órækir vitnisburð- ir um hrikalegt eðli hennar. Annars vegar mat í umfjöllun rammanefndar um að hún væri annar af þeim tveimur virkjun- arkostum á Íslandi sem ylli mest- um óafturkræfum neikvæðum umhverfisáhrifum. Hins vegar mat Norðmanns, sem stóð í Altadeilunni heimsfrægu um 1980 og hafði tvívegis komið til Íslands til að kynna sér Kára- hnjúkavirkjun. Sjónvarpsviðtal við hann um þetta var kaffært í fréttum, en í því sagði hann að umhverfisrösk- unin af Altavirkjuninni hefði verið algerir smámunir miðað við fyrir- hugaða Kárahnjúkavirkjun. Og af einhverjum orsökum var álit rammanefndar ekki birt fyrr en eftir að virkjunin hafði verið ákveð- in. Spiluð var plata Halla og Ladda: Látum sem ekkert C! Fyrir Landsdómi birtast nú dag- lega vitnisburðir um það að enda þótt allt sem birtist í fjölmiðlum árum saman um bankana af hálfu ráðamanna, hefði verið samfelld lofgjörð um mátt þeirra og traust- leika undir stjórn snillinga útrás- arvíkinga af yfirburðakynstofni, þá stefndu þessi ofurmenni bönk- unum lóðbeint í hrun með sama áframhaldi, jafnvel allt frá árinu 2005 þrátt fyrir jákvæð álagspróf og vitnisburði, alveg fram í hrunið. Niðurstaðan og samkór í þrjú ár, allt frá forsetanum og niður úr, var að taka undir með plötu Halla og Ladda: Látum sem ekkert C! 2007 hófst bygging álvers í Helguvík og gumað var af því að nú stefndi beint í samfelldar stóriðju- framkvæmdir undir kosningakjör- orði Framsóknarflokksins: „Árangur áfram! Ekkert stopp!“ með samhljómi í kjörorði sam- starfsflokksins: „Traust efnahagsstjórn – stærsta velferðarmálið!“ Það fylgdi ekki sögunni að eftir væri að semja við alls 12 sveitar- félög um virkjanir, háspennulínur og vegi, eftir væri að meta nátt- úrufórnir og eftir væri að tryggja orku til álversins. Það fór líka leynt að talsmenn allra álfyrirtækjanna sögðu að þau þyrftu að vera með yfir 340 þúsund tonna ársfram- leiðslu til að bera sig, heldur var alltaf flaggað þrefalt lægri tölu. Síðan var bætt við að reisa skyldi ámóta álver fyrir norðan með sama hugsunarhætti. Og söngurinn um hina traustu efnahagsstjórn var hækkaður á sama tíma og bankarnir voru í raun fallnir fyrir löngu. Niðurstaðan varð Halli og Laddi: Látum sem ekkert C! Nú, 34 árum eftir að fyrst var upplýst um það að Íslendingar stunduðu í raun rányrkju á jarð- varmasvæðunum með því að kunna sér ekki hóf heldur gengju á hlut komandi kynslóða, er enn kyrjað- ur samhljóma söngur, allt frá for- setanum og niður úr: Íslendingar viðhafa sjálfbæra þróun í orkunýt- ingu og eru í fararbroddi á heims- vísu í nýtingu endurnýjanlegra og hreinna orkugjafa! Já, rétt eins og fyrir 34 árum hljómar sama niðurstaðan og þá í þessu efni enn hærra en þá og virð- ist ætla að hljóma áfram plata Halla og Ladda: Látum sem ekkert C! Látum sem ekkert C! Samfélagsmál Ómar Ragnarsson sjónvarpsmaður AF NETINU Sigur Jónínu Leósdóttur yfir holdafari sínu Hvar faldi betri helmingurinn sælgætið fyrir skáldkonunni? Ef stórt er spurt er fátt um svör. En úr því að Landsdómur kemst ekki að raun um hvar peningar landsmanna eru faldir af bankastjórum í skattaskjól- um, er ekki úr vegi að boltinn verði hjá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætis- ráðherra og hún svari til að mynda fyrirspurn hins fyrirspurnargóða Bjarna Benediktssonar á Alþingi: Í hvaða sælgætisskjóli faldirðu súkkulaðið fyrir Jónínu Leósdóttur metsölu- höfundi? http://blog.eyjan.is/gudbergur/ Guðbergur Bergsson Ókeypis skíðakennsla skidasvaedi.is Í Bláfjöllum bjóða Skíðasvæðin gestum upp á ókeypis skíðakennslu allar helgar kl. 11–15. Opnunartímar á Skíðasvæðunum í vetur: Virkir dagar kl. 14.00–21.00 Helgar kl. 10.00–17.00 Upplýsingasími 530 3000 PIPA PI R \\\ TBW A BWBW AA A SÍA SÍA A A 12 07 12 0 2 079 0799 3333

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.